Tíminn Sunnudagsblað - 08.12.1963, Blaðsíða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 08.12.1963, Blaðsíða 11
Séð af skarðinu niður í Siglufjörð. og sjálf sagði hún svo frá, að hann hefði skipað sér að hypja sig burt á sína sveit áður en þing hæfust. Tóm- as á Nautabúi ól líka á því við hana, eftir að hann kom, að henni myndi óhætt að fara alira sinna ferða. Daginn áður en Elín átti að kctma til þings, fóru Soffía ráðskona og Jón, vinnumaður á Hvanneyri, inn í fjarðarbotn til þess að saekja mó. Elín slóst í för með þeim, og fer vart hjá því, að brottför hennar hef- ur þá verið ráðin, þótt hvorki vildi hún né aðrir við það kannast, því að hún hafði meðferðis í skjóðu tvö bréf, annað frá pFesti, er fara átti að Sigluvík á Svalbarðsströnd, en hitt frá Rósu nokkurri Benjamíns- dóttur, sem var á Hvanneyri um þessar mundir, til stúlku inni í Glæsibæjarhrepni. Móhraukarnir voru framan við alla bæi, og þegar þangað kom, bað Elín Jón að fylgja sér áleiðis upp fjallið. Lét hún í fyrstu sem hún ætlaði til Héðinsfjarðar, en sneri brátt við og hélt svonefnda Botnaleið vestur í Fljót. Segir ekki af henni um sinn, en þau Jón og Soffía gátu þess ekki við neinn á henmleiðinni, að hún væri á brottu, og bar Soffía því við síðar, að hún hefði jafnan verið því fegnust, er hún var sem fjærst, og þess vegna elcki að sér hvarflað að hafa orð á því. Sýslumaður varð aftur á móti ekki hýr á svip, er það kom á daginn, að Elín kom ekki ti! þings á þeim degi, er ætlað hai'ði verið. Þótti honum kerling þessi gerast firna djörf, og þegar það vitnaðist, að hún var brott farin úr sveitinni, sendi hann í tvær áttir að elta hsna uppi — austur f Héðinsfjörð og vestur í Fljót. Þeir, (Ljósipynd: Þorsteinn Jósepsson). sem í Héðinsfjörð fóru, höfðu ekki erindi sem erfiði, því að þar hafði enginn orðið Elinar var. Hinir, sem héldu vestur á bóginn, urðu veiðn- ari. Þeir náðu Elínu á Molastöðum í Fljótum, og var nú engrar misk- unnar að vænta. Hún hlaut með þeim að fara til Siglufjarðar, hversu nauðugt sesn henni var það. Það virðist hafa verið hinn 9. apríl, að sendimenuirnir héldu í rauðabýti með fanga sinn úr Fljótum. Þennan sama dag tók sýslumaður á ný til við barnsfaðernismál það, sem Jón Arnfinnsson höfðaði gegn presti. Kvað hann fyrst upp þann úrskurð. að ekkert hefði fram komið, er sann- aði það, að vitnin sjö, sem prestur vildi bægja frá rétti, bæru til hans slíka óvild, að þau væru ekki vitnis- bær og eiðtæk fyrir þær sakir. Þaðan af síður gætu staðhæfingar prests um fákunnáttu þeirra í kristindómi, strjálar ltirkjugöngur og vanrækslu sakramentis neinu varðað í þessu efni. Lét hann síðan yfirheyra þau, þrátt fyrir mótmæli prests o,g Tcmas ar á Nautabúi. Voru sög'ur þær, sem sum þessi vitni sögðu af presti sín- um, ekki alls kostar fagrar, og var þó vart bætandi á bað, sem á undan var gengið. Svo er að sjá, að komið hafi verið með Elínu á þingstaðinn, er allmjög var liðið á daginn. Var hún leidd fyrir réttinn og krafin sagna um sam skipti prests og Guðrúnar í Skarðdal og milligöngu hennar sjálfrar. Sagði hún þá svo frá, að um þrettánda- leytið 1823 hefði sér „viljat/ lítið til“ — það hefði brunnið hjá sór sok-kur, og vildi hún koma upp sokk í stað- inn, svo að lítíð bæri á. 'llún kvað nú prest hafa fengið sér fyklana á Hvanneyri og sagt, að hann ætlaði vestur í Dali, og hefði hún bá farið fram að Skarðdai, er hún var búin að taka til föt hans, þeirra erinda að biðja Guðrúnu að hjálpa sér að prjóna nýjan sokk í fjarveru prests. En svo hefði til tekizt, að prestur hefði snúið við og kcmið heim um kvöldið, og bess vegna hefði það elcki reynzt rétt, er hún sagði i Skarðdal um Dalaferð hans. Elín sagði, að hún hefði látið Guð- rúnu sofa • fyrir ofan sig, og vissi hún ekki til þess, að prestur hefði til þeirra komið um nóttina. „En svo ég beri sannleikann eins og ég á að gera fyrir réítinum, þá varð ég um nóttina að fara á fætur að sækja prestinum vatn í spilkomu, þvi hann kvartaði um sér væri illt. Fór ég svo eftir þessu í vatnsbólið fyrir ofan bæinn, til hvers ekki er sérlega langt, og þá ég aftur kom, var prest- ur í sínu rúmi og Guðrún eins í okkar“- Þegar Elín hafði lokið vitnisburði sínum, var Guðrún í Skarðdal kvödd til. En er hún var þar komin í sögu sinni, er hún kvaðst hafa heyrt ráðs- konuna hósta í rúmi prestsins, greip Elín fram í og sagði það ósatt: „Ég var að sækja vatnið í spil- komuna“. En Guðrún svaraði: „Þar til eru engin hæfi. Ég segi satt — því skyldi ég sverja eftir“. Þá vildi Elín ekki heldur við það kannast, að þær Guðrún hefðu talað saman um atburði næturinnar morg- uninn eftir. En Guðrún bar það á hana, að það hefði hún gert fyrir skemmstu og, lofað að kannast við það. Yfirheyrslan mýkti ekki skap sýslumanns. Honum brann í geði sá ósvífni Elínar að hafa haft stefnuna að engu og bakað honum og mörgum mönnum ærna fyrirhöfn með brott- hlaupi sínu. Þar á ofan tortryggði hann vitnisburð hennar. Hugsaði hann henni því þegjandi þörfina, úr- skurðaði liana í varðhald og skipaði Jóhanni hreppstjóra Kröyer að gæta hennar á heimili sínu. En nú var dagur að kvöldi, svo að ekki varð meira aðhafzt að sinni. XIII. Daginn eftir var tekið þar til, er frá var horfið. Að þessu sinni kom prestur með langt varnarskjal, sem vert er að rekja að meginefni, þar eð ætla ver'öur, að þar komi fram flest það, er presti þótti horfa sér til afbötunar. Rakti hann málið frá upphafi og kva'ð atferli sitt eiga rót að rekja til þess, að sér hefði til hugar komið, að Guðrún í Skarðdal, „ósvífin og grunnhyggin, mundi af óvildarmönnum nínum lokkuð og Framhald á 1026. síðu. T f M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 1019

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.