Tíminn Sunnudagsblað - 29.03.1970, Blaðsíða 24
OSTA ^
BAKKINN
er einstaklega skemmtil'egur og jjölbreytilegur réttur. Tilvalinn sjónvarps-
réttur, daglegur eftirréttur, milli eða eftirréttur við hátíðleg tcekifœri og sér-
réttur á köldu borði. Reynið ostabakka - það er auðvelt.
Ostabakki
Raðið saman á fat ostum og ávöxtum eða græn-
meti og berið fram sem eftirrétt. Gott er að velja
saman milda og sterka osttcgund. Þegar ostabakki
er borinn fram scm daglcgur eftirréttur, eru tvær
til þrjár osttegundir settar á bakka ásamt einum til
tveim tegundum af ávöxtum eða grænmeti, ost-
stykkin borin fram heil, svo hver og einn geti skorið
sqr ostbita eftir vild.
Á fiátíðaborðið má skera oststafi, teninga og
sneiðar af ýmsum osttegundum og raða smekk-
Iega á stóran bakka ásamt ávöxtum eða grænmeti.
Á meðfylgjandi mynd má sjá: Gráðost, camembcrt
ost, stykki af ambassador, tvær ostsneiðar vafðar
upp ofan á ostinum, valhnetukjarna stungið
tilsitterost, skorinn í þykkar, þríhyrndar sneiðar,
teninga af goudaosti ásamt grænum og rauðum
kokkteilberjum, stungið í appeisínu og teninga af
sterkum goudaosti með mandarínUrifi. Ennfremur
eru á bakkanum appelsína, banani, epli og vínber.
Fallegt er að skreyta mcð grænu grænmeti, svo sem
steinselju, dilli eða blaðsalati, þegar völ er á því.
Ýmsa fleiri ávexti og grænmeti má hafa með ost-
unum á ostabakka, svo sem lireðkur, tómata,
agúrkur, ólífur, döðlur, gráfikjur, perur og ananas.
Ostur er Ijúfferig og holl fœða - ostur einn sér eða ostur sem krydd. Eigið
ávalt nokkrar osttegundir heima. Þér getið valið úr yfir 20 tegundum.
Reynið fleiri osttegundir.
OSTA OG SMJÖRSALAN SF