Tíminn Sunnudagsblað - 11.02.1974, Blaðsíða 24

Tíminn Sunnudagsblað - 11.02.1974, Blaðsíða 24
Maður, líttu þér nœr! Hugleiðingar út frá Yfirvaldi Þorgeirs Þorgeirssonar Skáldsaga borgeirs Þorgeirssonar, Yfirvaldið, hefur yfirleitt hlotið góöa dóma. Mönnum virðist koma saman um, aðsagan sé vel skrifuð, og margir telja hana standa framarlega meðal þeirra skáldverka, er birtust siðastlið- ið ár — og jafnvel fremst. Árni Bergmann og Gunnar Stefáns- son véku báðir að þvi i ritdómum sin- um um Yfirvaldið, að höfundur gerði sér far um að ná fram ákveðinni mannlifsmynd. Þeir bentu á, að hann gerði sér far um að láta þá skoðun koma fram, að fátækt og basl spillti mönnum og gerði þá að mis yndis- mönnum. Árni Bergmann lagði engan dóm á réttmæti þess boðskapar en benti á,að höfundi væri það mikið kappsmál, að það kæmist til skila. Gunnar Stefáns- son lét hins vegar liggja að þvi, að e.t.v. væri hæpin sú umsögn, að skáld- sagan væri unnin eftir beztu heimild- um og skilrikjum, vegna þess hver nauðsyn þætti að ná fram þessari mannlifsmynd. Hér er ekki ætlunin að, skrifa neinn ritdóm um Yfirvaldið. Útgefandi segir á kápu bókarinnar, að hún sé skarpt endurmat á þvi bændasamfélagi, sem við öll erum vaxin upp úr. Annars staðar héfur verið sagt, að þessi saga afsannaði rómantiskar lýsingar á fyrri öld. Nú er það mála sannast, að við lest- ur sögunnar finn ég enga óræka sönn- un þess, að það vaki fyrir höfundi að endurmeta aldarfarið, þó að ég sé fyllilega sammála þvi, að áherzla sé lögð á þjóðfélagsmynd, eins og áður var að vikið. Hins vegar er ekki hægt að loka aug- unum fyrir þvi, að höfundur leggur ekkert sérstakt kapp á að lýsa glöggt aðalpersónum sögunnar. Natan Ketilsson er sannarlega persóna, sem væri mikið söguefni. Hann er svo vel viti borinn, að flestum finnst hann ofjarl sinn og stendur af honum stugg- ur, þvi að margur trúir honum til að fara illa með menn, sjái hann sér hag I þvi. En þar lyftir Þorgeir engri hulu. Og að ástamálum Natans vikur hann naumast.en ætla má að þvi hafi verið 96 trúað, að Natan næði ástum hverrar þeirrar konu, sem hann girntist. Og þvi mun hafa ráðið eitthvað annað en hræðslan við fjölkynngi hans. Það er talað um hatur heillar sýslu á Birni Blöndal sýslumanni og að hann vilji hefna sin á sýslubúum. Ég held.að vanti heimildir og skilriki fyrir þvi að þetta sé rétt. Guðmundur Hagalin hef- ' ur vikið að þvi i ritdómi, að Blöndal sýslumanni sé ekki rétt borin sagan. Það er ekki mælt út i bláinn. Og sizt af öllu munu vera til haldbær rök fyrir þvi, að Guðmundur Ketilsson sé eini Húnvetningurinn, sem hafinn var yfir hefndarhug og meinfýsi þessa ömur- lega mannfélags. Sú mannlifsmynd, sem þessari sögu er eignuð, er ekki rétt. Það er satt og rétt, að harðúð og miskunnarleysi er mannskemmandi,og allir verða i neyð- inni nokkurn veginn að láta og þvi hef- ur skorturinn oft rekið mann til óyndisúrræða. En hitt er rangt, að i þessari sögu sé gert endurmat á is- lenzku þjóðlffi og almenn mynd ömur- leika og meinfýsi eigi að koma i stað þeirra rómantisku hugmynda, sem menn hafa gert sér um liðna öld. Hverjar eru þær rómantisku hug- myndir, sem hér er um að ræða? Ég hygg, að sé óhætt að treysta þjóðlifs- myndinni, sem birtist i Heiðarbýlis- sögum Jóns Trausta, svo að dæmi sé nefnt. Það er að visu hálf öld milli þeirra tima og Yfirvaldsins. En yfir- valdið lýsir timanum, þegar Jónas Hallgrimsson var að byrja að yrkja. Það lýsir þvi þjóðlifi, sem Jónas orti um og orti fyrir. Jónas var að visu rómantiskt skáld, en hann var lika raunsær náttúrufræðingur. Auðvitað vildi hann leiða huga þjóðarinnar að þvi sem fallegt var. Hann vildi opna augu hennar fyrir yndisleik og fegurð lands sins og lifs og það gerði hann með þvi að sýna þjóðinni það.sem var i raun og veru. Það er misjafnt hvað menn sjá og vilja sjá. En það er mikill missir að tapa fegurðarskyninu. Það er röng kynning, að fátækt og skorturgeri alla að illmennum. Þeir, sem fæddir eru á fyrstu áratugum aldarinnar, munu flestir hafa kynnzt fólki, sem þekkti skort og sultarlif af eigin reynd. Þetta fólk hafði yfirleitt ekki beðið tjón á sálu sinni vegna fátæktarinnar. Það var hvorki öfund sjúkara né beiskara en gengur og ger- ist. Eðlilega finnst mér ekki mikið varið I það að skrifa sögu til að endurmeta 19. öldina á þann veg að telja fólki trú um, að þá hafi allir verið illmenni. Bólu-Hjálmar kvað um Krahrepp, sem frægt er orðið: Eru þar flestir auniingjar, en illgjarnir þeir, sem betur mega. Hann vissi það, að aumingjarnir voru yfirleitt ekki illgjarnir, hvað sem kann að hafa mátt segja um hina. Ég trúi þvf heldur ekki, að Bólu-Hjálmar hafi verið þjófur, þótt fátækur væri. Ég held að skáldin okkar hefðu brýnna verkefni,þar sem væri að gera grein fyrir þvi.að afbrotum fjölgar svo mjög á siðustu árum, þrátt fyrir alls- nægtir. Það væri gagnlegt að vita. Þess vegna tel ég viðfangsefni Stefáns Júliussonar i Haustfermingu miklu betur valið. Þar er okkur að visu litið sagt um tildrög útigöngunnar, en okk- ur er sagt nokkuð um mótvægi, — raunar alls ekki litið. Skáld eiga að hafa innsæi. Þau eiga að skilja menn. Þau eiga að bregða ljósi á örlagaþætti sem liggja undir yfirborðinu. Þau eiga að vera skyggn, — sjá það, sem ekki liggur ljóst fyrir við lauslega yfirsýn, og gefa öðrum að sjá þetta með þvi að taka þá sér við hönd. Það gengur misjafnlega að gefa okkur sýn — þeim, sem ekki eru skyggn. Stundum segjum við,að það, sem sjáandinn lýsir, séu hugarórar og ofsjónir. Þvi trúum við ekki skyggnum i blindni. Þvi eru sjáendur stundum vanmetnir — stundum kannski ofmetnir lika. Umbótamenn fyrir 40 árum trúðu á langa almenna skólagöngu, rifleg fjár- ráð, gnægð tómstunda og frjálsræði i mörgum efnum. Þeim hefur tekizt að veita okkur þetta allt — almennt talað Flutt á bls. 94 Sunnudagsblað Timans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.