Tíminn Sunnudagsblað - 18.08.1963, Síða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 18.08.1963, Síða 6
f úrslitaorrustunni um Tenochtitlan beittu Spánverjar litlum herskipum, sem sett voru á flot á Texcoco-vatni. Gegn þessum skipum máttu bátar indíána sín Iftlls. meira að segja átölulaust leyft að hverfa aftur til strandarinnar til að taka í lurginn á keppinaut sínum þar. Meðan Cortés var fjarverandi, sauð upp úr. Allmargir íbúar í Tenochtitl- an komu sarrian til að blóta stríðsguð sinn, Huitzilapochtli. Staðgengill Cort és, Alvarado að nafni, skorti alla lagni foringjans, og hafði illan bifur á mannsöfnuðinum. Hann lét her- meinn sína ráðast á mannfjöldann og drepa hvern einasla mann. Borgar- búar risu upp sem einn maður og her liðið var kviað af í varnarstöðum sín- um. En nú kom fram veikleiki stjórn- skipunar Indíána og varð Spánverj- um að liði. Cortés fékk leyfi ættar- höfðingjanna til að koma sjál'fur með liðsauka til landa sinna í Tenoeh- titlan. Trúarform ófriðarins, sem Indíánum var í brjóst borið, gerði að verkum að þeir höfðu engan skiln- ing á þeirri undirstöðu vestrænnar hernaðartækmi, að sundra óvina- sveitunum og ráðast fyrst á þann arminn, sem veikastur var. Eftir að sá liðsauki var kominn, magnaðist hatur og ótti Indíánanna gagnvart Spánverjum. Spánverjar urðu að loka sig inni í höll Axaya- catls og verjast þar uppreisninni, sem öll þjóðin stóð einhuga að. Spánverj- ar gul'du mikið afhroð, og Montezuma var drepinn; annaðhvort gerðu það landar hans, sem hann var að reyna að stilla, eða Spánverjar, eins og aðrar heimildir segja. Eftir að hafa búið við fullkomið umsátur í höll- inni í viku, ákvað Cortés að halda úr borginni. Rétt fyrir dögun morgun einn fóru hermnnn hans út á auð strætin og héldu burt. Kona ein, sem var að sækja vatn, sá tii ferða 'peirra og gerði löndum sínum viðvart. Hver einasti karlmaður í borginni birtist á þökum húsanna eða á strætunum og sumir stigu á báta og réðust úr þeim á hersveitina. Aztekarnir rifu brýrnar yfir sundin niður, og margir Spánverjar báru beinin á botninum, hlaðnir af gullL Alvarado, sem var atgervismaður, komst á brott með því móti, að hann stakk lensu sinni niður í mitt síkið og sveiflaði sér yfir í öllum herklæðum. Átökin hörðnuðu stöðugt og reglu varð ekki komið á í liði Spánverja fyrr en þeir komust til Tacuba. Þar settist Cortés undir mikið tré og kannaði liðið, og er hann sagður hafa grátið, þegar hann komst að því hve mannfallið var gífurlegt. Þrír fjórðungar hers hans hfðu fallið við umsátrið og í undan- haldinu. Spánverjar fundu sér bráðabirgða- hæli uppi í hálendinu. Andstæðing- arnir veittu þeim ekki eftirför, held- ur rændu valinn og reyndu að safna saman aftur þeim fjármunum, sem Spánverjar höfðu stolið úr fjárhirzl- um þeirra. Á þennan hátt misstu þeir af gulinu tækifæri til sigurs, því að þeir hefðu án efa getað þurrkað lið Spánverja út með öllu, hefðu þeir haldið eftirförinni áfram. Síðan gerðu Indíánar þó tilraun til að stöðva Spánverja á leið þeirra yfir landið. Texcocoar héldu með her gegn þeim og kom til orrustu milli þeirra. Þar komu berlega í ljós þeir yfirburðir, sem Spánverjar höfðu í hernaðartækni, og þeir héldu uppi fylkingum sínum í röð og reglu, þótt þeir væru flestir særðir og útkeyrðir. Höfðingjar Indíána féllu fyrir vopn- um Spánverja og brast þá á flótti í liðinu. Spánverjar komust leiðar sinnar til lands bandamanna sinna, Tlaxcala, og gátu þar hvílzt og beðið eftir liðsauka frá Vera Cruz. Eftirmaður Montezuma á höfðingja stóli í Tenochtitlan var bróðir hans, Coutlaliuac, en hann dó eftir aðeins fjóra mánuði, og tók þá frændi hans, Cuiauhtemoc, við því embætti. Þótt hann væri mikilhæfur foringi, tókst honum ekki að sigrast á gagnkvæmu vantrausti og tortryggni Indíánaætt- bálkanna hvers í annars garð. Hefðu Aztekar tekið höndum saman við aðr- ar Indíánaþjóðir, hefðu þeir getað sigrazt á Spánverjum, en þeir gerðu ekkert slíkt. Cortés hvíldi hermenn sína og síð- an hófst hann handa við að styrkja aðstöðu sína á ný. Hann fór í tvo hernaðarleiðangra, annan í austurátt niður til strandarinnar, en hinn í suður- og vesturátt. Hann notaði indí- ánska bandamenn sem milligöngu- Framhald á bls. 670. 654 TÍHINN — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.