Morgunblaðið - 26.04.2004, Side 8

Morgunblaðið - 26.04.2004, Side 8
FRÉTTIR 8 MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Gjörið svo vel, nú ætlar foringinn að sýna ykkur Nokia-farsímann sinn, símann sem mr. Bush hringdi í. Útboð á verkfræði- og arkítektaþjónustu Að koma sjónar- miðum sínum að Ríkiskaup, Fram-kvæmdasýsla ríks-ins, Félag ráðgjaf- arverkfræðinga og Félag sjálfstætt starfandi arkí- tekta gangast fyrir mál- þingi þar sem fjallað verð- ur m.a. um framkvæmd útboða á verkfræði- og arkítektaþjónustu. Mál- þingið verður 27. apríl í húsnæði Verkfræðinga- félagsins, Engjateigi 9 og stendur milli 8.30 og 11.30. Morgunblaðið lagði af þessu tilefni nokkrar spurningar fyrir Magnús Baldursson lögfræðing. – Tilefni og tilgangur? „Tilefni þess að stofnan- ir ríkisins og hagsmuna- félög arkitekta- og verk- fræðistofa boða sameigin- lega til málþings er endurnýjuð útgáfa á handbók sem hefur að geyma yfirlit yfir lög og reglur er gilda um opinber innkaup ásamt útskýringum á þeim. Hin síðari ár hefur áherslan verið á útboð- um þegar hið opinbera kaupir inn vöru eða þjónustu og er beinlínis skylt að viðhafa útboð þegar inn- kaupin eru yfir ákveðum mörkum hvað fjárhæð varðar. Þegar kem- ur að kaupum á þjónustu arki- tekta eða verkfræðinga eiga hins vegar við nokkuð önnur sjónar- mið en þegar t.d. keypt er ákveð- ið magn af pappír o.þ.h. Til dæm- is getur verið örðugt að skilgreina verkefnin í útboðs- gögnum þegar mismunandi leiðir eru færar að sama marki. Það getur aftur leitt til þess að til- boðsfjárhæðir verða æði mismun- andi. Einnig hefur legið fyrir að þátttöku arkitekta og verkfræð- inga í samkeppnum og útboðum hins opinbera fylgir mikill kostn- aður fyrir viðkomandi aðila. Iðu- lega er leitað tilboða frá 5-6 að- ilum í verk þar sem tilboðsgjafar þurfa að leggja mikla vinnu í til- boðsgerðina. Arkitektar og verk- fræðingar vinna stundum hundr- uð klukkustunda að gerð eins tilboðs í útboði eða samkeppnis- tillögu, sem ekkert er greitt fyrir. Segja má að málþing þetta sé lið- ur í því að koma sjónarmiðum beggja, kaupenda og seljenda þjónustunnar, til skila.“ – Hverjar verða helstu áhersl- urnar á þessu málþingi? „Segja má að áhersla sé á þremur þáttum; yfirferð yfir þær reglur sem gilda á umræddu sviði, umfjöllun um hvernig regl- unum er fylgt og að lokum hvað þátttaka í útboðum kostar ráð- gjafarfyrirtækin, tilboðsgjafana. Ekkert eitt þessara atriða hefur meira vægi en hin. Þar sem málþingið er haldið af fulltrúum kaupenda og seljenda þessarar ákveðnu þjónustu má búast við að nokkuð mismunandi sjónarmið komi fram þegar meta skal hvar skóinn helst kreppi. Ráðgjafarfyrirtækin hafa t.d. tal- ið að of mikil áhersla sé á því að greitt sé sem minnst fyrir þjón- ustuna. Kostnaður við hönnun mannvirkja er að öllu jöfnu lágt hlut- fall af heildarkostnað- inum en hvernig til tekst við hönnunina getur ráðið miklu um það sem á eftir kemur, og þá einnig hver heildarkostnaður verður við mannvirkið, þar með talinn kostnaðurinn við rekstur og við- hald út líftíma þess. Eðlilega gera ráðgjafar sér grein fyrir að gæta verði aðhalds hér eins og annars staðar, en að þeirra mati á áhersl- an að vera meira á góðum og hag- kvæmum mannvirkjum.“ – Fyrir hverja er þetta mál- þing? „Málþingið er annars vegar fyrir alla þá sem koma á einhvern hátt að innkaupum á þjónustu arkitekta og verkfræðinga hvort sem er hjá ríkinu eða sveitar- félögunum og hins vegar alla ráð- gjafa á sviði arkitektúrs eða verk- fræði. Alþingismönnum hefur einnig verið boðið að taka þátt. Væri ekki úr vegi að hvetja þá sérstaklega til að mæta svo dýpka megi skilning þeirra á því ferli er óhjákvæmilega fer í gang í kjölfar pólitískra ákvarðana um opinberar framkvæmdir.