Tíminn Sunnudagsblað - 08.12.1963, Síða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 08.12.1963, Síða 4
Indíánamenning í Andesfjöllum Sjálfir áttu Inkarnir helgisögu um uppruna sinn. Samkvæmt henni skap- aði sólguðinn hinn fyrsta Inka, Manco Capac, og systur hans. Manco Capac var sagt að fara og útbreiða menningu meðal þjóða Andesfjalla, sem til þessa höfðu búið í villi- mennsku. Sólguðinn fékk honum gull- inn staf í bendur, og sagði honum, að þar skyldi hann reisa borg, er jörðin væri svo frjósöm, að stafur- i inn sykki, væri honum varpað til jarðar. Þau systkinin leggja land und- ir fót og halda í norðurátt, þar til þau koma til Cuzcodals. Þar litast Manco Capac ladnkostir svo góðir, að hann varpar staf sólguðsins til jarðar og stafurinn sekkur í jörðina. Þar reisir Manco Capac borginn Cuzco, höfuðborg Inkaríkisins. Þessi saga er til í mörgum útgáfum og afbrigðum. En þótt hér virðist um algera þjóðsögu að ræða, ber fræðimönnum saman um, að hún hati sögulegan kjarna að geyma, og Manco Capac hafi verið til. Talið er líklegt, að hann hafi verið uppi um 1200, en á veldisdögum hans var Inkaveldið enn lítið ríki, sem ekki hefur náð yfir stærra svæði en næsta nágrenni borgarinnar. Næstu tvær aldirnar , virðast þeir hafa látið nokkuð að sév kveða í nágrenninu og herjað tals- vert á nærliggjandi ættbálka, en ekki virðist þar hafa verið um neina varan lega landvinninga að ræða. En árið 1438 tók víð stjórn ríkis Inka að nafni Pachacuti, og þá hófust land- vinningar ríkisins. Þeim var haldið áfram undir stjórn tveggja næstu Inkanna, Topa Inka og Huyana Capac. Huyana Capac lézt árið 1527, og brauzt þá út borgarastyrjöld milli tveggja sona hans, eins og síðar verð ur vikið að nánar, en skjótlega eftir lok þeirra átaka fóru Spánverjar að sýna landinu áhuga, og það komst von bráðar á vald þeirra. Stórveldis- tími Inkanna var þanníg ekki nema tæp öld, þriggja kynslóða skeið. Orðið Inka hefur verið notað i ýmsum merkingum, en raunverulega var það ekki haft um aðra en þjóð- þöfðingjann sjálfan og ættingja hans, *eðstu embættismenn ríkisins. Al- rúenningur, þjóðin eða þjóðirnar í Inkaríkinu, voru ekki Inkar. Hvaða nafn almenningur bar, er ekki vitað, en kaíla mætti fólkið Qucchua, því að quechuska hefur tungumál þeirra verið kallað. Inkaríkið var þrælskipulagt ein- ræðisriki, þar sem hver þegn hafði sinn sess í þjóðfélagsstiganum og gat ekki hreyft sig þaðan. Sú félagsein- ing, sem allt kerfið hvíldi á, kallaðist ayllu. Ayllu hefur verið skilgreind sem einslags ættsveit, safn nokkurra fjölskyldna, sem nytjuðu sameigin- lega það land, sem þær lifðu á. Allir menn voru fæddir í einhverri ayllu, og í rauninni voru borgirnar, jafnvel höfuðborgin sjálf, Cuzco, ekkert ann að en ayllu, sem höfðu vaxið meira en almennt gerist. Einstaklingar gátu ekki átt land, en ættsveitin lét þeim í té skika, sem átti að nægja þeim til lífsviðurværis. Þetta ayllu-kerfi var eldra en Inkarikið, en Inkarnir héldu því við og skipulögðu. Hverri ayllu stýrði kjörinn leiðtogi og öld- ungaráð. Allmargar ayllu voru síðan undir