Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1964, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1964, Blaðsíða 16
Munir úr bólstað Dorspftólks — veiðitækl, skrautgripir og áhöld til heimilsverkn. Neðst eru heinkambar frá Sandnesi i Vestribyggð. stæðra aðstæðna, er að lokum dró, einkum einangrunar, bæði andlegrar og viðskiptalegrar, og hnignandi heilsufars. Hann varð að smávaxinni þjóð, þróttlítilli og veikbyggðri, með marga líkamsgalia, er buðu sjúkdóm- um heim“. Nörlund ætlaði, að veðrátta á Grænlandi hafi farið versnandi, þegar leið á miðaldir, og margir aðrir hafa hallazt að því, að slík veðurfarsbreyting hafi stuðlað að því, að Grænlendingar hurfu frá búskap og úrkynjuðust, unz þeim var ekki lengur líft. Þess héfur líka verið getið til, að j 592 skyldleikahjónabönd hafi átt þátt i úrkynjun. Sumir hafa látið sér detta í hug, að við Grænland eigi bréf, sem Alexander páfi skrifaði erki- biskupnum í Niðarósi um eyju inn- an biskupsdæmis, tólf dægra siglingu frá öðrum löndum, þar sem fólk sé svo fátt, að það geti ekki fundið sér maka nema brjóta lög kirkjunnar. Þá hefur því og verið haldið fram, að fólkið kunni að hafa hrunið nið- ur í farsóttum. Fundizt hafa ein eða tvær fjöldagrafir, þó að slikt sé ekki nein sönnun, þar eð þær geta allt eins verið vitnisburður um mann- skæðan bardaga, sjóslys eða aðra við- líka atburði. Það er til dæmis talið, að svarti dauði hafi aldrei borizt til Grænlands, enda var Vestribyggð úr sögunni, áður en hann geysaði, en Eystribyggð hélzt eftir að hann var um garð genginn á íslandi. Margar fleiri getgátur hafa verið bornar fram. Menn hafa getið sér þess til, að grasmaðkur kunni að hafa sviðið bithagana, og öðrum hef- ur komið til hugar, að konur kunni að hafa orðið svo miklu fleiri en karlar í bændabyggðunum, að til tor- tímingar hafi leitt. En beinafundir styðja ekki þessa síðustu tilgátu. Tryggvi J. Oleson andæfir öllu þessu. Hann heldur því fram, að bein þau úr kirkjugarðinum á Herjólfs- nesi, er rannsökuð voru, hafi nálega öll verið úr norðanverðum garðinum, og á miðöldum hafi fátækt fólk og umkomulaust verið grafið norðan kirkju. Af þessu vill hann draga þá ályktun, að þetta hafi verið beina- leifar úr beiningamönnum og hrakn- ingsfólki, er ekki gefi rétta hugmynd um líkamsvöxt og heilsufar fólksins almennt. Ennfremur skírskotar hann til beinaleifa, sem fundizt hafa ann- ars staðar á Grænlandi, er ekki styðji það, að úrkynjun og hrörnun kynstofnsins hafi átt sér þar stað. . Vitnar hann til þess, er Fischer- Möller skrifaði árið 1942: „Við rannsókn beinagrindanna úr Vestribyggð, fann ég engin merki úr- kynjunar eða langvinnra sjúkdóma, nema gigtar. Þarf engan að undra, þótt slíks sjúkdóms gæti, þar sem veðrátta er köld og lífsskilyrði örð- ug og geta manna til þess að verjast kulda og bleytu er takmörkuð, eink- um hvað snertir húsakynni. Engin merki um beinkröm eða berkla sjást meðal barna né fullorðins fólks, og tennurnar, sem þó sýna mikið slit eins og títt er meðal allra frum- stæðra þjóða, eru ekki meira slitnar en venjulegt. er hjá norrænu fólki á miðöldum. Þær hafa verið algerlega lausar við beinátu. Hafi fólkið verið skammlíft, og þess eru mörg dæmi, að fólkið dó ungt, þá er skylt að minnast þess, að það var alls staðar hversdagssaga á miðöld- um, þó að hinn mikli manndauði stafaði mest af skæðum farsóttum". Beinagrindur frá Görðum töldu þeir Fischer-Möller og K. Broste vera af fólki af alnorrænum upp- runa, „vel þroskuðum einstakling- um, sem ekki sjást á nein merki úr- kynjunar". Þessum dæmum teflir Tryggvi fram gegn ályktunum þeim, er dregnar voru af beinum frá Herjólfsnesi. Hann telur og ósannað, að páfabréf- ið eigi við Grænland, og þótt svo væri, þá sé ekki þar með sagt, að skyldleikahjónabönd leiði til hrörn- unar. Hann gerir og mjög lítið úr því, að veðurfar hafi farið til muna versnandi á síðari hluta miðalda. T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.