Tíminn Sunnudagsblað - 28.03.1965, Page 11
þar þó báðir fram til dauðadags. En
voru fátæklingar upp frá þessu.
í Kaldárholti bjuggu þá einnig
bræður tveir. Gísli, faðir Árna let-
urgrafara í Reykjavík, og Þorsteinn
Árnason, faðir Daníels bónda í Kald-
árholti. Meðal barna Daníels voru
Sigurður gestgjafi á Kolviðarhóli,
Ágústínus bóndi í Steinskoti á Eyr-
arbakka, faðir Daníels bæjarstjóra á
Akranesi, Jóhann Vilhjálmur, kaup-
maður á Eyrarbakka, Daníel bóndi
£ Guttormshaga, faðir Þorsteins, sem
þar býr nú, og Guðmundar rithöf-
undar, og Guðrún, kona Hafliða
bónda í Búð í Þykkvabæ.
Þeir bræður, Gísli og Þorsteinn,
voru á sextugsaldri og búnir að búa
lengi, þegar þetta var. Báðir voru
þeir bjargálnamenn fyrir kláðann
og töldu þá fram 13 og 17 kúgildi.
Þeir áttu samanlagt 8 kúgildi eftir
niðurskurðinn. Bjuggu þó nokkur ár
eftir það við lítil efni.
Hér voru taldir ípp tíu fornir
Holtabændur. Sagt var frá hvílíkum
hrakföllum þeir urðu fyrir af völd-
um fjárkláðans. Segja má um þá
alla, að þeir sátu meðan sætt var
— og sumir miklu lengur. Búskap
héldu þeir allir áfram. ýmist til elli
eða æviloka. En öllum þeim
er það sameiginleg rauna-
saga, að ætt þeirra er fyrir löngu
flutt frá ábýlum þessara þrautseigu,
gengnu búþegna.
VI.
Hér skal enn getið fáeinna Holta-
bænda fyrir hundrað árum, sem fjár-
kláði og niðurskurður léku jafnhart
og hina, er fyrr var frá ságt. En
þessir hafa á vissan hátt haldið velli.
Niðjar þeirra hafa — mann fram af
manni — setið að búum á sömu
jörðum til síðustu ára eða þessa
dags. Og vænta má þess, að svo
verði áfram um flest þau ættaróðul.
í Gíslaholti bjó þá gamall bóndi
óg gróinn, Guðmundur Oddsson,
sem áður bjó lengi á Steinkrossi,
sonur Odds, bónda á Fossi á Rang-
árvöllum, Guðmundssonar á Stein-
krossi, Hallvarðssonar sama staðar,
Teitssonar. Guðmundur taldi fram
fyrir kláðann þriðja stærsta bú í
Holtamannahreppi, 23,5 kúgildi, en
6,5 kúgildi eftir niðurskurðinn. Hann
andaðist á því ári.
Tveir synir Guðmundar bjuggu þá
einnig í Holtum, báðir bjargálna
menn. Annar var Jón bón&i í Hreiðri)
faðir Sigurjóns bónda í Hreiðri, föð-
ur Valdimars, sem þar býr enn. Hinn
var Oddur í Hvammi. Hans synir
voru Þorleifur á Þverlæk, faðir Guð-
mundar, sem enn býr þar, föður
Guðna, sem býr einnig þar, og Guðni
í Hvammi, faðir Oddbjargar, sem
þar bjó og þeirra sjö systra, sem
allar voru sveitakonur um eitt skeið.
Þeir bræður, Jón og Oddur, töldu
fram fyrir kláðann sín 15 kúgildin
hvor, en um fjögur kúgildi hvor
þeirra eftir niðurskurðinn.
Á Syðri-Rauðalæk bjuggu, er þetta
var, tveir ungir uppgangsbændur.
Annar hét Ilalldór Halldórsson, sem
þar var fæddur og uppvaxinn og
bjó þar til æviloka. Hann var faðir
Runólfs ríka, sem bjó þar síðan um
63 vetur og gerði garðinn frægan.
Sonur Runólfs er Gunnar hreppstjóri
er þar býr nú gamall maður. Hall-
dór átti annað stærst bú í Holtum
fyrir kláðann, tíundar þá 24,5 kú-
gildi, en 9 kúgildi vorið eftir nið-
urskurðinn. Eigi er nú kunnugt,
hvort hann fjölgaði í fjósi eða keypti
nýtt fé niðurskurðarhaustið. Hugsan-
legt er, að hvort tveggja hafi ver-
ið. Hinn bóndinn taldi fram 14 kú-
gildi fyrir kláðann, en 6 kúgildi eft-
ir niðurskurðinn. Hann hét Þor-
steinn Jónsson, flutti sig fám árum
síðar að Berustöðum og bjó þar til
elli, en síðar Þorsteinn, sonur hans,
á fimmta tug ára — faðir Runólfs,
sem bjó þar lengi. En hans synir
eru Stefán og Trausti, báðir bænd-
ur á Berustöðum nú.
í Moldartungu bjó um þær mund-
ir maður sá, er Jón hét — þá orð-
inn roskinn. Hann var sonur Glímu-
Bjarna á Sandhólaferju, Gunnarsson-
ar sama staðár, Filippussonar, prests
í Kálfholti, Gunnarssonar. Synir Jóns
voru þeir Þorsteinn og Bjarni, sem
bjuggu þar mjög lengi eftir hann
og urðu óvenju gamlir. Nú búa á
jörðinni börn þeirra bræðra beggja.
Jón í Moldartungu hafði lítið bú, sem
niðurskurðurinn skerti þó um helm-
ing.
Þá bjó í Króki Gunnlaugur Bárð-
arson, bónda í Króki, Gunnlaugsson-
ar. Hann var faðir Ólafs í Króki,
sem margir muna, föður Guðmund-
ar, sem þar bjó síðar og kom upp
14 börnum. Einn sona Guðmundar
er Ingólfur sá, sem nú er bóndi í
Króki. — Gunnlaugur í Króki var
fátækur maður eins og þeir lang-
feðgar allir. Fyrir fjárkláðann taldi
liann fram 5,5 kúgildi, en 1,5 kú-
gildi eftir niðurskurðinn. Hann bjó
þó eftir það í aldrafjórðung, og
niðjar hans hafa haldið velli til þessa.
í Köldukinn bjó þá Þorsteinn Run-
ólfsson prests, síðast í Keldnaþing-
um. Einn sona Þorsteins var Einar
í Köldukinn, faðir Þorsteins, sem
þar bjó lengi, föður Runólfs Þor-
Framhald á 285. síðu.
bví fækkar. sem minnlr á gamla tímann í Holtamannahreppi hinum forna.
Þessi brunnvinda hjá Helli ber þó svip liðins tfma. Ef til vill hefur hún verið
til og þessu áþekk fyrir hundrað árum. En skjólan, sem þá var undin upp,
hefur áreiðanlega verið úr tré. Ljósmynd: Páll Jónsson.
r f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
275