Tíminn Sunnudagsblað - 15.08.1965, Side 11
Margrét Jónsdóttir:
Ég geng á fund þinn
Ég geng á fund þinn, góða vor,
þú gefur mér þitt djarfa þor,
þitt geislabros og græna skraut,
er grær og fyllir hverja laut.
Og ég verð aftur ung og ný,
er árdagssólin roðar ský
og lóan syngur ástaróð,
þá ómar mér á vörum Ijóð.
Með fuglum loftsins fagna ég,
sem flogið hafa langan veg
og ennþá gista ísafold
og eru börn þín, fósturmold.
Af lífsins gullnu gleðiveig
hins góða vors ég drekk í teyg,
með fuglum syng hjá blómum bý
og böli öllu í fögnuð sný.
aðalhlutverkiS í öllum þáttunum með
sínu venjulega fjöri og yndisþokka.
Ég er ekki í neinum vafa um, að
það koma margir í Hafnarfjörðinn tii
að sjá þessa mynd.
Einhver bezta myndin verður
„Fyrir konunginn og föðurlandið,“
stónkostleg mynd. Ég hef fáar mynd-
ir séð, sém hafa haft eins mikil áhrif
á mig. Hún gerist í fyrri heimstyrj-
öldinni, er ádeila á stríð og heraga,
ákaflega áhrifamikil og átakanleg.
Það er engin hetja, sem myniin
fjallar um, og engar dáðir drýgðar.
heldur lýst ömurlegu víti skotgraf-
anna og sögð saga ungs, óbreytts her-
manns, eins af hundruðum þúsunda.
Kona ans og tengdamóðir hafa
hvatt hann til að ganga í herinn
og berjast fyrir „konunginn og föð-
urlandið." í leðju skotgrafanna hef-
ur hann horft á félaga sína skotna í
tætlur í þrjú ár. Þá gefst hann upp
eitt sinn og heldur af stað. Eiginlega
hefur hann ekki í hyggju að gerast
liðhlaupi, hann verður bara að kom-
ast burt, burt frá þrumandi fall-
byssunum, burt frá dauðanum.
En hann næst og er fundinn sek-
ur um liðhlaup, enda þótt hörku-
duglegur höfuðsmaður taki að sér og
leggi sig allan fram við að verja
hinn barnslega, saklausa, unga aer-
mann, sem stendur varnarlaus gagn-
vart hörku herréttarins. Herréttur-
inn trúir ekki á taugaáfall af völd-
um sprenginga. að lokum verður
höfuðsmaðurinn að veita honum
banaskotið, félögum hans er það um
megn.
Dó hann fyrir konunginn og föð-
urlandið? Það er ef til vil! óhætt að
segja, að dauði hans var öðrum við-
vörun. Menn gerast ekki liðhlaupar.
Hvers vegna ekki? Þeir gera það
ekki, það er ekkert um það. Þessari
mynd verður ekki lýst, menn verða
að sjá bana.
Myndin er gerð af Josep
Losey, og Tom Cortenay og Dirk
Bogarde fara með aðalhlutverkin.
Tom Cortenay, sem leikur unga her-
manninn, leikur sérstaklega vel,
hann nær áhorfandanum algerlega
á sitt band með barnslegum svip-
brigðum sínum og öllum leik og
framkomu. Tom Cortenay er einn
af ungu kynslóðinni í Bretlandi, fædd-
ur í Hull 1937, hann er grannur og
fremur veikbyggður, en hefur ódrep-
andi áhuga á íþróttum, einu sinni
ætlaði hann að verða kennari og var
byrjaður að lesa bókmenntir við há-
skólann í London, en hann var allt-
af að snuðra kringum leiklistarhá-
skólann og lenti þar að lokum. Hann
hefur áður leikið í einni mynd og
er nú á Spáni að leika í mynd Davíðs
Leans, Doktor Zhivago.
Fyrir konunginn og föðurlandið
„Fyrir konunginn og fööurlandið
um sínum.
hefur fengið mjög góða dóma, og
fékk verðlaun á kvikmyndahátíðinni
í Feneyjum í fyrra.
Ég vona, að hún hljóti hér þá að-
sókn og athygli, sem hún á skilið.
Allar þessar myndir, sem ég hef
verið að segja þér frá, verða sýndar
á þessu ári, og ég verð að segja,
að ég vona Jþær dugi, þeim verði það
vel tekið. Eg hef töluvert af mynd-
um nú þegar, sem ég hef
í athugun að sýna á næsta ári, en
það er of snemmt að segja frá þeim,
enda er allt-óráðið um þær enn þá.
Kvikmyndahúsgestir ráða miklu um
val mynda, það er tilgangslaust að
taka myndir til sýningar, sem ég er
fyrir fram viss um, að fáir eða engir
koma að sjá.
Kristín.
Tom Cortenay <»3 Dirk Bogarde í hlutverk-
T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
731