Morgunblaðið - 26.04.2004, Side 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞAÐ ER kominn tími til að hér á
landi fari fram hlutlaus rannsókn á
því ferli, sem leiddi til þeirrar
ákvörðunar Halldórs Ásgrímssonar
og Davíðs Oddssonar að setja Ísland
á lista hinna sjálfviljugu þjóða sem
studdu innrásina í Írak,“ sagði Össur
Skarphéðinsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, á opnum landsmálafundi
flokksins á Egilsstöðum á laugardag.
Frummælendur á fundinum voru
þau Össur Skarphéðinsson, Einar
Már Sigurðarson og Lára Stefáns-
dóttir.
Gerð að taglhnýtingum
Bandaríkjamanna
Össur sagðist ekki muna eftir að
jafn harðri umræðu um utanríkismál
og verið hefði í vetur. „Það sem veld-
ur þessu er að sjálfsögðu sú skelfi-
lega ákvörðun íslensku ríkisstjórn-
arinnar að setja okkur Íslendinga, án
samráðs við Alþingi og þjóð, á lista
hinna þrjátíu sjálfviljugu ríkja sem
studdu innrásina í Írak. Við, friðsæl
þjóð, án hers, án vopna, vorum gerð
að ósjálfstæðum taglhnýtingum
Bandaríkjamanna í Írak án þess að
nokkur íslenskur forystumaður í rík-
isstjórn reyndi að grafast fyrir um
hvaða nauðir ráku til innrásarinnar.
Það fór engin sjálfstæð rannsókn
fram á því af hálfu íslenskra ráða-
manna hvað var á bak við staðhæf-
ingar um gereyðingarvopn í Írak.
Utanríkisráðherra hafði margoft
sagt að það væri nauðsynlegt að gefa
vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu
þjóðanna meiri tíma til að leita af sér
allan grun um hvort slík vopn væri að
finna í Írak.“
Össur sagði að eitt símtal frá Dav-
íð Oddssyni virtist hafa dugað til að
breyta afstöðu Halldórs.
Forsendur innrásar-
innar breyttar
Össur sagði merkilegt að íslenskir
ráðamenn fetuðu í slóð þeirra er-
lendra ráðamanna sem héldu því nú
fram að tilefni innrásarinnar í Írak
hafi ekki verið að leita uppi gereyð-
ingarvopn, heldur að frelsa írösku
þjóðina undan Saddam Hussein.
„Hvaða frelsi er það sem ríkir nú í
Írak?“ spurði Össur. „Hvaða frelsi er
það til dæmis fyrir íraskar konur að
geta ekki farið út úr húsi um hábjart-
an dag vegna þess að stjórnleysi rík-
ir á götum í Írak? Hans von Spon-
neck er yfirmaður mannúðar-
aðstoðar Sameinuðu þjóðanna í Írak.
Hann segir að frelsið sem Írakar búi
nú við sé miklu verra heldur en það
frelsi sem þeir, þrátt fyrir allt, höfðu
fyrir innrásina. Van Sponneck segir
einnig að eins og þróunin er, telji
hann að það frelsi sem Írakar muni
búa við eftir fimm ár verði minna en
þeir höfðu á dögum Saddam Huss-
ein.“
Brutu lög
„Ég verð að undirstrika sem ís-
lenskur alþingismaður, að mér þótti
sárt að íslenskir ráðamenn spurðu
hvorki þjóðina né Alþingi um hvort
stuðningur væri við þessa aðgerð
ríkisstjórnarinnar. Þeir brutu þess
vegna lögin sem kveða skýrt á um að
gagnvart meiri háttar ákvörðunum í
utanríkismálum á að hafa samráð við
utanríkismálanefnd þingsins. Þeir
brutu með öðrum orðum lög til þess
að þjóna hagsmunum Bush Banda-
ríkjaforseta og bandarísku þjóðar-
innar. Vitum við hvað varð til þess að
við Íslendingar urðum með beinum
hætti þátttakendur og stuðningsaðil-
ar styrjaldarinnar í Írak? Það hefur
aldrei komið fram, en það hrannast
upp nýjar staðreyndir dag eftir dag,
sem sýna að það var ekki fótur fyrir
röksemdum íslenskra ráðamanna
um nauðsyn þess að íslenska þjóðin
væri teymd til að styðja innrásina í
Írak. Það er kominn tími til að hér á
landi, eins og annars staðar, fari
fram hlutlaus rannsókn á því ferli
sem leiddi til þessarar ákvörðunar
Halldórs Ásgrímssonar og Davíðs
Oddssonar að setja Ísland á lista
hinna sjálfviljugu þjóða sem studdu
innrásina. Skoða þarf á hvaða for-
sendum sú ákvörðun var tekin,
hvernig hún var tekin og sérstaklega
hvernig utanríkisráðherra sinnti því,
sem hlýtur að vera sjálfsögð rann-
sóknarskylda á þeim forsendum sem
innrásin var háð á, áður heldur en að
hann tók ákvörðun sína um að hnýta
okkur í tagl Bush Bandaríkjafor-
seta.“
„Við í Samfylkingunni munum
hafa forgöngu um það meðal stjórn-
arandstöðunnar, með hvaða hætti
verður lagt til við Alþingi Íslendinga
að þessi rannsókn verði tekin upp.
