Tíminn Sunnudagsblað - 11.02.1974, Page 8

Tíminn Sunnudagsblað - 11.02.1974, Page 8
a&eins á orðin Vinstri og Hægri. Fyrsti stafurinn i orðinu Vinstri er þri- hyrningur og fyrsti stafurinn i orðinu Hægri er ferhyrningur. Þessar tvær frummyndir i orðunum eru mjög stór þáttur i hugtökum þeirra. Og i dag ráða þessar tvær frumm'yndir mjög miklu i stjornmálum. Verkamaðurinn er auðvitað til Vinstri. Þegar sagt er á Paistosdisknum, að hugur mannsins hafi vaxið til vinstri, er meint, að áhrifa þrihyrningsins i táknmálinu hafi farið að gæta meira. All: X Hófur. Hvað er nú þetta? X getur varla verið Hófur Hests, þvi eins og allir vita er hófurinn hringur. En er hann bara hringur? Hófurinn er járnaður og skeifa er nelgd neðan á hann. Skeifa er Xeifa, og jafnvel þótt hún liti ekki þannig út, býr hugtakið til X i huga mannsins, sem leggst yfir Hófinn. Þegarbóndinn járnaði hestinn sinn, setti hann X yfir 0. Hið sama gerir maðurinn, þegar hann klæðir sig i Skó. Þá setur hann X yfir Ilina, þ.e. X yfir L. A12: K var Ar Drekinn i Likama Manns. Við skulum aðeins rannsaka, hvar á likama mannsins K er staðsett. Við höfum (af algengustu og sst notuð orðunum) Kálfi, Haka, Kinn, Kok. Kálfi er K-Álfur eða K-stafur. Ef horft er aftan á kálfa mannsisins, kemur fram mynd svipuð og V. Hakan er einnig svipuð V og Kok mynnir á trekt, sem á vissan hátt hefur i sér stafinn V. Kinn er aftur á móti svipuð stafnum C (K), en i Ensku er orðið Kinn hugtakið Haka. Við erum nú komin að einum mesta leyndardómi, sem til er i tungumáli okkar. t miklum fjölda orða, sem við notum, hefur stafurinn K mynd eins og V. Og til þess að gera langa sögu stutta þá hefur merkið Vi raun og veru þrjú hljóð: i hug mannsins: V,K og R.R er frumstafur þrihyrningsins, jafnvel þótt hann sé ekki ritaður þannig i dag. Nafnið Reykjavik er ekkert annað en þrihyrningar, og hrafnarnir (ravn) þrir, sem þriðji landnámsmaðurinn, Hrafna, Flóki blótaði, voru stafirnir þvi: R,K og V. Út frá þessari staðreynd koma ýms af þýðingarmestu hugtökum mannsins: Velja, KVer, KeRVi, Kvöl, VeRK og svo framvegis. Við segjum Kvar, þegar við spyrjum, Danir sleppa Káinu og segja bara Var? Það er rétt að benda á það hér, að hljóðið K er sennilega merkilegasta hljóð stafrófsins, þvi það tekur á sig allar frummyndirnar: Hringur i Q, KS i C, þrihyrningur i V, og erningur i K. En af hverju er K sem V kallað Drekinn i Likamanum? Það er sennilega komið út frá hugtakinu að drekka. Þegar við drekkum kyngjum, við við kokið, en þau hljóð, sem myndast við kokið tákna mjög oft hið óttalega og erfiða i atferli mannsins. Nefnið til dæmis orðin: Angist, Ongþveiti, Þrengsli, Dreki. A12: K var Ar Dreki i Likama manns, þýðir þá, að stafnum hafi verið breytt úr V i þær myndir, sem hann hefur i dag. A13: Óx til Hægri Hugur manns. Og af þeim ástæðum óx hugurinn i átt til fernings. A14: I Fiskur. Fiskur er stafirnir F og X: FX, eða tveir ferningar. Litið svo á stóra stafinn fyrir i: I. Hann er lika orðinn ferningur. A15: Og þá er komin regla i táknmál mannsins: 9 Heimar, 9 1 viðjur, Mjötviður mær, Búkur, Bak, Hur, Höfuð. Við skulum nú aðeins doka við og ræða svolitið betur um frum- myndirnar: hring, þrihyrning og ferning. Hvers vegna skipta þessar frummyndir svona miklu máli. Og af hverju þurfa þær að „þróast” i tungu- máli mannsins? Ég reyni að svara þessu i eins stuttu máli og ég get. Nútima sálvisindi eru sifellt að gera sér betur og betur ljóst, hve umhverfi mannsins á sér rikan þátt i hegðun hans og atferili. Það er umhverfi mannsins, sem mótar hann að miklu meira leyti, heldur en við gerum okkur almennt grein fyrir Það skiptir með öðrum orðum, geysilega miklu máli, hvernig umhverfi mannsins er og hvernig það litur út. Tákn mannsins eru hluti af umhverfi hans. 1 óspilltri náttúru Jarðarinnar er litið um þri- hyrninga og ferhyrninga. Þar er það fyrst og fremst hringurinn, sem öllu ræður. Fyrir fornmanninn eru þýðingarmestu hlutirnir i lifi hans hringir: Sólin, Tunglið, flestir ávextir, flest blóm, og flestar lifverur umlykjast boglinum, en ekki hornum þrihyrnings eða ferhyrnings. 1 sliku umhverfi eiga hyrningar mjög litla möguleika til þess að hafa áhrif á manninn. Þeir eru „ljótir”. Þetta lögmál lýsir sér til dæmis i þvi, að það fólk. sem er lengst frá þvi að hafa þá „meðalásjónu”, sem mannkynið hefur er kallað ljótt fólk. En þá kemur inn i reikninginn hin einstaklingsbundna reynsla hvers manns „Meðalásjóna” hans er þá það meðalandlit, sem skapast af þeim andlitum, sem hann hefur séð á lifsleið sinni. „Meðal- asjónan” er þvi afstætt hugtak, og það sem einn maður kallar ljótt, getur annar maður kallað fallegt. En það er umhverfi hvers manns fyrir sig og reynsla hans i umhverfi sinu, sem hefur skapað smekk hans. Fyrir um það bil 10.000 til 15.000 árum siðan snéri stór hluti þjóðflokka sér að akuryrkju og kvikfjárrækt. Þeir fóru af hinu gamla veiðimannastigi sinu og gerðust akuryrkjumenn og hjarðmenn. Þetta þróunarstökk gjör- breytir „meðaltals-” umhverfi þeirra. Nú verður umhverfi mannsins fullt af Sunnudagsblaö Timans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.