Tíminn Sunnudagsblað - 02.10.1966, Side 2

Tíminn Sunnudagsblað - 02.10.1966, Side 2
 t f»“ mm Nú er ekki sömu vandkvæöum bundið og áður að bjarga mannslífum. Á Egilsstöðum er flugvöllur,: og af 1- miklar vélar ryðja snjónum burt af flugbrautunum,jíótt fannalög séu. ^ SIGIV8AR ÞORMAR: Erfiður siúkraflutningur Það mun hafa verið um miðjan janúarmánuð 1932, að kona mín, Sig- ríður Halldórsdóltir á Skriðuklaustri, varð alvarlega veik. Bjarni Guð- mundsson, héraðslæknir á Brekku 1 Fljótsdal, sagði mér, að hann hefði reynt allt, sem hægt væri til þess að bjarga lífi hennar og myndi það ef til vill takast, ef hún kæmist til Reykjavíkur í Landspítalann innan fárra daga. Nú vildi svo til, að strandferða- skipið var nýfarið frá Austfjörðum til Reykjavíkur og því ekki um neina ferð að ræða næstu vikur. Það var þvl með döprum huga, að ég hélt heimleiðis um kvöldið frá því að fylgja lækninum. Ég gat ekki sætt mig við, að kona mín ætti í blóma lífsins að hverfa frá mér og fjórum ungum sonum, einungis vegna þess, hvar við bjuggum á landinu. En þarna voru mörg hundruð kílómetrar á milli lífs og dauða. Þegar heim kom, og ég hafði gefið konu minni þau meðöl, sem læknir inn hafði fyrirskipað, opnaði ég út- varpið, því að fréttir voru að byrja. Hið fyrsta, sem ég heyrði, var +il- kynning frá Eimskipafélagi íslands um að áætlun Lagarfoss, er væri á leið frá Kaupmannahöfn til Reykja- víkur væri breytt þannig, að hann kæmi við á Reyðarfirði og færi þaðan beint til Reykjavíkur. Var gert ráð fyrir, að hann yrði á Reyðarfirði eftir tæpa þrjá sólarhringa. Ég sá strax, að þarna opnaðist leið, þótt tæpt stæði, þar sem fara varð um 75 kílómetra veg til Reyðarfjarðar um hávetur í misjöfnu leiði. Varð því að hafa hraðan á með allan útbúnað. Fyrst var að smíða lokrekkju, fóðr- aða innan og stoppaða til hlýinda.. Síðan búa farartæki og fá hjálpar- menn. Var öllu þessu lokið upp úr hádegi næsta dag og þá strax lagt. af stað. Fljótsdalurinn var snjólaus og því víðast hvar unnt að nota kerru. En alltaf þurfti að bera rúmið spöl og spöl, og hafði ég til þess átta menn, því að það var þungt með öllum út búnaði. Var þannig haldið áfram að Brekku og gist þar. Árla næsta morg uns var ferðinni haldið áfram, en nú skipt um farartæki og farið á smábát út Lagarfljót. íshroði var í fljótinu og fór vaxandi eftir því, sem utar kom. Þegar komið var út hjá Hafursá, varð ekki lengra komizt vegna íshroð ans. Var þá lagt að landi. Þar voru þá komnir hjálparmenn mínir úr Fljótsdal. Bárum við rúmið heim að Hafursá, hvíldum þar og þágum hress ingu. Snjólétt var um Hafursá og valin kerra. Var síðan haldið út með fljót- inu. Smátt og smátt þyngdist færið eftir því, sem utar dró. Þegar út að Grímsá kom, varð ekki komizt lengra vegna ófærðar. Þar var þá kominn Hallgrímur bóndi á Ketilsstöðum með sleða. Var nú enn skipt um farartæki og gekk nú allt greiðlega að Ketilsstöðum. Var þá mjög tekið að líða á daginn. Milli Ketilsstaða og Egilsstaða var slarkfært á bíl. Ég talaði við Svein bónda á Egilsstöðum og bað hann að senda bíl, sem hann gerði tafarlaust. Biðum við á Ketilsstöðum í bezta yfirlæti í tæpan klukkutíma, og er bíll- inn kom, var strax haldið til Egils- staða. Ég náði sambandi við af- greiðslu Eimskipafélagsins á Reyðar- firði og fékk að vita, að Lagarfoss yrði á Reyðarfirði seinni part næsta dags. Var þá ákveðið að gista á Egils- stöðum, én taka daginn snemma. Fengum við þarna hina beztu hvíld, og var allt gert, sem unnt var til þess að greiða fyrir okkur. í dögun næsta morgun var ferðinni haldið áfram á bíl. Var gert ráð fyrir, að þílfært væri þriðjung leiðarinnar, en til Reyðarfjarðar frá Egilsstöðum eru 25 kílómetrar. Ferðin gelkk vel í upphafi. En það hafði snjóað um nóttina, og þegar kom nokkuð upp í hálsinn, þyngdist iærðin og bíHinn byrjaði að spóla. Að lokum komst hann ekki lengra. Nú voru góð ráð dýr, því að ekki voru eftir nema tvö til þtíjú hundruð metr Framhald á 862. síðu 842 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.