Tíminn Sunnudagsblað - 02.10.1966, Page 21

Tíminn Sunnudagsblað - 02.10.1966, Page 21
Aldrei er þarna steikjandi hiti. Lofts lagið er hlýtt og heilsusamlegt. — Allt er þarna ánægjulegt, kyrrt og hlýtt." Eyjarnar eru flestar skammt frá landi, en lengst úti eru tvær allstór- ar eyjar, sem heita Maley og Sand- sker. Á báðum eyjunum eru góðar hafnir, sérstaklega ætlaðar fiskiskip- um, er stunda veiðar í Helsingja- botni. Einkum var mikið af alls kon- ar veiðiskipum fyrrum á meðan Eystrasaltssíldin, sem Svíar kalla strömming, óð þar uppi; Um þennan eyjaklasa með öllurn sínum sundum og grynningum er mjög hættuleg siglingaleið. Við kirkj- urnar á báðum stærstu eyjunum eru í kirkjugörðunum mörg leiði sjó- manna, sem farizt hafa í hauststorm- um á þessum hættulegu siglingaleið- um og eiga sinn síðasta dvalarstað í kirkjugörðum þessarar fögru eyja. Á sumum eyjunum eru stórar sög- unarverksmiðju, sem taka við timbr- dnu, sem Tornelfhr ber til sjáfar. Þessir þættir um Lappland og Tornedalinn verða ekki lengri að sinni, en gjarnan vildi ég hafa tæki- færi til að koma aftur á þessar slóð- ir. — Lappar, sem ég kynntist, sögðu mér, að næst skyldi ég koma í sept- ember eða október, þegar hreindýr- unum væri aðallega slátrað. Sögðu þeir, að hreindýranýru væri hinn bezti matur, sem þeir hefðu bragðað, og yfirleitt sögðu þeir að innmatur úr hreindýrum væri lostæti. Auðvitað kynntist ég Löppum lítið á þessari hraðferð minni um hérað- ið, — þennan landshluta, sem er álíka að flatarmáli og ísland allt, en ég kynntist allmikið sænsku og fínnsku fólki sem þarna er búsett, og mér féll það mjög vel í geð. Það var gestrisið og sérstaklega elskulegt í framkomu, fróðleiksfullt og hæfi- lega spurult um ísland og íslenzka hagi. í Kiruna var mér sagt, að í manna- minnum hefði enginn íslendingur þar komið á undan mér, nema dr. Sig- urður Þórarinsson. Það var árið 1946, sem ég var þarna á ferð, og ef til vill hafa einhverjir íslendingar komið þar síðan. Eg gat þess í upphafi, að á þeim tímum, sem ísland fannst og byggð- Sst, hafi Lapparnir, sem þá voru al- mennt kallaðir Finnar (sjálfir nefna þeir sig Sama) verið bendlaðir við galdra og fordæðuskap. — Ekki vil ég segja, að slikt sé gert enn, enda hefur norræn nienning numið land mcðal Lappanna, en þó tel ég, að ennþá hvíli á Löppunum galdraorð- rómur, sérstaklega hjá nágrönnum þeirra, fátækum fjallabændum af Viðarhöggsmenn í Tornedalnum að starfi að vetrarlagi. Eyðikofi frá Fyrrihluta tuttugustu aldar. Hér bié fólk, sem át(i fárra kosta völ og engra góðra. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 861

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.