Það er hægt að gera það með tvenn-
um hætti. Annars vegar með því að
utanríkismálanefnd þingsins taki að
sér að kanna þetta og kalli fyrir sig
þá ráðamenn íslenska sem myndi þá
bera skylda til að greina nefndinni
frá tildrögum þessa máls. Hins vegar
gætum við nýtt okkur ákvæði stjórn-
arskrárinnar til þess að setja upp
sjálfstæða rannsóknarnefnd. Ís-
lenskir ráðamenn verða að gera
þetta mál upp og greina íslensku
þjóðinni frá því með hvaða hætti hún
var tengd inn í þennan hildarleik.“
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Jónína Rós Guðmundsdóttir og Lára Stefánsdóttir voru meðal fund-
armanna á opnum fundi Samfylkingarinnar á Egilsstöðum.
Vilja hlutlausa rann-
sókn á ákvörðun um
stuðning við innrás
Íslenskir ráðamenn verða að gera Íraksmálið upp og
greina íslensku þjóðinni frá því með hvaða hætti hún var
tengd því, segir formaður Samfylkingarinnar.
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
SKIPTAR skoðanir voru á málþingi
um verðbreytingar á lyfjum, sem Ör-
yrkjabandalag Íslands boðaði til á
laugardag í tilefni af fyrirhuguðum
breytingum á lyfjaverði sem taka
munu gildi 1. maí.
Þeirri spurningu var varpað fram í
upphafi málþingsins hvort tvöfalt
heilbrigðiskerfi yrði að veruleika á Ís-
landi á baráttudegi verkalýðsins 1.
maí og ræddu frummælendur kosti
og galla hins nýja fyrirkomulags, svo-
kallaðs analog eða hliðræns kerfis, en
það felur í sér að tekið verður upp við-
miðunarverð lyfja með sambærileg
meðferðaráhrif í þremur kostnaðar-
sömustu lyfjaflokkunum, en undir
þau falla m.a. gigtarlyf, kólester-
óllækkandi lyf og geðdeyfðarlyf.
Tryggingastofnun mun þá miða
greiðsluþátttöku sína við þessi við-
miðunarverð með svipuðum hætti og
nú gildir um viðmiðunarverð sam-
heitalyfja.
Í upphafsávarpi ráðstefnunnar
sagði Garðar Sverrisson hættu á að
fagleg sjónarmið myndu víkja fyrir
fjárhagslegri aðstöðu sjúklinga sam-
kvæmt hinu nýja kerfi, þar sem nið-
urgreiðsla á lyfjum myndi breytast og
dýrari lyf einungis á færi hinna efna-
meiri. Sagði Garðar allt stefna í að hér
á landi yrði „tvöfalt heilbrigðiskerfi,
eitt fyrir hina efnameiri og annað fyr-
ir hina efnaminni.“
Mikilvægar sparnaðar-
ráðstafanir
Sæunn Stefánsdóttir, aðstoðar-
maður heilbrigðisráðherra, sagði nýja
kerfið ætlað til að sporna við útgjalda-
aukningu í lyfjakostnaði, en að öllu
öðru jöfnu væri lyfjakostnaður hér á
landi um 4,4 milljörðum króna meiri
en í Noregi í samanburði, eða rúm
þrjátíu prósent. Því vildi ríkið beina
neytendum að lyfjum með lægri verð.
