Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1968, Síða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1968, Síða 7
Snældustóll eða snældustokkur. Áhugl yngrl kynslóSarinnar á þióSlegum grip- um fer vaxandi. ÞaS er ekki slegiS hendi móti rokk sem fermingargjöf, nú eru snældustokkar einnig komnlr á markaSinn. Kría á steini. Hlaut verSlaun í sam- keppni HeimilisiSnaSarfélagsins fyrir nokkrum árum (Ágústa Snæland gerSi úr þorskbeini). Þótt Gerður hafi nóg aS gera við verzlunina íslenzkan hei'milis- iðnað og blaðið Huig og hönd, þá hefur henni samt únnizt tími til að leiðbeina konum dálítdð með framsögn. Hún er sjálf listfengur Ijóðalesari, og var tvisvar fjall- kona á þjóðhátíðardaginn. „Það háir konum“, segir hún, „við félagsmálastörf, sem þær taka vaxandi þátt í, hve þær eru feimn- ar að tala nema rétt í sínu eigin horni. Ég hef verið með níu til fíu kvenna hópa, úr kvenfélagi Langhoitskirkju og víðar, og hef haft mjög gaman af því. Konurn- ar hafia í upphafi verið rauðfiekk- óttar í framan af feimni, en þeg- ar farið er að athuga málið, hefur komið í Ijós, að margar hafa prýðisraddir. Þær háfa lesið kvæði eða fttutt örstutt frumsamið efni. Þær hafa orðið svolítið frjálsiegri Oig hugrakfcari, þegar þær finna, að þær geta staðið upp og tjáð sig. En sjálf þykist ég vera hætt öllu svona. Það, er svo oft, sem maður þarf að velja eða hafna í iífinu. Ég tók vefnað fram yfir lleiklistartilraunir, og vef mér til sáiubótar — þegar ég hef tíma. Þetta er firnagömul list, og örlög manna voru ævinlega ofin, ekki satt. Það er skemmtilegt að setja upp vef, og feikna gaman að skjóta í skil og handfjalla skytt- ur og skeiðar. Þunglyndið leggur á flótta samstundis. Dönsk starfs- systir hefur lýst þessu einkar skemmtilega. Hún segir: „Hversu dýrðleigt að sjá liti og form gróa saman í heild. Óvið- jafnanlega og blessaða daga á vef j- arkonan, þrungna starfi, hamingju og íhuigun.“ „Og eins og ég hef svo oft rek- ið mig á,“ segir Gerður, „þá blund- ar einhver sfcöpunarþrá í hverj- um manni, og þeim opnast nýir heimar, sem uppgötvar, að hann hefur eigin höndum skapað fagr- an hiut.“ Inga. c> Næsta sumar gangast heimilisiðnaðar- féiög Norðurlanda fyrir sýningu á smiðajárni á þingi f Sönderborg á Jótlandi. Hér er íslemkur steikarteinn, búinn til að tilhlutan íslenzka félags- ins og seldur í verzlun þess. Á hand- fanginu er gamall galdrast fur. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.