Tíminn Sunnudagsblað - 05.04.1964, Síða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 05.04.1964, Síða 10
Elínar frá Miklagarði. Trúðu ýmsir ] ú, að söngurinn hefði verið frá ) jnni látinni. Tók sa£a þessi brátt á sig þjóðsagnarblæ, en í mismunandi myndum. 111. Viðvíkjandi sögu þessari hafa, eink um á seinni árum, sótt á hug minn ýmsar áleitnar spurningar svo sem: Eru til nokkur skjalleg rök, er að henni hníga? Hver var Elin Páis- (ióttir í Miklagarði og hverra manna var hún? Fór ég því að grafast fyrir um þetta, aðallega í kirkjubókum o?: annálum. En kirkjubækur eru víða, um þetta tímabil, harla gloppóttar. Skal nú vikið að þeim heimildum, sem ég hefi fundið um afdrif og ætt erni Elínar Pálsdóttur frá Mikla- garði- IV. Um miðja 18. Öld bjó í Kaupangi og síðar Þórustöðum í Kaupangssveit í Eyjafirði bóndi sá, er Sigurður hét,, Guðmundsson. Kona hans hét Katrín Árnadóttir. Þau áttu nokkur börn, og er tveggja þeirra hér Eetið, Guðrúnar og Páls. Var Guðrún nokkru eldri, fædd í Kaupangi 1756. Hún giftist Jóni Þorkelssyni, bónda í Austari- Krókum í Fnjóskadal. Sonur þeirra var Magnús bóndi sama staðar, afi Kristjönu Einarsdóttur, konu Þor- sleins Pálssonar í Ytra Dalsgerði í Eyjafirði, Páll Sigurðsson var fæddur á Þóru stöðum í Kaupangssó'kn árið 1769. Voru foreldrar hans þá flutt þangað frá Kaupan.gi. Ekki eru lil neinar heimild'ir utn uppvaxtarár Páls. Árið 1790 er hano ' skráður í manntali Miklagarðssóknar. 1 Er hann þá vinnumaður í Miklagaröi: hjá séra Hallgrimi Thorlacíusi, taiinn 21 árs. Þar er hann nokkur ár, en n.un svo- hafa flutzt suður í Borgar- 1 fjörð. í Reykholtr er hann. 1802, og, ' þar staðfestir hann ráð sitt og gengur. ' að eiga Ingveldi Guðnadóttur. Hún var fædd á Görðun á Akranesi 1776. Foreldrar hennar voru Guðni, síðar : bóndi á Hurðarbaki. í Reykholtssókn, Björnsson og kona hans, Þuríður Óh afsdóttir, prests í Gör.ðum á Akranesi, Brynjólfssonar, og konu hans, Guð- rúnar Gísladóttur, Árnasonar, bróður dóttir .Tón? Skálholtsbiskups Árnason ar. í Reykholti fæddíst íyrsta barn þeirra Páls o.g Ingveldar, Karitas, 8 marz 1803. (í prestsþjónustubókinni er hún skráð Kristín, en það er mis- skrift). Næst eru þau á Geitabergi i Svínadal. Þar fæddist annað barn þeirra, Páll, 29. marz 1806. Ekki verða þau þar mosagróin, því að næsta ár. 1807, skýtur þeim upp norður f Eyja firði og eru talin húshjón í Ytra Dalsgei-ði í Miklagarðssókn: Þar fædd ist þriðja barn þeirra 30. desember 1808. Var það dóttir, skírð f Mikla- garðskfrkju á nýjársdag 1809 og hlaut nöfnin Elín Sesselja. Voru það nöfn prestsdætranna í Miklagarði, Ses'selju og Elínar. Ekki dvöldust þau Páll os Ingveld ur lengi í Eyjafirði, líklega aðeins tvö ár. En ekki sést af manntali í Mikiagarðssókn, hvenær þau i'ara. en suður í Borgarfjörð hafa þau aftur farið, og á Reykjum í Stafhoiu tungum eru þau 1810- Það ár fædd ist þar yngsta barn þeirra, er á legg komust, Soffía að nafni. Ári# 1812 er Páll Sigurðsson tai- ir.n ábúandi á Hurðarbaki í Reyk- b.oltssókn. En næsta ár, 1830, er hann ábúandi á hluta af Kaðalsstöð um í Iljarðarholtssókn, og eru þá öll börn þeirra Páls o.g Ingveldar hjá þeim nema Karitas. Varir þessi ábúð Páls, að nafninu til 1816, eti þá slítur hann samvistum við konu sína og flytur suður að Görðum á Alftanesi, „búinn að yfigefa konu sína Ingveldi", segir í prestþjón- nstubókinni. Ingveldur er kyrr á Kaðalsstöður.i til 1817. Eru þá till börn hennar kom in sitt í hverja áttina: Páll Pálsson er ,„tökubarn“ í Fljótstungu í Gilv bakkasókn, Soffía fór að Brekku koti í Reykholtssókn til Eyjólfs Guðnasonar, móðurbrgður síns, Kari tas var komin norður að Austar'- Krókum