Tíminn Sunnudagsblað - 21.08.1966, Page 18
EGGIÐ
Ég er viss um, aö idðir minn hef-
ur að eðlisfari verið glaðvær og góð-
lyndur. Til þrjátiu og fjögurra ára ald
urs var hann vinnumaður hjá bónda,
sem hét Thoir.as Butterworth og átti
búgarð í grennd við borgina Bichoell
,í Ohio. Þá átti hann hest, og á laug-
ardagskvöidin ók hann til borgarinn-
ar til þess að eyða fáeinum klukku-
stundum í félagsskap annarra vinnu-
manna. Hann drakk nokkur bjór-
glös í borginni og hangsaði í veit-
ingasalnum Ben Head, sem var þétt-
skipaður vinnumönnum um helgar.
Þar var sungið og glösum skellt á
afgreiðsluborðið. Klukkan tíu ók fað-
ir minn heimleiðis, hyglaði hestinum
sínum fyrir nóttina og gekk síðan
til hvílu harðánægður með hlutskipti
sitt i lífinu. Þegar hér 'var komið
sögu, hafði honum ekki dottið > hug
að reyna að hækka i tigninni.
Vorið, sem faðir minn varð þrjátíu
og fimm ára, giftist hann moður
minni, sem var sveitakennari, og
næsta vor kom ég í heiminn, sprikl-
andi ög skælandi. Þá kom eitthvað
yfir hjónin. Þau Urðu metnaðargjörn.
Hin ameríska ástríða að komast
áfram i heiminum náði tökum á
þeim.
Það kann að vera, að móðir min
hafi borið ábyrgðina .Vafalaust hafði
hún lesið bækur og tímarit, þar eð
hún var kennari. Ég geri ráð fyrir,
að hún hafi lesið um hvernig Garfield
Lincoln og aðrir Ameríkumenn hófu
sig upp úr fátækt til frægða og
frama, og meðan ég hvíldi við hlið
hennar, þegar hún lá á sæng, hefur
hana ef til vill dreymt um, að ég
yrði einhvern tíma ráðandi maður
í þjóðfélaginu. Að minnsta kosti
fékk hún föður minn til þess að
segja upp vistinni á búgarðinum,
selja hestinn sinn og stofna sjálf-
stætt fyrirtæki. Hún var hávaxin, fá-
töluð kona, með langt nef og áhyggju
full, grá augu. Sín vegna krafðist hún
einskis, en hvað mig og föður minn
snerti, var metnaður hennar óseðj-
andi.
Fyrsta gróðafyrirætlun hjónanna
fór út um þúfur. Þau tóku á leigu
tíu ekrur af hrjóstrugu, grýttu landi
og hófu kjúklingarækt. Á þessum bú-
garði komst ég á legg, og þar fékk
ég fyrstu hugmyndir mínar um líf-
ið. Frá upphafi voru þær tengdar
ógæfu, og ef ég er þunglyndur og
gjarn á að horfa á skuggahliðar lífs-
ins kenni ég því um, að I stað þess
að eiga ljúfa og glaða bernsku, ólst
ég upp á kjúklingabúi.
Sá, sem enga reynslu hefur í þeim
efnum, getur ekki ímyndað sér,
hversu margt sorglegt getur hent
kjúkling. Hann kemur úr eggi, og
fyrstu vikurnar, sem hann lifir, er
hann eins og litlu hnoðrarnir á mynd
unum á páskakortunum, síðan verð-
ur hann viðbjóðslega ljótur, etur
býsnin öll af mjöli og korni, sem
faðir þinn hefur unnið fyrir í sveita
sins andlitis, tekur veiki, sem köJluð
er kólera eða einhverju öðru nafni,
stendur og horfir kjánalegum aug-
um á sólina, veslast upp og deyr.
Fáeinar hænur og einn og einn
hani, sem ætlað er að þjóna hinum
dularfulla tilgangi drottins, komast til
þroska eftir mikla baráttu. Hænurn-
ar verpa eggjum, og úr þeim koma
aðrir ungar, og þannig heldur hin
skelfilega hringrás áfram. Þetta er
allt ótrúlega flókið. Það hlýtur að
vera að flestir heimspekingar hafi
alizt upp á hænsnabúum. Maður vænt-
ir sér svo mikils af kjúklingi, og
vonbrigðin verða því sár. Kjúklingar,
sem eru rétt að byrja lífsferilinn
virðast svo vitrir og fjörugir, en eru
í rauninni óttalega heimskir. Þeir eru
svo líkir fólki, að þeir rugla mann
í skoðunum á lífinu. Ef sjúkdómur
verður þeim ekki að bana, doka þeir
við, þangað til vonir eigandans eru
vaknaðar til fulls, og þá álpast þeir
undir vagnhjól, merjast til dauða og
hverfa til skapara síns. Óværa sækir
á þá, og það verður að eyða mikl-
um fjárfúlgum í læknislyf handa
þeim. Síðar á æfinni hef ég séð að
bókmenntir hafa verið ritaðar um
það, hversu afla megi auðæfa með
því að ala upp kjúklinga. Þær eru
ætlaðar guðunum, sem eru nýbúnir
að eta af skilningstré góðs og ills.
Þessar bókmenntir eru fullar af
bjartsýni og yfirlýsingum um, að sak-
laust og metnaðargjarnt fólk, sem
á nokkur hænsni, fái miklu áorkað.
Láttu þessar bækur ekki villa þér
sýn. Þær voru ekki skrifaðar fyrir
þig. Farðu og leitaðu að gulli í freðn-
um hæðum Alaska, treystu heiðar-
leika stjórnmálamanns, trúðu, ef þú
714
TÍMINN - SUNMUDAGSBLAÐ