Morgunblaðið - 26.04.2004, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2004 9
www.ropeyoga.com
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Mikið úrval af fatnaði frá
Str. 36-56
snyrtiklefi
Garðatorgi, sími 565-1321.
Estée Lauder andlitsmeðferðin miðar öll að því að veita þér
slökun og dekra við þig - allt frá vandvirkri hreinsun
húðarinnar að yndislega róandi nuddinu.
Nútímaleg húðumhirða okkar vinnur gegn vandamálum sem
stafa af þurri húð eða feitri, hrukkum, slælegri blóðrás,
þreytulegri húð og öðru sem hrjáir húðina. Öll er meðferðin
umvafin ljúfri munúð og slökun.
Veittu þér andlitsmeðferð eins og þær gerast bestar og sjáðu
hvað svolítið dekur gerir húðinni gott.
Það kostar aðeins kr. 2.500.
Hringdu og pantaðu tíma í síma 565 1321
Aðeins það besta
fyrir andlit þitt
www.lyfja.is
Námskeið fimmtudaginn 6. maí
fyrir þá, sem vilja læra á ISO 9000
gæðastjórnunarstaðlana.
Farið er yfir megináherslur og uppbyggingu staðlanna og
hvernig má beita þeim
við að koma á og viðhalda gæðakerfi.
Verklegar æfingar.
Námskeiðið fer fram hjá Staðlaráði Íslands, Laugavegi 178,
kl. 8.30-14.45. Þátttökugjald kr. 18.500
Nánari upplýsingar og skráning á vef Staðlaráðs,
www.stadlar.is eða í síma 520 7150
ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir
- Lykilatriði, uppbygging og notkun -
LOKIÐ er borun svokallaðra
strengjaganga sem liggja ásamt
tengigöngum að væntanlegum
stöðvarhússhelli Kárahnjúkavirkj-
unar. Göngin voru boruð úr Fljóts-
dal, þar sem Fosskraft vinnur að
gangagerð og eru 908 m löng. Þá er
í Fljótsdalnum m.a. unnið að 1.100
m löngum frárennslisgöngum og er
lokið um 800 m af þeim.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Borun
strengja-
ganga lokið
Kárahnjúkavirkjun. Morgunblaðið.
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis-
ins var kallað út á síðdegis á laug-
ardaginn þar sem eldur var í papp-
írsgámi sem stóð við verslun Bónuss
í Faxafeni.
Mikill eldur var þegar slökkviliðið
kom á vettvang og var eldurinn far-
inn að teygja sig í verslunarhúsið.
Slökkviliðið náði að fjarlægja gám-
inn og fór með hann í Sorpu og
slökkti eldinn sem ekki olli tjóni á
öðru en gámnum sjálfum. Grunur
leikur á að um íkveikju hafi verið að
ræða. Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Eldur í
pappírsgámi
Nýr héraðsdómari
DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur
sett Sigríði J. Hjaltested, lögfræðing,
sem héraðsdómara við héraðsdóm
Reykjavíkur frá 1. maí til 15. júlí 2004.
Geðlæknar
mótmæla
breyttum
lyfjareglum
AÐALFUNDUR Geðlæknafélags
Íslands samþykkti ályktun þar sem
nýlegum reglum heilbrigðisráð-
herra í lyfjamálum er harðlega
mótmælt. Fullyrt er að reglurnar
feli í sér aukinn kostnað geðsjúkra
vegna lyfjameðferðar.
„Geðlæknar telja sjálfsagt að
velja bestu og ódýrustu fáanlegu
lyfin og þau sem hafa minnstar
aukaverkanir. Aðalfundur Geð-
læknafélags Íslands skorar á heil-
brigðisráðherra að taka ekki
ákvörðun um viðmiðunarlyf úr
flokki geðlyfja og notkun þeirra
nema að fengnum tillögum félags-
ins“.
♦♦♦