Morgunblaðið - 26.04.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.04.2004, Blaðsíða 13
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2004 13 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s TALIÐ er nú að 161 hafi farist Norður-Kóreu er sprenging varð á járnbrautarstöð í borginni Ryong- chon, skammt frá landamærum Kína, á fimmtudag, annar gígurinn sem myndaðist sést hér á myndinni. Helmingur fórnarlambanna mun hafa verið börn. Opinber frétta- stofa Norður-Kóreu, KCNA, sagði að slysið hefði orðið vegna van- rækslu og kæruleysis. Raflínur hefðu snert járnbrautarvagn sem hlaðinn var sprengifimum köfn- unarefnisáburði og tankvagn með olíu þegar vagnarnir voru færðir á hliðarspor. Hefði neistaflug kveikt í vögnunum. Hjálpargögn bárust þegar í gær á staðinn frá grannlandinu Kína og Japanar voru að undirbúa flutninga með lyf og fleiri nauðsynjar. At- hygli vakti að þegar á laugardag báðu stjórnvöld í Pyongyang um- heiminn um aðstoð en komm- únistastjórnin hefur út á við ávallt lagt mikla áherslu á að landsmenn séu öðrum óháðir. Fulltrúar hjálp- arstofnana sögðu að þúsundir húsa hefðu gereyðilagst eða skemmst mikið og tveir geysimiklir gígar myndast á staðnum. Rúður hefðu brotnað í allt að 10 km fjarlægð. Skortur hefur lengi verið á mörgum lífsnauðsynjum í landinu og fyrir nokkrum árum féllu þar milljónir manna úr hungri. Komm- únistaríkið Norður-Kórea hefur áratugum saman verið eitt lok- aðasta land heims. Reuters Hjálpargögn berast til Ryongchon LEIÐTOGAR Evrópusambandsins og Bandaríkjanna hafa harmað úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Kýpur á laugardag en þá höfnuðu Kýpur- Grikkir sameiningaráætlun Samein- uðu þjóðanna, um 75% þeirra voru á móti áætluninni. Hún tekur því ekki gildi þótt Kýpur-Tyrkir hafi sam- þykkt hana með nær 65% atkvæða. Kýpur-Grikkir fá því einir aðild að Evrópusambandinu 1. maí. Þjóðarbrotin tvö hafa búið hvort í sínu ríki í 30 ár eða síðan tyrkneskur her hernam norðurhlutann vegna þess að tyrkneskumælandi Kýpverj- ar, sem eru mun færri, óttuðust að Kýpur-Grikkir hygðust sameina landið með valdi. Erfiðir tímar framundan Tassos Papadopoulos, forseti Kýp- ur-Grikkja, varaði við því í gær að erf- iðir tímar væru framundan en sagðist enn vilja ná samningum við Kýpur- Tyrki. Hann vísaði á bug ásökunum þess efnis að niðurstöðurnar væru ekki fyllilega marktækar vegna þess að stuðningsmenn hefðu ekki fengið sama ráðrúm og andstæðingar til að tala máli sínu og hefðu jafnvel sætt ógnunum. Kosningabaráttan hefi ver- ið „stillileg og siðleg“, hins vegar hefðu erlend öfl reynt að ýta undir ótta og öryggisleysi með því að segja afleiðingar höfnunar geta orðið hættulegar. Papadopolus hét því að aðstoða Kýpur-Tyrki við að njóta í einhverjum mæli þeirra hlunninda sem fylgja myndu aðild grískumæl- andi eyjarskeggja að ESB. Rauf Denktash, leiðtogi Kýpur- Tyrkja, sem einnig var andvígur áætl- un SÞ, sagði að umheimurinn ætti nú að hætta að beita þjóðarbrotin tvö á eynni þvingunum til að sameinast. Ljóst þykir hins vegar að staða Denk- tash hafi veikst vegna þess hve marg- ir landar hans voru á öndverðum meiði við leiðtogann. Stjórnvöld í Grikklandi, sem studdu tillögur SÞ með nokkurri var- færni, reyndu í gær að gera lítið úr áhrifum atkvæðagreiðslunnar og söðgust sem fyrr ætla að vinna að endanlegri lausn á deilum þjóðarbrot- anna. Tyrkir studdu áætlun SÞ enda hefur verið talið að staða mála á Kýp- ur og ekki síst hernámslið Tyrkja þar geti orðið erfiður þröskuldur í vegi að- ildar Tyrklands að ESB. Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands, sagðist vonsvikinn vegna úrslitanna en hvatti til þess að í kjölfar atkvæða- greiðslunnar yrði viðskiptaþvingun- um aflétt af Kýpur-Tyrkjum í ljósi þess að þeir hefðu lýst vilja til að ná samkomulagi í Kýpurdeilunni. Tyrk- land er eina ríkið sem viðurkennt hef- ur ríki tyrkneskumælandi Kýpverja. Tyrkneskumælandi íbúum verður hjálpað Fréttaskýrendur segja ljóst að samstaða verði um að bæta tyrk- neskumælandi Kýpverjum skaðann með víðtækri efnahagsaðstoð en lífs- kjör þar eru mun lakari en meðal grískumælandi eyjarskeggja. Denktash sagði að niðurstaðan sýndi að þeir sem hefðu talið að hægt yrði að ná samkomulagi milli þjóðar- brotanna í Kýpur, væru úr takti við raunveruleikann. Vísaði hann á bug kröfum þeirra Kýpur-Tyrkja sem studdu áætlunina, þar á meðal Mehmet Ali Talat, forsætisráðherra um að forsetinn segði af sér. Harma niðurstöð- urnar á Kýpur Nikosiu, Aþenu, Washington. AP, AFP. Fyrir flottar konur Bankastræti 11 • sími 551 3930

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.