Tíminn Sunnudagsblað - 13.01.1973, Síða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 13.01.1973, Síða 2
t»eir íslendingar, sem nú eru um sextugt og voru aö nálgast tvitugsaldurinn á árunum 1930- 35 litu bjartsýnir og hugumglaö- ir til framtiöarinnar á þeim ár- um i rökstuddri von um aö þeir fengju aö lifa viö fullkomiö sjálfstæði og óskorað þjóðfrelsi á miklu framfaraskeiði kom- andi ára. Þeir litu á sig sem fyrstu kynslóð, er nyti þeirrar gæfu allt frá þvi 1262, er fengi aö njóta manndómsára i alfrjálsu, islenzku þjóðriki og yröi falin sú vegsemd og vandi aö stofna lýð- veldi, sem engan skugga er- lendrar ihlutunar bæri á. A þessum glæstu æskuárum þessarar kynslóðar var megin- þu ngi baráttunnar fyrir form- legu sjálfstæði að baki. Stjórn- málin voru orðin innlend og af- staða til innlendra mála skipti ntönnum i sveitir. Mesta fram- faratimabil islendingasögunnar var hafið með þeirri rikisstjórn, sem viö tók 1927. Framundan voru enn meiri framfarir, stærri sigrar. Það var bjart að lita til framtiðarinnar. En áður en varði dró bliku heimsstyrjaldarinnar á loft. Dagarog missiri hins fulla þjóð- frelsis urðu færri en skyldi á þessu skeiði. island var her- numiö allmörg ár. en bjartsýnin leit á það sem skrugguél. sem upp mundi birta. Menn sáu djarfa fyrir þeirri dagsbrún, er striði lauk. Erlendur her hvarf úr landi um sinn, og hvergi heyröist sú rödd, að lýðveldis- kynslóðin gæti hugsaö sér að hafa erlendan her i landi til langfranta. Það gat ekki sam- rýmzt þjóðf relsishugmy nd hennar. Um það var þjóðin sammála. Siðan gekk þjóðin i Atlants- hafsbandalagið mcð miklum svardögum fyrirmanna sinna um. að það mundi ekki hafa i för með sér erienda hersetu i land- inu, nema styrjöld geisaði, og hver einasti maður, sem fylgd- ist með þeim málum, vissi og veit þaö enn, að þjóöin hefði aldrei samþykkt inngöngu i hernaðarbandalagið, ef hún hefði vitað, að á eftir kæmi það, sem nú er orðin söguleg stað- reynd — að hér yrði erlendur her næstu áratugi. Sú stefna, sem mörkuð var,sem alger for- senda þátttökunnar var að hér yrði ckki erlendur her. Siðan sortnaði himinn enn, þótt ekki skylli saman yfir næstu löndum, og landsfeður töldu nauðsynlegt að leyfa er- lendum her bandalagsrikja stundarsetu i landinu, en svar- dagarnir, yfirlýsingarnar og forsendurnar voru enn, að hér yröi aðeins um fá missiri að ræða, herinn færi jafnskjótt og aftur rofaði til, og ekki kæmi til mála að þjóðin sætti sig við her- setu áratugum saman. Bjart- sýnin frá 1930 sætti sig við þetta i von um frjálsari tið áður en varöi. Samt situr herinn enn, þótt sæmitega friðvænt sé orðið i kringum okkur, og kynslóðin með þjóðfrelsishlutverkið frá 1930 er að verða gömul. Það eru nú mestu lifsvonbrigði margra þessara manna, að þeir fengu ekki að lifa þá alfrjálsu tíð, sem við þeim blasti 1930. Þeir fengu ekki að fullkomna það þjóðfrels- ishlutverk, sem þeir töldu sér falið. Margir þeirra hugsa að vonum svo, að betra hefði veriö að lifa i nokkurri hættu, fremur en skerða þjóðfrelsið, og sú skoöun hefur ekkert breytzt, að alfrjálst island og erlendur her i landi— frá hve miklu vinalandi sem hann er — eiga ekki sam- leið. Og þrátt fyrir aðgerðaleys- ið eru þeir enn fáir, sem lýsa því yfir, að þeir geti hugsað sér varanlega hersetu á frjálsu is- landi. En hvenær er hersetan orðin varanleg? Þegar kvnslóð- ir Iifa og deyja án þess að hafa þekkt land sitt án erlends hers, þá er hún orðin varanleg. Það dylst vist fáum, að al- mennt viðhorf til erlendrar her- setu er nú orðið annað en fyrir þremur áratugum. Sjálfstæði þjóðar á sér fleiri hættur en er- lenda áþján og hernaðarárásir. Sú hætta er cngu minni, sem fel- st i undanhaldi hugarfarsins, samdauninum, sem fylgir lang- varandi sambúð við ástand, sem sjálfstætt fólk taldi áður ósamboðið þjóðfrelsi sinu, svo aö menn láta sér það vel lynda. Þau álög höfum við þvi miður séð færast yfir, og mál er að vakna áður en alsofnað er. Við erum stödd við örlagarik þáttaskil um þessar mundir. Ef við gerum ekki gangskör að þvi á næstu missirum og árum að losna við herinn, er hersetan orðin varanleg, og það þjóð- frelsi, sem menn dreymdi um i árdegi lýðveldisstofnunar ekki lengur til. Sú rikisstjórn, sem nú situr og tók við eftir langlegu hersetustjórnar i landinu, hefur sett sér það takmark að koma i veg fyrir, að erlend herseta verði hér varanleg og gefa þjóð- inni færi á að eygja drauminn um alfrjálsa þjóð á ný. Allir flokkarnir, sem að henni standa, hafa þetta að yfirlýstu markmiði og hafa bundið þessar aðgerðir fastmælum i sam- starfssáttmála sinum. Allir höfðu þeir þetta á kosninga- stefnuskránni fyrir siðustu kosningar, svo að þjóðin kaus þá til þessa verks. Stærsti stjórnar- flokkurinn og forystuflokkur stjórnarsamstarfsins, Fram- sóknarf lokkurinn, hafði að undanförnu lýst þvi skýrt yfir á flokksþingum, aö hinn crlendi her ætti aö fara i áföngum, þótt tsland væri áfram I Atlantshafs- bandalaginu. Sú stefnuyfirlýs- ing varð beinlinis grundvöllur ákvæöa i stjórnarsáttmálanum. Þetta atriði — brottför hersins i áföngum — var lika eitt af átta meginatriðum i kosningastefnu- skrá Framsóknarflokksins. Af þessu öllu er augljóst, að Fram- sóknarflokkurinn hefur i senn meginskyldu og mestan áhuga á þvi, að þetta stefnumark hans náist. Þess vegna geta nú vonir glæðzt á ný — vonir um herlaust og alfrjálst land, en þó i góðu samstarfi við nábýlisþjóðir. Aðeins eitt getur komið i veg fvrir, að þetta þjóðfrelsismark náist nú, og það er, að nýjar og geigvænlegar heimsstriðsblikur færist á loft. AK Við horfum fram til fulls þjóðfrelsis án erlendrar hersetu v / 26 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.