“ – Hverju vona menn að svona málþing skili af sér? „Það er von þeirra hagsmuna- félaga er standa að málþinginu að það leiði til þess að opinberir að- ilar er koma að útboðum, gerð út- boðsgagna, mati á tilboðum o.s.fr. taki meira mið af stöðu tilboðs- gjafanna, skoði málið frá „hinni hliðinni“ áður en lagt er af stað með útboð. Vafalaust er það von þeirra opinberu aðila er standa að málþinginu að ráðgjafarnir sýni þeirra sjónarmiðum meiri skiln- ing í framtíðinni! “ – Dagskráin? „Fyrst verður kynning á efni handbókar um opinber innkaup, sem varðar útboð á sérfræðiþjón- ustu arkitekta og verkfræðinga: Guðmundur I. Guðmundsson yfirlögfræðingur Ríkiskaupa flyt- ur erindið. Innkaup ríkisins á sér- fræðiþjónustu arkitekta- og verk- fræðistofa frá árinu 1999 til 2002 er yfirskrift erindis sem að Jón L. Björnsson skrifstofustjóri Ríkis- endurskoðunar flytur og síðan er kaffihlé. Reynsla Fram- kvæmdasýslu ríkisins af samningum við hönnuði er yfirskrift erindis sem Óskar Valdemarsson forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins flytur og næsta erindi hefur yfirskrift- ina Kostnaður við tilboðsgerð í op- inberum útboðum, en það erindi er flutt af Sigríði Magnúsdóttur arkitekt frá Teiknistofunni Tröð ehf. og Guðmundi Björnssyni framkvæmdastjóra Verkfræði- stofunnar Hnit hf.“ Magnús Baldursson  Magnús Baldursson, f. 1962, embættispróf í lögfræði frá HÍ 1989, héraðsdómslögmaður 1992. Fulltrúi á lögmannsstofu 1989 til 1995. Rekið eigin lög- mannstofu frá 1995 ásamt því að starfa fyrir Félag ráðgjafarverk- fræðinga (FRV). Maki er Guðný Jóna Einarsdóttir starfsmaður Icelandair og eiga þau saman- lagt tvö börn Tryggva, 6 ára, og Töru Dögg 16 ára. Iðulega er leitað tilboða frá 5-6 aðilum SAMTÖK ungliðahreyfinga hafa sent frá sér ályktun þar sem frum- varpi um útlendinga er harðlega mótmælt. Að ályktuninni standa Ung frjálslynd, Ungir jafnaðarmenn og Ung vinstri græn. Félögin telja að frumvarpið gangi gegn hefðbundn- um sjónarmiðum um jafnræði borg- aranna og borgaraleg réttindi. „Frumvarpið gerir að skilyrði fyr- ir veitingu dvalarleyfis á grundvelli hjónabands, sambúðar eða samvist- ar að erlendur maki hafi náð 24 ára aldri. Íslenskur ríkisborgari má því ekki koma heim til landsins með er- lendan maka á þessum forsendum sé makinn yngri en 24 ára. Þetta und- arlega ákvæði er í litlu samræmi við hefðbundin hjúskaparskilyrði. Í frumvarpinu er einnig ákvæði um að foreldrar innflytjenda þurfi að vera eldri en 66 ára til að fá dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar og er ákvæðið hugsað til að koma í veg fyrir atvinnuþátttöku þeirra. Þar sem foreldrar innflytjenda þurfa hvort eð er að sækja um atvinnuleyfi og sýna fram á sjálfstæða fram- færslu er þessi breyting með öllu óþörf. Félögin telja óþarfa að tefja fyrir frjálsri för vinnuafls um hið evrópska efnahagssvæði sem frum- varpið felur í sér. Það er allra hagur að fólk geti ferðast frjálst þangað sem það telur kröftum sínum best borgið. Þannig nýtir fólk vinnuafl sitt og hugmyndir best og getur upp- fyllt eigin þarfir og annarra með betri hætti en ella. Einnig er fyrir- hugað að refsivert verði fyrir útlend- ing ef atvinnu- eða dvalarleyfi hans eru í ólagi.“ Mótmæla útlendingafrumvarpi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.