Sagði Sæunn ríkið nú tilbúið til sam-
starfs við hagsmunahópa og lækna til
að útfæra nánar þetta kerfi.
Lyfjakostnaður landsmanna var
tæpir 14 milljarðar kr. á síðasta ári.
Hlutur ríkisins í þessari upphæð var
9,4 milljarðar. kr. Í fjárlögum yfir-
standandi árs er gert ráð fyrir 450
milljóna sparnaði á fyrirsjáanlegum
lyfjaútgjöldum Tryggingastofnunar.
Lyfjaverðsnefnd hefur m.a. unnið að
lækkun lyfjaverðs með gildistöku 1.
júlí nk. sem nemur um 500 milljóna
kostnaðarlækkun á heildarútgjöldum
vegna lyfja á ársgrundvelli. Sæunn
benti á þessar ráðstafanir og sagði að
verið væri að reyna að ná tökum á sí-
auknum lyfjakostnaði ríkisins.
Einar Magnússon, yfirlyfjafræð-
ingur heilbrigðisráðuneytisins, sagði
ráðherra hafa lagt á það áherslu að
sparnaður yrði ekki lagður á sjúk-
linga. Þá væri ljóst að notkun margra
lyfja, þar á meðal gigtarlyfja og Rítal-
íns og amfetamínlyfja væri farin úr
böndum og mikilvægt að koma henni í
skorður. Með hliðræna kerfinu væri
reynt að finna ódýrustu sambærilegu
meðferðina sem í boði væri. „Það er
ekki rétt að verið sé að hækka verð,
aftur á móti er verið að reyna að
lækka það,“ sagði Einar m.a.
Í máli Péturs Haukssonar geð-
læknis kom fram að sjúklingar búa yf-
ir mikilli reynslu af lyfjum sem ekki
er hlustað á. Sjúklingar geti þannig
vottað um mismunandi virkni lyfja,
þar sem þeir væru þeir sem upplifa
þau. Sagði Pétur hins vegar svindlað
á kerfinu á ýmsan hátt. Þannig væru
margir lyfjaskápar fullir af óþörfum
lyfjum, þar sem sum apótek bjóði upp
á 100% afslátt af afgreiðslugjaldi, sé
vísað á þriggja mánaða skammt af
lyfjum í stað eins. Þannig vildi Pétur
meina að mikið magn lyfja væri selt
að óþörfu.
Emil Thoroddsen, framkvæmda-
stjóri Gigtarfélags Íslands, sagði gigt-
arsjúkdóma stærstu orsök fötlunar.
Gríðarlegir hagsmunir væru fyrir
stóran hóp að lyfjaverð sé lágt. „Við
getum vissulega ekki mótmælt
áformum um að lækka lyfjaverð, en
við getum mótmælt ráðstöfunum sem
rýra möguleika á fullnægjandi með-
ferð,“ sagði Emil og bætti við að ljóst
væri í því samkomulagi sem ríkir hér
á landi að Íslendingar vildu ekki að
efnahagur stýri meðferðarúrræðum.
Undanþága á orði
en ekki á borði
Ingunn Björnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Lyfjafræðingafélags
Íslands, furðaði sig meðal annars á
því að ekkert samráð hefði verið haft
við lyfjafræðinga og spurði: „Hvers
vegna þurfa íslensk yfirvöld að vísa í
þriggja ára gömul dönsk skýrsludrög
til að rökstyðja ráðstafanir og án þess
að hafa samráð við samtök fagfólks.“
Í erindi sínu sagði Matthías Hall-
dórsson aðstoðarlandlæknir ljóst að
jafnrétti fólks til heilbrigðisþjónustu
væri grundvöllur samfélagsrekinnar
heilbrigðisþjónustu. Sagði hann not-
endagjöld æskileg í hófi en ekki mega
verða þannig að fólk veigri sér við því
að kaupa sér lyf. Mikilvægt væri að
þörf fólks fyrir lyf réði lyfjavali en
ekki eitthvað annað.
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, sagði
vaxandi kostnað við heilbrigðisþjón-
ustu með erfiðari vandamálum sem
Íslendingar standi nú frammi fyrir.