í Fnjóskadal tii Guðrúnar Sigurðardóttur, föðursystur sinnar. Þangað kom hún 1811, 8 ára gömui. og var þar uppalin til tvítugsaldurs Hvar Elín Sesselja Fálsdóttir dvelst um þessar mundir, liggur ekki ljóst l'yrir. En sennilegt er, að hún hali þá verið komin norður að Mikla garði, þó þess sjáist ekki getið i manntali Mikiagarðssóknar. Sjálf fór Ingveldur að Hurðarbaki iil föður síns, Guðna Björnssonar, sem þar bjó ekkill. Víkur nú sögunni aftur norður i Miklagarð í Eyjafirði. Árið 18i9 sést Elínar Sesselju Pálsdóttur fyrst getið í manntali í Miklágarðssókn. Er hún þá í Miklagarði á vegum séra Hallgríms Thorlaciusar, „töku barn“ 11 ára. Virðist orðalagið. benda til þess, að hún hafi ekKÍ \erið þar á sveitarframfæri eða niðursetningur, sem kallað var. Er helzt að skilja, að hún hafi verið fóstur.dóttir prests eða máske öllu lieldur Elínar prestsdóttur, sem þá hafði öll ráð í sinni hendi innan stokks. Var þá madama Ólöf Thori- acfus dáin fyrir nokkrum árum. Hún lézt 1815. Hefur Elín Thorlacius viljað láta nöfnu sina njóta þess, að hún bar nöfn þeirra prestsdætr anna, enda viðurkennt valkvendi. Vorið 1822 er Elín Sésselja férmd Er hún þá hjá séra Hállgrími í Miklagarði. Fær hún þá þennan vitn isburð: „Kann vel, skilur sæmilega.'* Næstu árin eftir ferminguna er hún áfram í Miklagarði, og í manntal inu nefnd vinnukona. Fara ekki aðr ar sögur af henni né veru hennar í Miklagarði þessi árin. En árið 1827 skráir séra Hallgrím ur í prestsþjónustubókina: „1827, þann 19. ágúst. Dáin Elín Sesselja Pálsdóttir i Mfklagarði, 19 ára. Drukknaði í Djúpadalsá". Lauk þannig ævi Elínar Sesselju í blóma lífsins. V. Á þeim árum, er Elín Sesselja Pálsdóttir var að alast upp í Mikla garði, bjó í Rauðhúsum, skammt austan við Djúpadalsána, Guíinund ur Jónsson. Dóttir hans hét Sess- elja. Voru. þær nöfnur nokkuð jafn aldra og mestu vinkonur og höfðu margt saman að sýsia. Sesselja Guðmundsdóttir giftist Ólafi Sig- urðsyni frá Kambfelli. Þau bjuggu í Rauðhúsum. Dóttir þeirra hét Olöf, dáin í Leyningi í Hólaoóku 1927. Ólöf var greind og minnug kona. Frá henni er eftirfarandi sögn, sem hún bar móður sína fyrir, Sess- elju Guðmundsdóttur: Daginn 18. ágúst 1827 vaknnðii séra Hallgrímur Thorlacius í Mikla: garði árla morguns. Hýbýlaskipan í: Miklagarði var þá, eins og víða anm ars staðar, að í öðrum enda bað stofunnar var afþiljað herbergi, nefnt hús. Þar hafðist prestur við: með nánasta skyldulið sitt, en í bað stofunni fyrir framan var vinnu- fólkið. Þess skal getið í þessu sam- bandi, að prestur þótti stundum verða ýtnislegs þess áskynja, sem öðrum.var dulið. (Samanber minningar Kristínar. skáldkonu Sigfúsdóttur). Þegar séra Hallgrímur var vaknað ur þennan áminnzta morgun ávar.par hann Elínu, dóttur sína, og: segir: „Það vantar einhvern: í baðstofunai" Elín vissi af fyrri reynslu, að héc mundi faðir sinn ekki fara með mara leysu og snarast fram í baðstofunai. Þegar þangað kemur, verður hún þess brátt vör, að Elín Sesselja er ekki íi rúmii sínu. Spyrst hún þá fyrir um, hverju það sæti. Var henni þá sagt,. að Elín Sesselja hefði kvöldið áður sagzt ætla að skrepna yfir að Völlum að finna vinstúlku sína þar einhverra erinda, en væri enn ókomin aftur. Þótti þetta grunsamlegt, og greip föiit ið uggur mlkill um afdrif Elínar Sésselju. Var þegar hafin léit að lienni með þeim árangri, er fyrr seg- ir. Ólöf í Leyningi hafði það eftir móð' ur sinni, að Elín Sesselja hefði verið glaðsinna og góð stúlka og ánægju* legt með henni að vera, Vafalauit hefur hún hlotið gott uppeldi undir handleiðslu jafnágætrar konu og Elín 298 I f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.