Tíminn Sunnudagsblað - 25.08.1963, Síða 2
HALLDÓR STEFÁNSSON:
HELFÖR VIÐ
FIRÐINGA
i.
VIÐFJÖRÐUR.
Inn úr Norðfjarðarflóa ganga þrír
firð'ir, Norðfjörður nyrzt, þá Hellis-
fjörður og Við'fjörður syðst. Austan
að honum og Norðfjarðarflóanum er
Barðsnes, iangt og frammjótt. Aust-
an á því, nær gegnt botni Miðfjarð-
ar er Geroir og norðanvert við hann
Sandvík. Bærinn Viðfjörður er við
fjarðarbptninn.
Árið 1936 b]ó í Viðfirði með böm-
um sínum sjö, þremur sonum og fjór-
um dætrum, Ólöf Þórarinsdóttir,
ekkja Sveius Bjarnasonar, bróður dr.
Björns Viðfirðings. Sveinn maður
hennar hafði lútizt í árslok 1927. Nöfn
bræðranna voru Þórarinn, Sófus og
Frímann, en systranna Sigríður, Guð-
rún, Anna og Ólöf.
Búskapurinn í Viðfirð’i var rekinn
bæði til sjós og lands.
II.
IIELFÖRIN.
Að morgni 30. september nefnt ár
(1936) fóru bræðurnir til fiskjar á
opnum vélbáti. Fjórði maðurinn á
bátnum var einsetumaður á afbýli frá
Viðfirði, Halláór Eiríksson að nafni.
SéS frá NeskaupstaS inn i mynni Við-
fjarðar og Hellisfjarðar. (Ljósm.: Páll
Jónsson).
Veður var kyrrt þennan dag, slétt-
ur sjór innfjarða og á flóanum.
Maður, sem stóð við slátt á túninu
á Stuðlum á Barðsnesströndinni um
morguninu, þegar báturinn fór þar
út hjá, taidi sig hafa séð í honum
með vissu fimm menn.
Úr þessari sjóferð kom báturinn
ekki aftur.
Að kvöldi næsta dags var togar-
inn Brimir írá Neskaupstað á leið
norður me*, Barðsnesinu austanvert.
Þegar hann var kominn norður um
Gerpi á skipaleið úti fyrir Sandvík-
inni, sáu skipverjar hvar rörpípa stóð
upp úr sjónum. Þegar að var gætt,
maraði bátur Viðfirðinga þar á kafi
á réttum kili. Fram yfir eina þóftuna
grúfði lík Frímanns, en í kjölsoginu
þar hjá var úr Þórarins og stóðu vís-
arnir á 10 mínútum yfir 10. Á þeim
tíma myndi slysið hafa orðið. Svaraði
timinn til þess, að báturinn hafi þá
verið staddur útaustur af Barðsnes-
horni, hann hafi svo borizt með
straumfallinu inn með nesinu fram
674
T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