Tíminn Sunnudagsblað - 14.07.1968, Blaðsíða 6
KENNED YÆTTIN
06 ÖRLÖG HENNAR
Patrekur Kennedy hefur maður
heitið. Hann var beykir að at-
vjnnu og svo fátækur, að hann
sér ekki annað ráð vænná en
flýja ættland sitt, írland, fyrir
nér um bil 100 árum, til þess að
'orða sér og fjölskyldu sinni frá
ungurdauða. Öll lifðu þau af sjó-
erðina, 8n baráttan fyrir því að
á sér og fjölskyldu sinni fyrir
brýnustu þörfum, gekk svo nærri
honum, að hann andaðist þrítug-
ur, en eftir lifðu kona hans og
börnin fjögur.
Af þremur þeirra fer engin
saga, en Patrekur, sem fæddist í
jan. 1862. varð mikill myndarmað-
ur í sjón og raun. Hann var hár
vexti, ljóshærður, bláeygur og
prýddur fögru skeggi á íullorðins-
árum. Hann var hafnarverkamað-
ur í Boston á unga aldri, kom sér
alls staðar vel meðal starfsbræðra
sinna, hætti fljótlega við verka-
mannavinnuna og stofnaði drykkju
krá, að óvilja móður sinnar, sem
var siðavönd og trúuð, en krá þessi
varð síður en svo nokkurt lasta-
bæli, heldur varð veitingamaður-
inn vinur og veluhnari viðskipta-
manna sinna og blómgaðist fyrir-
tæki hans jafnt og þétt.
Patrekur lét ekki þar við sitja að
selja fátækum hafnarverkamönn-
um áfenga drykki í einni krá,
heldur stofnaði hann margar, varð
stórkaupmaður, og seldi einkum
sterk vín, stofnaði kolaverzlun og
síðan banka og græddi á tá og
fingri. Auðvitað voru honum fal-
in ýms t.rúnaðarstörf og komst
hann til vags og metorða í Bost-
on, og í stjórn borgarinnar. Það-
an lá leiðin til þingmennsku og
fláug hann í gegn og varð öld-
ungadeildarþingmaður. En þó að
svona greitt gengi fyrir honum að
öðtast veraldarlán og upphefð,
hélt hann áfram að reynast vel
löndum sínum fátækum og um-
komutausum, hjálpa þeim eftir
megni af forsjá og viti.
Jafningi hans meðal landa hans
að fögru veraildargengi var aðeins
einn í Boston, hét sá maður Jón
Fitzgerald og var af álíka útaf-
dauðu bergi brotinn sem Kennedy.
Þeir voru keppinautar, ekki ein-
ungis um upptiefð og gengi, held-
ur einnig um vinsældir, og mátti
eikki á milli sjá, hvor betur hafði.
Kennedy varð öidungadeildarþing
maður, Fitzgerald borgarstjóri í
Boston. Stóðu þeir hæst allra borg
arbúa og þýddi engum að etja
kappi við þá.
Elzti sonur Patreks, Jósef, fædd-
ur 1888, var hinn fyrsti 1 ætt þess-
ari, sem naut langskólagöngu, varð
stúdent og gekk í Harwardtháskóla
í nokkur ár, en ekki er þess get-
ið, hvort hann lauk prófi, mun
svo ekki hafa verið. En fegurstu
stúlku, sem þá var í borginni
Boston fékk hann fyrir konu. Hét
hún Rósa Fitzgeratd og var dóttir
borgarstjórans. * Álitið var, að vin-
fengi milli gömlu mannanna,
Kennedys, og Fritzgeralds, hafi
verið minna undir niðri en á yfir-
borði, áður en mæðgirnar tókust.
Hjón þessi Iifa enn háöldruð, og
er hann nú farinn að heilsu, en
bæði hafa þau orðið að sjá á bak
fjórum af börnum sínum með vof-
eifíegum hætti, og hið fimmta,
dóttir, hefur lengi dvatizt á geð-
veikraspítala, líklega ólæknandi.
Elzti sonurinn, Jósef, sem virt-
ist bezt til foringja fallinn af
bræðrunum fjórum, var flugmað-
ur í síðari heimsstyrjöld, og var
flugvél hans skotin niður yfir
Þýzkalandi árið 1944, og fórst
hann 27 ára gamall. Ein af systr-
unum fórst í ftugslysi, og frá af-
drifum Jóns og Róberts er ekki
þörf að segja.
En Jósef Kennedy auðnaðist að
ávaxta arf sinn svo vel, að fyrir
John F. Kennedy
nokkrum árum voru eigur hans
taldar nema 200—400 milljónum
dotlara, og ekki hafa þær minnk-
að síðan. Sonarsonur þess manns,
sem ekki biasti við annað en hung-
urdauði, ef honum hefði ekki tek-
izt áð komast úr landi, er nú einn
af auðugustu mönnum. sem uppi
eru.
Hann var fyrst skipaður af rik-
inu eftirlitsmaður með starfsemi
banka í Masachusetts og hafði
1500 dollara í árslaun
Þetta kom honum að góðu haldi
síðar, þegar hann varð forseti
banka þess, sem faðir hans stofn-
aði: Columbia Trust, og brátt fékk
tvö útibú Á árum hinnar fyrri
heimsstyrjaldar hafði hann nána
samvinnu við vellauðugan iðju-
hötd, Oharles M. Schwab, og gerði
áætlanir um skipasmíðar skipa-
smíðafélags hans, Betlehem Steel.
Hann græddi mitljónir á þessu og
varði sumu af því til jarðakaupa
á Florida. Þetta seldi hann svo
auðkýfingum til að hafa fyrir sum
ardvaiarstaði. Þegar stríðinu var
lokið, gekk hann á „gróðabragða-
námskeið“ í Wall Street og fimm
árum síðar, þegar hann mátti kall-
ast útlærður í þeirri kænsku, sem
af því mátti læra, hóf hann fyrst
fjármálaferil sinn svo um munaði.
Málfríður Einarsdóttir tók saman
534
T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