Tíminn Sunnudagsblað - 13.01.1973, Síða 20
Jónas Jósteinsson sendir
þættinum linu og segir, að talið
hafi verið fyrir norðan, að
Bjarni Gislason, Skagfirðingur,
hafi ort þessar visur:
lllt er að halla á ólansmann,
það ætti valla að gera.
I>að hafa allir eins og liann
einhvern galla að bera.
Kæla heitt og hita kalt,
heimurinn er laginn.
I>ótt það beri ekki allt
upp á sama daginn.
Eirikur Einarsson, alþingis-
maður frá Hæli var sem þjóð
veit. hinn slingasti hagyrðingur
og mikill húmoristi. Hann brá
fyrir sig ýmsum rimleikjum, og
til marks um það gætu verið
eftirfarandi þuluvisur:
Jóliunn, Jóhann, Jóhann.
ég vil ekki skó 'ann
til þingmennskunnar þó 'ann
þykist eiga Flóann.
A sá að annast kjóann
sem ót i þetta dró ’ann
sitji við sama nóann
séra Gísli og Jóhann.
I>iaukiim. þó að snjói 'ann,
l>orrinn liður og góan
ót um audans inðann
aftur syngiir lóan.
Kélagsandi um Flóann.
fátæklinga rói ’ann
Eins og grasið grói 'ann
Gisli styðji Jóhann.
t tilefni af þvi, aö birtar voru
hér i þættinum i haust nokkrar
visur úr sjóði Ólafs Jónssonar i
Gróðrastöðinni á Akureyri frá
námskeiðshaldi á Hólum i
Hjaltadal, sendir Jakob Einars-
son á Dúki i Skagafirði
þæltinum alllangt visnabréf,
þar sem hann rifjar upp
minningar og visur frá þessu
bændanámskeiði á Hólum
veturinn 1925 eða fyrir 48 árum,
en þá var hann Hólasveinn.
Hann segir m.a.
,,Þarna var margt manna
saman komið og þar á meðal
snjaliir hagyrðingar svo sem
Stefán Vagnsson á Hjalta-
stöðum, séra Tryggvi Kvaran á
Mælifelli, Friðrik Hansen á
Sauðárkróki, Jónas Jónass. frá
Hofdölum og fleiri. Þarna var
lika Skagfirzki bændakórinn,
sem söng við hrifningu
áheyrenda. Siðari hluti nám-
skeiðsdaganna voru haldnir
málfundir og ritaðar fundar-
gerðir. Margar visur flugu um
fundarsalinn þessa daga, svo
sem segir i þessari visu:
Fæðast stef i fundarsal
fljúga flr andans leynum.
Skagfirðinga skáldaval
skeinmtir llólasveinum."
Séra Tryggvi Kvaran kvað
þessa þakkarvisu til Skagfirzka
bændakórsins:
Ekkert hressir lijarta i þjóð
liarini og trega þrungiö
eins og að heyra listaljóö
af listamönnum sungið.
Friðrik Hansen kvað þennan
lofsöng um Hólastað:
llelgan mátt aö Ilólum dró,
hjartans þátt að spinna.
Æðasláttinn út að sjð
alltaf mátti finna.
Saga Hðla i IIjaltadal
hlúir skólablóma,
yfir ból og bjarkasal
breiðir sólarljóma.
Rætt var allmikið um notkun
tilbúins áburðar á námskeiði
þessu. en hún var þá litt þekkt i
sveitum landsins. Um það kvað
Friörik Hansen:
Þúsund sölt á þúfu og laut
þarf a öllum túnum
til að ala upp ágæt naut
og auka mjólk i kúnum.
Mörgum þótti efnafræði bú-
fræðinganna torskilin og þurr,
og um það kvað Jónas frá Hof-
dölum:
Verka á andann eins og klór
cfnafræðiræður.
Eeiðið mig nú i lifsins kór
Ijúfir söngvabræður.
Eitt fundarkvöldið kom til
fundarstjóra tillaga, sem
honum gekk illa að lesa. Þá var
þessi visa kveðin:
Menntun þokast fjær og fjær
að flestum þrengir skórinn.
Er ei bænarbókarfær
blessaður fundarstjórinn.
Margar visur aðrar sendir
Jakob á Dúki frá námskeiði
þessu. en fleiri skulu ekki
tiundaðir hér að sinni.
Fyrir allmörgum árum
annaðist hinn landskunni og ný-
látni hagyrðingur, Guðmundur
Sigurðsson, kveðskaparþátt i
útvarpinu og fékk sér til
fulltingis ýmsa snjalla
hagyrðinga. Auk þess komu
sjálfboðaliðar til leiksins og
sendu visu og visu, oft og einatt
skens nokkurt um snillingana i
visnaþættinum. Skúli Bene-
diktsson kennari, þá i Ólafsvik,
skrifaði þeim snillingum bréf i
óbundnu máli og bar við getu-
leysi sinu til skáldskapar. Guð-
mundur svaraði Skúla með
þessari visu:
Orðsins gandur ekki snar
er að vanda staður.
Heilagur andi ekki var
okkar bandaniaður.
Skúli svaraði með eftirfarandi
visu, þar sem hann vék að
stórnm31aástandinu i von um að
finna snöggan blett á
snillingunum:
Enn er vandinn kratakyns,
klikustand og daður.
spilitur andi ihaldsins
er þeim bandamaður.
Guðmundur mun þá hafa
svarað Skúla með þessari visu:
Við ilialds kórbak kratar sofna
og kúra þar til frambúöar,
en framsókn hyggur helzt að
stofna
til hneykslanlegrar sambúðar.
Þetta var vist á timum við-
reisnarstjórnarinnar. og skal
ekki lengra haldið i visnaþætti i
dag.
Gnúpur
V.
44
Sunnudagsblaö Timans