Tíminn Sunnudagsblað - 25.08.1963, Qupperneq 6
Bill Péturs Gunnlauqssonar é brúnnl yflr Jökulsá vi8 Upptyppinga.
Kverkfjalla.ana, Hvannalindir og
Lindakeili. ÖIlu fleiri eru örnefnin
ekki og engin á okkar leið. Okkur
þótti leitt vi5 það ag una og innan
skamms fengum við' tækifæri til að
bæta úr þvi Við ókum upp með
nafnlausrj á vestanverðri og þóttumst
vita, að við þyrftum að komast austur
yfir hana. Allt í einu stanzaði Jón
og sagði, að nér færum við yfir ána,
og gerðu það allir nema einn bíll, er
hafði farið' á undan um hríð. Hann
hélt áfram og hvarf brátt þar upp
með ánni vestanverðri. Hróar Björns:
son, kénnari á Laugum, var með
þennan bíl og vissum við, að hann
mundi ætia ei leita færis ofar í
ánni. Vig ókum nú upp eftir skammt
frá ánni a'ð austanverðu og komum
brátt að felli e’nu háu og stöku. Géng-
um þar upp til þess að svipast eftir
leiðum suö'ur, svo og eftir Hróari. Þá
sáum við Hróar, menn hans og bíl
skammt frá okkur en vestan ár og
hafði hún bersýnilega tálmað för
þeirra. Þá skírðum við ána Hróars-
keldu, en ieilið Hróarsfell. Þeir fé-
lagar voru fljótir í förum, þeir voru
komnir upp á íellið áður en við viss-
um af. Af Hróarsfelii sýndust okk-
ur allar le!ðir greiðar til Kverkfjalla
og mátti heita, að svo væri, þótt stund-
um þyrfti að' ganga á undan og skoð-
ast fyrir. Einu sinni var áð og dreifð-
ust menn þá á ýmsa vegu eftir smekk
og þörfum. Síðan var ekið tafarlaust
suður til Kverkfjalla meðfram háum
hólarana, sero skyndilega beygði til
vesturs og gekk alveg fram í Jök-
ulsá gegnt Dyngjujökli. Sýndist öll-
um, að ekiki yrði nær komizt fjöllun-
um og því var slegið upp tjöldum
þarna á meldragi, ómjúku. Þá var
klukkan tæplega sex um kvöldið. —
Veður var heiðskírt ,og eftir kvöld-
verð gengum við upp á hólana til
þess að njóla útsýnis. Við vorum
nú komin svo að segja í fang Kverk-
fjalla. Þau eru með hæstu fjöllum
landsins og áreiðanlega hin sérkenni-
legustu og það þótt við'ar væri leitað.
Þau eru emstætt náttúrufyrirbæri, og
þó var hið mesta furð'uverk þeirra þá
enn ófundið. Kverkfjöll eru hár og
reisulegur fjallskambur á norður-
jaðri Vatnajökuls. í miðjan kambinn
er geysidjúp kverk og fram um hana
rennur skrið'jökull af Vatnajökli,
Kverkjökull, en báðum megin rísa
bláir þverhníptir hamraveggir, sem
líklega festir aldrei snjó í, og eru
þeir því sterkustu drættirnir í svip
fjallanna. Yzt í fjallskambinum aust-
Þessi skemmtilegi hraundrangur stendur i Kverkfjöllum.
T f M I N N — SUNNUDAGSBLAfi
\
678