Tíminn Sunnudagsblað - 13.10.1963, Qupperneq 19
( gröf Tútankamuns fannst þessi mynd
af föður hans, Amenhotep III. á barns-
aldri.
ar Amenhotep III. komst til valda, en
hann er talinn hafa verið faðir Tutan
kamuns. í gröf Tutankamuns fannst
likneski af Amenhotep á barnsaldri
og þar var einnig lokkur úr hári
drottningar hans, Tiye, og hendir það
til þess, að hún kunni að hafa verið
móðir Tutankamuns. Hafi svo verið
hefur Tutankamun tekið óvild ýmissa
anáttarstólpa þjóðfélagsins í arf, því
að hún var af ótignum ættum og
Amenhotep braut bæði gegn gamalli
siðvenju og boðum trúarbragðanna,
er hann gerði hana að drottningu
sinni og konungamóður. Prestarnir
litu á þetta hjónaband sem árás á sig
og guðdóminn og með gifting* kon-
ungsins hófust þeir árekstrar milli
prestanna og konungsvaldsins, sem
áttu eftir að blossa enn betur upp á
næstu áratugum.
Ólgan, sem hafði verið as gerjast,
brauzt út af fullum krafti, þegar
Amenhotep IV., eldri bróðir Tutan-
kamUns kom til ríkis. Amenhotep IV,
sem kunnari er undir nafninu Ek.ia-
ton, er einhver frægasti faraó, sem
setið hefur að völdum í Egyptalandi.
Hann var áhugamaður mikill um trú
mál og tók af hinn forna átrúnað
á Amun og gerði presta þess goðs
áhrifalitl'a, en í síaðinn innleiddi hann
átrúnað á sólguðinn Aton.
Þegar Eknaton tók við völdum, var
faðir hans, Amenhotép in., enn á
lífi, og er ekki ótrúlegt að þeir feðg
ar hafi báðir verið konungar um skeið.
Eknaton flutti aðsetur sitt frá hinni
fornu höfuðborg ríkisins, Þe'bu, og
reisti nýja höfuðborg á austurbakka
Nílar. Þá borg nefndi hann Aketaton
til heiðurs sólguðnum, en rústir borg
arinnar kalla nútímamenn Tell el
Amarna.
Tutankamun hefur fæðzt skömmu
eftir að bróðir hans tók vig stjórnar
taumunum, og fyrsta heimili hans hef
ur að öllum líkindum verið í konungs
höllinni í Malkata í grennd við Þebu.
Hann hefur ekki átt heima í hinni
nýju borg Eknatons, því að þrevetur
kom hann.þangað í heimsókn ásamt
foreldrum sínum og systur. Myndir
Innyfli konungsins voru numin á brott,
áður en lík hans var jarðsett, og þau
voru lögð í gröfina i sérstökum smá-
kistum. Myndin er af þeirri kistu, sem
varðveitti lifur hans, og var sú kista
ekkl nema rúmir fimmtán þumlungar
á lengd.
frá heimsókn þessara tignu gesta
prýddu grafarveggi í Tell al Amarna,
og eru þær myndir helzta heimildin
um móltökurnar.
Gestirnir komu til borgarinnar á
skipi og sigldu fram hjá viðskipía-
hverfum borgarinnar, þar sem korn-
skemmur stóöu á síkjabökkunum. Þeg
ar á land var komið. stigu gestirnir
upp í vagna og var síðan ekið í heið-
ursfylkingu um borgina. Komið var
við hjá belztu hofunum og þar færðu
konungarrHr sólinni fórnir og hyll-
ingu sína, en verðir, lögreglumenn
þeirra tíma, héldu aítur af mann-
fjöldanum, sem flykktist út á öll
slræti til að hylla syni sólarinnar.
Þegar Tutankamun kom heim aftur
úr þessari ferð, hefur honum fljót-
lega verið haldið að námi, því að
Anubis, hinn svarti hundur dauðans með gullband um háls, vaktl yfir iikamsleif-
um konungsins.
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
\
S59