Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1963, Side 19

Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1963, Side 19
formi, eins og áður er lauslega nefnt. Síðari hluta vetrar 1901 til ’02 var Björn Jensson, þá reiknings- og stærðfræði-kennari við „Reykjavíkur lærða skóla“ staddur, sem oftar í kennslustund í 1. bekk skólans. Af einhverjum ástæðum hafði gengið mun fljótar að fara yfir hið ákveðna námsefni kennslustundar- innar heldur en áætlað hafði verið, svo að töluverður tími var eftir. Þennan tíma notaði Björn til að kenna þessum nemendum sínum að lesa úr tölum og hvernig skrifa ætti tölur upp til þess að léttara væri að lesa úr þeim, svo og heiti talnahlut- anna. Skrifaði hann upp á skólatöfluna talnaröð, sem í voru 66 tölustafir. Sýndi hann þarna og skýrði hvernig ætti að skrifa upp tölur til þess að lesa úr þeim. Jafnframt varaði hann við að nota kommu neðanvert í svona talnaröð og skýrði hvers vegna. Skýringin var: að komma (,) á þessum stað er stærðfræðilegt merki, sem táknar að allir tölustaf- irnir, er standa fyrir aftan kommuna, eru teljarar í tugabroti. Þá skrifaði hann upp heiti tölulið- anna og sagði að þau væru dregin af nöfnum fyrstu tíu talnanna í lat- nesku máli. Enn sagði hann að lesa mætti úr tölu með enn 60 tölum í viðbót, framan við, og voru í heiti þeirra notuð nöfn fyrstu tíu taln- anna í grísku máli. Þetta skrifaði hann þó ekki upp né heldur nefndi heitin, því kennslustundin var þá senn á þrotum. Loks gat hann þess að það, að kynnast þessu, væri aðallega til gam- ans, því þessar háu tölur hefðu ekk- ert hagnýtt gildi. Þetta er líka öll- um kunnugt. Af því að Björn skrifaði aðeins þessa 66 tölustafi með heitum þeirra, svo að ég sá það eins og mynd, hefur það öll þessi ár geymzt í minni mínu, auk þess sem eg skrifaði þá þegar upp jafnótt öll helztu atriðin, sem muna þyrfti, svo og skýringar hans. Hér fýlgir svo með 66 talna tölu- röð sett upp eins og Björn heitinn gerði og heiti liðanna sett við á sín- um stað líkt og hann gerði. En auð- vitað eru þetta ekki nákvæmlega sömu tölurnar og hann notaði né heldur tölustafirnir í sömu röð. Heitin eru hér skráð með íslenzk- um stafa-bljóðum og sett yfir þann 6-tölustafa lið, sem hvert heitið á við. Svo er hér að síðustu sýnt með bókstöfum, hvernig lesa á úr tölu- liðunum, og, sem dæmi, valdir fjórir síðustu 6-tölustafa liðirnir úr hér fyr- ir framan prentuðu 66 tölustafa-lín- um; þ. e 23. talna upphæð (af þvi að fyrsta talan í fyrsta liðnum er 0 (núll) þá fellur það tölu-sætið niður ónefnt í lesturframburðinum): Fjörutíu og sex þúsund, eitthundr- að tuttugu og þrjár triUjónir. Fjögur hundruð fimmtíu og sex þúsund, sjö hundruð áttatíu og níu billjónir. Eitt hundrað og tvö þúsund, fjögur hundruð fimmtíu og sex milljónir. Sjö hundruð áttatíu og níu þúsund, eitt hundrað og tveir (tvær, tvö). Hreinritað i dymbilvikunni (5.— 10. apríl), og umbætt að litlu leyti í okt. 1963. St. Heilsuhæli N.L.F.Í., Hveragerði 10/10 1963. St. B j. ZKvmfcviljémr.yóxidriljónip. Sriljónir. jBitjónir. óMiljómr. I. '780 '046' 123l't56'789,102,'l56l789'102. i L -L vandann. Þar var engín klukka, ekk- ert almanak til að mæla lengd hugs- unarinnar. Þar voru engin ytri skil- yrði að taka tillit til. Þar var ekkert, ekkert nema skörp hugsun hans. Og ein kenning: enginn vandi er óleysanlegur. Hann fann lausnina að lokum. Hún þýddi undankomu frá ævarandi nótt. Hún myndi færa reynslu, félagsskap, ævintýri, andlega áreynslu, skemmt- un, hlýju, ást, hljóm radda, snert- ingu handa. Áætlunin var síður en svo lausleg. Hún var þvert á móti nógu flókin til að standast í óteljandi ljósár. Hún varð að vera slík til að hafa varan- leika. Annars beið ekkert nema snöggt afturhvarf til þagnar og bit- urs myrkurs. Það var margs að gæta. Taka varð tillit til milljón og einnar hliðar og áhrifa þeirra hverrar á aðra. Og að því loknu varð að hugsa um næstlr milljónina. Og svo framvegis og svo framvegis. Hann bjó sér til voldugan draum, óendanlega flókinn heim, sem hann skipulagði út í yztu æsar. Innan hans T í M i N N — SUNNUDAGSBLAÐ skyldi hann lifa að nýju. En ekki sem hann sjálfur. Hann ákvað að skipta sér niður í óteljandi hluta, geysilegan fjölda mismunandi mynda og lífvera, sem allar yrðu að berjast við sitt sérstaka umhverfi. Og hann ætlaði að gera barátluna nær því óvinnandi með því að afsala sér hugsuninni, láta hræðilega fá- fræði há hlutum sinum og. neyða þá til að læra að nýju. Hann skyldi sá fjandskap meðal þeirra með því að ákveða grundvallarreglur leiksins. Þeir, sem færu að reglunum, yrðu kallaðir góðir. Þeir, sem gerðu það ekki, yrðu kallaðir vondir. Þannig myndu skapast stöðug átök innan ramma hinna einu miklu átaka. Þegar allt var reiðubúið, ætlaði hann að sundra sér og hætta að vera einn, en gerast geysimikill fjöldi líf- vera. Þá yrðu hlutar hans að brjótast aftur til einingar og hans sjálfs. En fyrst varð að gera drauminn að veruleika. Það var meginatriðið. Stundin var runnin upp. Tilraunin varð að hefjast. Hann laut áfram, hvessti sjónir út í myrkrið og sagði: „Verði ljós“. Og það varð ljós. 979 l næsta bla^i tnun meial annars verSa frásign eftir Sigurjón Jénsson frá Þorgeirsstoðum um sjésiys í Léni, framhaid frásagnar m séra Ásmund Gunnlaugsson og spaugbarniS, sem honum var kennt og viétal við Krist- inu Gústavsdóttur, félagsmálaráéunaut,

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.