Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Side 16

Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Side 16
gefningu hans. Sá sigui B.nyi naua til dauða, vegna ’-ess að hugmyndir hans um frama eru á þann veg, að hann telur sig réttlæta tilveru sína með því einu að veita eftirlifendum „vald“ með líftryggingarfé sínu. Miller kveðst ekki hafa gert sér grein fyrir því fyrirfram, hve fáir sæju, að Willy Loman er í rauninni hugprúður maður, sem lætur sér ekki nægja minna en fylgja draumi sínum til enda. Hann er enginn þöngulhaus, sem flýtur sofandi að feigðarósi. Hann er í öngum sínum, vegna þess að hann veit, hvernig komið er fyrir sér. Að vísu gat hann ekki komið orðum að þessu, en það táknar ekki, að hann hafi vitað sannleikann. Mill- er telur, að miklar hömlur séu á þekk ingu hvers og eins á sjálfum sér, og þær hömlur geri harmleik mögulegan. Fullkomin vitund sé ekki hugsanleg í leik, sem fjallar um fólk. Hefði Ödípus til að mynda gert sér betri grein fyrir þeim öflum, sem voru að verki í lífi hans, hefði hann sagt, að sig væri ekki um að saka fyrir mök sín við móður sína. Hann hefði ákveðið að skilja við hana, séð fyrir börnunum og ákveðið að kynna sér betur uppruna næstu eiginkonu. >á hefði ágætt leikrit aldrei verið skrif- að og úti væri um nafn á vissri duld. En samt slítur hann úr sér augun. Hvað er harmrænt við þetta?^ Hví er það ekki frémur hlægilegt? Svarið myndi það, að hann hefur brotið lög, sem við höldum í heiðri vegna þess, að þeirra vegna getum við kallazt menn. Líka sögu er að segja um Willy Loman." Hann hefur brotið lög, sem lífið byggist á í augum hans og margra annarra: að þeir, sem undir verða í lífsbaráttunni, eigi engan rétt til lífsins. Andstætt lögum um blóð- skömm, eru lög framans hvergi skráð en samt halda þau mönnum engu síð- ur I greip sinni. Lög þau, sem Willy hlítir, eða trú hans, ef við kjósum það orðalag heldur, er áhyggjuefni, segir Miller. Hann kveðst hafa leitazt við það í leiknum að mæta þessum áhyggjum með gagnstæðu lögmáli, sem á í keppni við hitt um trú Willys — lögmál ástarinnar, andstætt lög- máli framans. Biff Loman er persónugervingur lögmáls ást- arinnar, en þegar Willy skynj- ar ást hans getur hún aðeins orðið hæðnisleg athugasemd við ævi þá, sem hann hefur fórnað á altari valds og metorða. VI. Nú víkur Miller að því, að ekki megi jafna leikriti við stjórnmálalega heimspeki. Hann telur ugglaust, að stjórnmálaskoðanir höfundar hljóti að koma fram í verkum hans, en þær megi ekki taka af honum ráðin. Miller segir, að hafi hann í verkum sínum mjög leitað orsaka í þjóðfé- laginu engu síður en í sálarlífi fólks, Regína Þórðardóttir og Rúrik Haraldsson í Hlutverkum Proctor-hjonanna í ieikritinu, í deiglunni. fram átti að koma í þvi, en ekki öfugt. Þá drepur Miller á það, að Sölu- maður deyr hafi í hans augum ávallt verið leikrit um hetju og hann fall- ist ekki á þá gagnrýni, sem fram hafi komið, að Willy Loman sé ekki nægilega stór í sniðum til þess að geta verið harmsöguleg hetja Hann segir, að ógerningur sé að leggja mælikvarða leikritunar í Hellas eða á tímum Shakespears á þetta mál. Fyrr á tíð hafi hvorki þekkzt trygg- ingaiðgjöld, viftureimar í ísskápum né Chevroletbílar. Ekki kveðst Miller endilega hafa ætiað að rita Sölumaður deyr sem harmleik, hann kveðst hafa viljað sýna sannieikann, eins og honum þótti hann vera. En hann svarar sumum þeim ádeilum. er fram hafa komið á verkið sem ger'dharmleik Hann segir, að skilgreiningar Aris^telesar á harmleik hljótí að vera úr gildi .faiiitar, þar eð hann hafi lifað í þræla þjóðfélagi og þar hafi meginhluti fólks ekki átt um neitt að velja. Þá hafi verið eðlilegt, ð harmleikur fjall aði um fólk af hærri stéttum, en nú sé engin forsenda fyrir því, að slíkt þurfi endilega að vera. Stétt og staða ákvarðar engan veginn, hvort um harmleik er að ræða eður ei. Því næst segir Miller um Sölumað- ur deyr, að verkið sé fremur stað- reynd en leikrit. í því er drepið á þjóðfélagsleg lögmál og sögulega stað reynd. Og Miller sjálfur telur leik- ritið óhikað harmleik. Hann víkur dá- lítið að hinum svokallaða harmræna sigri. Hann byrjar með því að segja, að dauði manns sé í eðli sínu átak- anlegur viðburður, sem ekki ætti að gera neinn hamingjusaman. Samt sem áður geti hugprýði falizt í dauðanum, og að þvj leyti geti dauði manns kall- azt sigur Willy Loman er glaðúr á banadægri sínu, bótt harmi sleginn sé. Ilann hefur fengið vitneskju um ást sonar síns á sér 02 öðlazt fvrir MO T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.