Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Síða 15

Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Síða 15
því tagi, sem tuldrar í barminn, ófær um það að halda reynslu sinni utan sviðs daglegrár framkomu. Þannig er rödd liðins tíma jafngreinileg og rödd líðandi stundar. Það eru engar svipmyndir frá liðnum tíma í þessum leik. Nútíð og þátíð hafa runnið sam- an í eitt, því að í örvæntingarfullri leit eftir réttlætingu á ævi sinni hef- ur Willy Loman fellt þær skorður, sem tíminn setur. Honum má líkja við mann, sem uppgötvar, að hann hefur komið af stað sprengingu í kjallara húss síns með jafnsaklausu athæfi og að lyfta símtóli. Miller getur þess hér, að kvikmynd sú, sem gerð var eftir leikritinu, hafi tekizt illa. Meginástæðuna fyrir því telur hann vera þá, að í kvikmynd- inni er Willy bókstaflega fluttur á þá staði, sem aðeins eru til í hug hans í leikritinu. Þannig glatast hryllingur sá og sú dramatíska spenna, sem fram kemur, er maðurinn gleymir stund og stað og spjallar við ósýnilegar persónur. í kvikmynd er um að ræða stöðug skipti á mynd, og því telur Miller, að misheppnan kvikmyndar- innar felist að miklu leyti í formi leikritsins. Nú er vikið að því, sem ritað hefur verið og rætt um Sölumaður deyr — eða öllu heldur um það, hvað leikrit- ið eigi að tákna, jafnt sálfræðilega sem þjóðfélagslega. Hægrisinnað tímaritið talaði um verkið sem „tíma- sprengju, snilldarlega komið fyrir undir ímynd Ameríku,“ og kommún- istablaðið Daily Worker áleit leikrit ið bera vitni um hnignun. í hinum kaþólska Spáni var það sýnt oftar en nokkurt annað nútímaleikrit. Það fékkst ekki sýnt í Rússlandi, en hefur verið sýnt í sumum Austur-Evrópuríkj um. Spænsku blöðin kölluðu Sölumað- ur deyr sönnun þess, að andinn sé dauður, þar sem enginn Guð er. Sum ir Bandaríkjamenn sögðu verkið kommúnistaáróður, en stórfyrirtæki kvöddu Miller til þess að ávarpa sölu- deildir sínar. Við lá, að eitt félag sölumanna tæki Miller í 'dýrlingatölu, en annað rakti vaxandi örðugleika á ráðningu sölumanna beint til leik- ritsins. Þegar kvikmyndin kom til sögunnar, var ótti kvikmyndafélags- ins slíkur, að það lét gera fræðslu- mynd um sölumannsstarfið, sem Mill- er gefur þann vitnisburð, að henni hafi verið ætlað að sýna fram á, hversu fávísleg kvikmyndin sjálf væri. — Bréf bárust frá fólki, sem fann í leikritinu einhverja samsvörun með lífi þess sjálfs. Og manni nokkrum varð að orði, þegar hann gekk út úr leikhúsinu, eftir að hafa séð Sölu- manninn: „Ég hef alltaf sagt, að Nýja-England væri hábölvað." En Miller segir sannleikann vera þann, að hann hafi aldrei haft hinn minnsta áhuga á sölumannsstarfinu sem slíku. En því hafi ekki verið trúað, og því hafi hann gefizt upp við það að halda slíku fram. Og til- gangur hans með verkinu hafi í engu verið sá, sem fram hafi komið í hin- um mörgu skoðunum þar að lútandi. Leikritið spratt upp af einföldum myndum. Litið hús, sem eitt sinn hafði bergmálað af ærslum drengja á vaxtarskeiði en er nú tómt og þög- ult. Mynd hverfulleikans — bíll var bónaður á laugardagskvöldi — hvar er hann nú? Mynd af syni þínum, sem lítur þig öðrum augum en fyrr- um. En mikilvægust af öllu er þó þörf mannsins til þess að skilja eftir sig einhver ummerki einhvers staðar í heiminum — þörf, sem knýr á með meira afli en frumhvatirnar sjálfar. Þörf fyrir ódauðleika, en því að játa hana fylgir sú vitneskja að hafa rit- að nafn sitt á ísköku á hlýjum júlí- degi. — Miller getur einnig um mynd einstaklingsins í heimi, fullum af ókunnugum, og jafnframt myndir, sem