Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1964, Blaðsíða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1964, Blaðsíða 13
Fuglabjarg í Grímsey, svokallaður Brattl. ur að haía hér einhvern búskap, því að það er langt í mjólkurbúð héðan. Það er hins vegar tiltölulega stutt í fiskbúðina. — Hver er sú fiskbúð? — Sjórinn. Það er aldrei svo slæmt, að ekki sé hægt að fiska í soðið, en hefur verið hér heldur lé- legur fiskafli síðasta ár og það sem af er þessu ári. — En sjósóknin er hér aðalat- vinnan? — Sjórinn er sú atvinna, sem gef ur peninga af hér. Hér eru nú ellefu trillur, allar nýlegar eða nýjar. Á þeim sjö árum, sem ég hef verið hér, hefur hver einasti bátur verið endurnýjaður. Sá, sem síðast var tek inn upp, var næststærsti báturinn, þegar ég kom, en er nú orðinn sá næstminnsti, svo að þú sérð, að bát- arnir fara stækkandi. Þá er búið að kaupa hingað 05 lesta bát, Haf- björgu frá Stykkishólmi, og verður hún gerð héðan út. Eigandi hennar er Haraldur Jóhannsson, dugnaðar- forkur héðan úr Grímsey, sem hefur verið við útgerð í Vestmannaeyjum. Hann er hér líka að byggja fisk- vinnslustöð, sem er að verða tilbúin lil notkunar. Ætlunin er, að hún geti tekið á móti ufsa í sumar, en ufsaveiðarnar gengu hér mjög vel í fyrra. . — Og er ekki einhver sildarsölt- un hér líka? — Jú, hér er alltaf eitthvað salt- að á sumrin, en það gekk mjög illa i fyrra. Síld var þá ákaflega lítil hér við eyna, og ég held, að við höfum ekki náð 1100 tunnum. Það var auðvitað bullandi tap á þeirri starfsemi. Húsfreyjan kemur inn með kaffi, og um leið og hún hellir í bollana, spyr ég, hvort ekki sé einmanalegt að búa hér norður á hjara veraldar. — Nei, segir hún — maður finnur ekki til þess. Hér er skammt á milli bæja, svo að einangrunin er miklu minni heldur en í sveitum, þar sem bæjarleiðir eru langar. Eyjan er auk þess svo stór, að maður tekur ekki eftir því, að sjórinn er alls staðar á næstu grösum, og fjallasýnin, sem er hér ákaflega mikil í góðu skyggni, gerir, að vel væri hægt að telja sig vera inni á flpa einhvers staðar. Við erum miklu betur sett hér heldur en á afskekktum stöðum uppi á landi, þar sem er lélegt eða ekkert vegasamband. Ég fann sjálf miklu meira til einangrunar, þegar ég var á Siglufirði, heldur en hér. — En hvernig eru samgöngur við land? i — Þær eru góðar, segir hún. — Tryggvi Helgason fiýgur hingað hálfsmánaðarlega, og það falla aldrei úr ferðir hjá honum, og Drangur kemur hingað hina vik- una. Þá hefur landhelgisgæzlan ver- ið okkur ákaflega vinveitt, ef á hef- ur þurft að halda. — Koma ríkisskipin ekki hér við? — Nei, svarar Alfreð. — Þeir töldu, að það borgaði sig ekki. En í staðinn áttu þeir þátt í, að við fengum flugið, og það er auðvitað miklu betra. Auk þess kemur Drang ur hingað reglulega, og það kemur varla fyrir, að hann haldi ekki áætl- un. Ef það er bræla, þegar von er á honum, er oft eins og slái á það, þegar hann kemur. Drangur flytur aðallega vörur, en fólksflutningar fara nær eingöngu fram með flug- vélinni. Það munar svo geysilega á tíma. Drangur er sólarhring til Akur eyrar, því að hann stanzar svo lengi á Siglufirði, en flugferðin þangað tekur 35 mínútur. — Kemur hér mikið af aðkomu- mönnum? — Það er alltaf talsvert um það á sumrin. Hingað koma oft hópar, bæði ferðamenn, félagasamtök og skólar. Útlendingarnir eru langdug- legastir að skoða sig um. Annars fer það auðvitað eftir veðri, og Akurcyr ingar eru oft óheppnir með veður. Þeir mega hér helzt ekki koma, þá fer strax að rigna. Flugfélagið er líka með miðnæturflug hingað á sumrin, en það eru hálfgerð mistök, held ég. Þeir koma hér aldrei fyrr en svo seint, að fegursta kvöldsólin er löngu horfin, og auk þess hafa þeir ekkert samband hingað áður en þeir fara, svo að þeir koma, hvernig sem viðrar. Það hefur komið fyrir, að ferðafólkið hefur ekki farið lengra út en rétt undir vélarvæng- inn vegna i'igningar í þessu mið- nætursólarflugi þeirra. — „Hvað er Grímsey stór? Ragnhildur verður fyrir svörum: Ég hef heyrt það sagt, að það væri skammdegisganga að ganga kring- um hana og fara inn í hverja vík og út á hvert nes, það er að segja það tæki allan þann tíma, sem birta er í skammdeginu. Nú er sólargang- 589 lllHlNN - SUNNUDAGSBIAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.