Tíminn Sunnudagsblað - 24.12.1967, Blaðsíða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 24.12.1967, Blaðsíða 11
Katrín keisaradrottning undi sér viS ástir og fagrar bókmenntir i hátimbruðum laukagarSi Kremlar, meðan íslenzki bóndinn frá Geitastekk „vogaSi líf og blóð" fyrlr hana í sjóorrustum. Haraldur Guðbergsson rissaði fyrir okkur hosiló hvors um sig. við óttann við, að valdastreitumenn mundu beita manni hennar fyrir sig við nýja stjórnarbyltingu. Af bréfi, sem fannst að henni látinni, sézt, að Alexei Orloff muni hafa framið verkið í greiðaskyni. Og þarna var hún komin í há- sætið, ein hinna fáu kvenna sög- unnar, sem hvorki þágu vald úr hendi eiginmanns né föður. í átján ár hafði hún bitið á jaxlinn við ótal auðmýkingar. Nú skyldi hún ríkja ein, 33ja ára gömul. Og hún tók stjórnarstörfin alvar lega. Pétur mifcli gaf Rússlandi líkama, Katrín mikla gaf því sál, stendur einhvers staðar. Hún vildi beita sér fyrir andlegum framför- um í landinu. Hún ýtti undir allt sem orðið gat til þess að vekja Rússum áhuga á frönskum bókmenntum, frönsk- um ballett og franskri háttvísi, en lengra þótti á þeim tímum ekki hægt að jafna. Hún var ekki of- stopafuil eins og Pétur. Pyndingar voru afnumdar, en í staðinn tekið ráð, sem ekki var mMu betra: Að senda sakamenn til Síberíu. Og ánauðugum bændum stórfjölgaði um hennar daga, því af örlæti gaf hún vinum sínum og ástmönn- um geysistórar krúnujarðir með fjölda leiguliða, sem fram að því höfðu notið forréttinda. Kjör bænda langaði hana tli að bæta, en henni for sem oss fleiri: Sætleiki auðs og frægðar slævði bjarta egg hugsjónanna. Sannast sagna er það fyrir harð- svíraða utanríkisstefnu, sem hún er frægust orðin. Hún lét fram halda sókn Péturs mikla við Svarta haf. Þar með skenkti hún þegnum sínum nýjar, langþráðar hafnir, og enn má þess geta, að meðal þeirra héraða, sem Tyrkir urðu að rýma, var hið olíuauðuga Bakú. Þaðan kaupa nú tslendingar olíu og greiða með fiski. Og til landvinninganna naut hún hjálpar eins víðförulasta íslend- ings, er uppi hefur verið, Árna Magnússonar frá Geitastekk. Árni var á dönsku herskipi, sem sent var Rússum til hjálpar. Sagðist Árni heldur vilja þéna Katrínu í tíu ár en þeim dönsku í fimm daga. Því miður endaði hans hreystilega þjónusta með þeirri ólukku, að hann rifbeinsbrotnaði og fór úr mjaðmarliði, þegar hann ætlaði að skjóta úr fallbyssu til heiðurs rússneska flotaforingjanum. Sá mun enginn annar veríð hafa en Alexei Orloff, banamaður keisar- ans. En Árni hafði svarið þess eið að voga skyldi líf og blóð fyrir henn- ar majestet, og mælir ekkert styggðaryrði í hennar garð. Meiðsl- in voru svo mikil, að hann lá með fáríegum hljóðum, en var þó hræddastur um, að danskir félagar mundu henda hon-um í sjóinn til að losna við að hlynna að honunn. Þegar hann loks fékfc hjúkrunar- mann, át sá frá honum allan mat. Á endanum komst Árni þó til Kaupmannahafnar og segist hafa dvalizt þar í tvö ár upp á keis- arinnunnar kost, svo einhverju hef ur hún launað honum hollustuna. í efsta þrepi. En keisaradrottningin, sem svo var vold-ug, að bóndi úr órafjarlæg um heimskrika var albúinn að leggja líf sitt í sölurnar fyrir nafn hennar eitt, var kalin á hjarta eft- ir blóðugan hráskinnaleik valda- streitunnar. Einmitt um þetta leyti var hún að skipuleggja skipting-u Póllands í samráði við Prússland og Austurríki. Innanlands efndu banhungraðir bændur til óeirða, en hún lét bæla þær niður með harðri hendi. Hugsjónirnar um bætt kjör alþýðu, sem gegnsýrðu lestrarefni hennar á yngri árum, vor-u nú gleymdar. Þær höfðu orð- ið að lúta í lægra haldi fyrir ör- yggi valdhafans. Stjórn Katrínar studdist við yfirstéttirnar. Aðalinn mundi hikla-ust steypa henni, ef hún reyndi að deila gífurlegum auði hans með berfættum tötra- múg landsins. En Katrín, sem dagfarslega var Framhald 4 1150. siðu. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 1139

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.