snerta byggingu verksins. „Auga“ leiksins átti að vera í höfði Willys og beinast í allar áttir líkt og leitar- ljós á rúmsjó, og ekkert var látið eiga sig, sem djarfaði fyrir í fjarska. MilLer kveðst hafa látið sér umhug- að um það, að þetta leikrit bæri raun sannan svip af lífinu. Hvað sem hver segir, þá er það staðreynd, að kaup- sýslumenn segja manni upp störfuip. þegar hann er þrotinn af kröftum og getur ekki lengur gegnt starfa sínum. — En jafnframt miðaði Miller að því, líkt og í Öllum sonum mínum, að ekk- ert, sem fram kæmi í leikritinu, væri sneytt gildi fyrir gang þess allan. Form verksins var lagað að því, sem ■nnixiwtrw—fmnmmiMH»r«iaiiwi .•v',m»uw»»i»*BM«iaw«nifninriTgr»^ SÖLUMAÐUR DEYR Vissar einkasamræður í tveim- ur þáttum og sálumessa. Leikrit- ið var frumsýnt árið 1949 og sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1951 (þýð- andi Skúli Skúlason, leikstjóri Ind riði Waage). Fyrri þáttur. — Willy Loman, roskinn sölumaður, búsettur í út- jaðri New York-borgar, er nýkom inn heim úr söluferð. Kona hans heitir Linda, og þau eiga tvo upp komna sonu, rúmlega þrítuga, Biff og Happy. Willy er hættur að ná nokkrum árangri í starfi sínu, og hvorugur sonanna hefur átt miklu veraldarláni að fagna. Happy er búsettur í grennd við foreldrana, og Biff er þar í heim- sókn. — Inn i leikritið er fléttað ýmsum atburðum í lífi Willys, og eru engin skil á milli þeirra og þess tíma, sem leikritið gerist á. Biff var dáður íþróttamaður á unglingsárum sínum, en komst ekki inn í háskóla. Þá kemur fram Charley, nágranni Willys og góð kunningi, sem nú orðið lánar hon um peninga reglulega, og Bern hard, sonur Charleys og æsku- vinur Biffs, að ógleymdum Ben frænda, föðurbróður Willys. Ben hefur fénazt vel og kemur í heim sókn til frænda síns. — En í nú- tíðinni eru áhyggjur af fjármálum og atvinnu efst á baugi. Willý finnur sárt til gengisskorts sona sinna. Biff er taugaveiklaður og rótslitinn, en meira er í hann spunnið en Happy, sem er hálf gerður gleiðgosi. Biff afræður að fara í atvinnuleit til Bills Olivers, sem hann hefur starfað hjá fyrir mörgum árum. Síðari þáttur gerist daginn eft- ir. — Willy fer á fund Ilowards, vinnuveitanda síns, og biður hann um vinnu í' New York, þar eð hann geti ekki gegnt sölumanns starfinu lengur. En Iloward vísar tilmælum hans á bug og segir hon um upp. Willy gengur á fund Char leys, sem býður honum vinnu, en það telur Willy sig ekki geta þeg ið. Þarna hittir Willy Bernhard, sem nú er orðinn mikils metinn lögfræðingur, og þeir spjalla sam an um Biff og liðnar stundir. — Biff og Happy hafa boðið föður sínum til miðdegisverðar, en það endar þannig, að þeir bræður yfir gefa hann. Oliver hefur ekki kann azt við Biff, og Biff -stelur frá honum penna. Inn í þetta flétt ast atvik frá unglingsárum Biffs. þegar hann kom að föður sínum með - ókunnugri konu á gistihúsi í Boston. — Þegar heim kemur, álasar Linda bræðrunum fyrir framkomu þeirra gagnvart föður sínum. Það kemur til heiftugrar orðasennu milli Biffs og Willys, og liggur við átökum. Sá verður endirinn, að Biff brestur í grát og fram kemur elska hans á föð ur sínum. Það náttar, og Willy, sem hefur líftryggt sig fyrir stór fé, ekur á brott í bíl sínum. Sálumessa. — Jarðarför Willys er nýafstaðin, engir hafa verið viðstaddir nema Lomanfjöl- skyldan og Charley. Þau tala um drauma Willys, og koma viðhorf þeirra allra til Willys glöggt í ljós. Linda á síðasta orðið. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 711

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.