stjórn umdæmisstjóra, umdæm in mynduðu liéruð, og héruðin voru hlutar af einhverjum hinna fjögurra „hcimshluta ' sem voru undir stjórn landsstjóra, er áttu engum að svara nema þjóðhöfðingjanum srjálfum, Sapa Inea, hinum einstæða Inka. Alþýðumenn í Inkaríkinu kölluð- ust puric, og hverjir tíu þeirra höfðu settan yfir sig verkstjóra. Yfir hverj ucn tíu verkstiórum var einn yfirmað ur hærri gráðu, og yfir hverjum tíu slíkum yfirmónnum eftirlit.smaður. Þannig var ríkiskerfið byggt uþp, allt upp í landsstjóra heimshlutanna fjög urra og Sapa Tnca. Á móti hverjum 10 þúsund þegnum komu 1331 em- bættismaður. Ríkið átti allt ræktunarland, en hver ayllu hafði umráðarétt yfir á- kveðnu landssvæði. Því var skipt í þrjá hluta. íbúarnir höfðu einn hlut- ann til eigin nota, Inkann, þ.e. ríkið, átti annan og Sólguðinn (eins konar tíund) hinn þriðja. Hlutar ríkis og kirkju voru ræktaðar sameiginlega sem vinnuskattur þegnanna. Einstaklingarnir voru fæddir í sinni ayllu, og þaðan var engin und- ankoma, nema fyrir stúlkur, sem skör uðu fram úr i vefnaðarkunnáttu, feg- urð eða gáfum. Þær gátu orðið „út- valdar meyjar“, og voru þá fluttar dl Cuzco eða einhverrar annarrar stór- borgar og hafðar þar í sérstökum hús um til að vefa skrautklæði Sapa Inka og urðu oft með tímanum konur stór höfðingja eða jafnvel frillur þjóðhöfð ingjans sjálfs. En með þessari einu undantekningu var fólk bundið við sinn fæðingarstað og stöðu í lífinu. Jarðyrkjan var undirstaða alls þjóð lífsins, og undir stjórn Inka voru ræktaðar geysimargar tegundir nytja jurta. Meira en helmingur þeirra nytjajurta, sem nútímamenn telja sig eiga erfitt með að vera ári, voru rækt aðar fyrst í Andesfjöllum. Dugir þar að nefna aðeins örfáar: maís (20 teg- undir), kartöflur (240 tegundir), sæt ar kartöflur, maníok, kakó, pipar og papaya. Kartöflur voru aðalnytjajurt- in uppi í hálendinu, og hvergi eru til jafnmörg afbrigði þeirrar jurtar og í Perú. Þar eru til hvítar kartöfl- ur og gular, blágráar, purpurarauðar og svartar, dröfnóttar og röndóttar og afbrigði, sem þola vel frost. Maís (sara), var önnur meginnytjajurtin og aðalfæða flestra Indiána, en maís var ekki hægt að rækta jafnhátt yfir sjávarmái og kartöflurnar. Atvinnuárið skiptist í tvo hluta, þurrkatíma og regntíma, og stóð regn tíminn yfir fiá því í október fram í maí. Plæging hófst í ágúst og fóru þá fram mikil hálíðahöld, sem yfirvöld- in tóku ætíð þátt í. Plógar voru eng- ir til né, dráttardýr, heidur var jörð- in pæld upp með spöðrm, taella. — Maís var plantað í september, kart- öflum í byr.iun regntímans seint í október eða nóvember. Fyrst yrktu menn eigin akra, bletti Inkans og Sólguðsins, síðan sneru þeir sér að ökrum þeirra frænda sinna, sem voru fjarverandi í herþjónustu eða gegndu öðrum opinberum skyldum, og síðast voru yrktir biettir haltra og sjúkra. Akuryrkjan var mjög tengd áveitu kerfinu, og því var aftur nátengd stallagerð í fjallshlíðunum. Til þess að auka ræktunarlandið var jarðveg ur færður saman í stalla, sem oft 1012 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.