Sagði hann muninn liggja í innkaupa-
verði og lélegum samningum við
lyfjafyrirtækin. „Maður leiðréttir
ekki svona vitleysu með meiri vit-
leysu,“ sagði Kári og bætti við að hon-
um fyndist það slappt í auðugu vel-
ferðarsamfélagi að grípa til
ráðstafana sem skerða þjónustu við
sjúklinga.
Umræður eftir framsögur voru
snarpar og komst nokkur hiti í fund-
armenn um tíma.
Í máli lækna og hagsmunasamtaka
sjúklinga kom fram að þrátt fyrir að í
lögunum væri opið fyrir möguleika á
undanþágum frá viðmiðunarverði
með læknisfræðilegum rökstuðningi,
vegna dýrari lyfja, væri svar Trygg-
ingastofnunar afar einfalt, en þar
væri öllum umsóknum neitað. Sam-
skiptin við Tryggingastofnun væru
með því móti að næstum ómögulegt
væri að fá undanþágu vegna dýrari
lyfja.
Þá benti Kári Stefánsson á að hlið-
rænt kerfi væri ekki við lýði í Dan-
mörku, en þó væru þeir með lægri
lyfjakostnað. Vandamálið fælist þá
mun frekar í því að ná betri samn-
ingum við lyfjafyrirtæki og bæta inn-
kaupaverð lyfja.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra vildi í samtali við Morgunblaðið
í gær ekki tjá sig um gagnrýni á
breytt kerfi.
Málþing um breytingar á lyfjaverði og verðhækkanir á lyfjum til sjúklinga
Þörf sjúklinga
ráði en ekki
efnahagur
Morgunblaðið/Sverrir
Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalagsins, gagnrýndi nýjar regl-
ur heilbrigðisráðuneytisins um lyfjakostnað sem taka eiga gildi 1. maí.
FJÖLDI fólks lagði leið sína á Frost
Activity, sýningu Ólafs Elíassonar í
Listasafni Reykjavíkur í gær, en þá
var síðasti sýningardagur. Soffía
Karlsdóttir, kynningarstjóri lista-
safnsins, segir að um átta til níu
hundruð manns hafi komið á sýn-
inguna í gær en alls hafi um 40.000
manns séð sýninguna, sem stóð yfir í
rúma þrjá mánuði. „Hingað hefur
verið stríður straumur fólks frá því
klukkan tíu í morgun,“ sagði hún í
samtali við Morgunblaðið í gær, en
sýningunni lauk kl. 18 síðdegis,
klukkutíma síðar en áformað var,
vegna góðrar aðsóknar. „Þetta er al-
gjört met í aðsókn á lokadegi sýn-
ingar, ekki síst í ljósi þess hvað hún
hefur staðið lengi yfir.“
Aðspurð segir Soffía að aðal-
ástæða góðrar aðsóknar sé sú að
Ólafur sé frábær listamaður.
Níu hundruð
manns á Frost
Activity í gær
UNDIRRITAÐUR hefur verið
kjarasamningur milli Samtaka at-
vinnulífsins (SA) og Matvæla- og veit-
ingasambands Íslands (MATVÍS) en í
því eru matreiðslumenn, framreiðslu-
menn, kjötiðnaðarmenn og bakarar.
Samningurinn gildir frá 24. apríl 2004
til ársloka 2007 og eru almennar
launahækkanir og hækkanir á lífeyr-
isframlögum þær sömu og í fyrri
samningum SA.
Niels S. Olgeirsson, formaður
MATVÍS, segist bærilega sáttur við
samninginn þótt svigrúmið hafi ekki
verið mikið þar sem búið hefði verið
að leggja línurnar. „Reyndar vorum
við aðeins að taka til hjá okkur í samn-
ingnum og samræma ýmsa þætti sem
höfðu ekki gengið áður, s.s. uppsagn-
arfrest og orlof. Við vorum einnig að
fá inn taxta fyrir þá sem eru með
meistaraskóla, flokkstjóra o.s.fr.v.
Við vorum líka að færa tölurnar svo-
lítið nær raunveruleikanum. Við erum
nokkuð sáttir,“ segir Niels.
MATVÍS
semur
♦♦♦