Morgunblaðið - 26.04.2004, Síða 14

Morgunblaðið - 26.04.2004, Síða 14
DAGLEGT LÍF 14 MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ                                SILFURKAMBUR er planta í flokki kuldaþolinna og harðgerðra sumarblóma. Hann er ræktaður vegna silfurgrárra og loðinna blaðanna og fer sérstaklega vel með fallega blómstrandi plöntum, hann undirstrikar fegurð blómanna og myndar umgjörð ut- an um þau. Silfurkambur hefur verið ræktaður hérlendis um langa hríð og reynst ákaflega duglegur við ýmiss konar óblíð skilyrði. Í heimkynnum sínum verður silfurkamburinn allstór og fallegur runni sem blómstrar gul- um blómhnöppum þegar líður á sumar. Hann nær því stundum að blómstra hérlendis, einkanlega þegar haust eru mild en hann er einnig eitt þeirra sumarblóma sem standa hvað best fram á haustið. Silfurkamburinn lengir því sum- arið okkar í báða enda, rétt eins og stjúpurnar og fjólurnar.  GARÐYRKJA Guðríður Helgadóttir garðyrkju- fræðingur, Félagi garðplöntu- framleiðenda. Silfur- kambur Til að tryggja góðan rakstur erallra mikilvægast að hita húð-ina vel áður en raksturinn hefst, að sögn Eiríks Þorsteinssonar, rakara og eiganda rakarastofunnar Greifans við Hringbraut í Reykjavík. Karlmenn þurfa að prófa sig áfram með rakvélar og raksápu og flestir bera nú á sig rakakrem eftir rakstur en rakspírinn er á und- anhaldi. „Og núorðið fá menn jafn- góðan rakstur heima hjá sér og á rakarastofu, en það er náttúrulega mjög þægilegt að láta raka sig á rak- arastofu.“ En nú kemur varla nokk- ur maður og biður um rakstur á rak- arastofu eins og algengt var áður fyrr. Hátt verð á rakvélablöðum var ein af helstu ástæðum þess að karlmenn fóru í eina tíð til rakarans að láta skerða skeggið, auk þess sem rak- hnífarnir hjá rakaranum voru flug- beittir og mun betri en rakvélablöðin sem þá voru á markaði. Eiríkur hef- ur starfað sem rakari frá árinu 1967 og var einn af þeim síðustu sem lærðu að brýna raknhníf því um þetta leyti lækkuðu rakvélablöð mik- ið í verði og urðu betri. Brennivínsflöskubrýni Hann segir að karlmenn hafi beitt ýmsum brögðum til að halda biti í rakvélablöðunum heima hjá sér, m.a. að brjóta brennivínsflösku með sér- stökum hætti og brýna hnífinn svo á glerbrotinu. „Þeir brutu þá ofan af brennivínsflösku og bundu svo bóm- ullarsnæri vætt í bensíni um neðri hlutann og kveiktu í. Þá klofnaði flaskan í sundur og gott brýni varð til,“ segir Eiríkur. Engar slíkar kúnstir þarf til nú á dögum þegar hillur stórmarkaðanna eru fullar af Turbo, Excel, Mach3, Twin og fleiri framúrstefnulegum nöfnum á rakvélablöðum eða einnota rakvélum, sem hver og einn getur valið úr og kippt með sér. Rakvéla- blöð þróast eins og allt annað og stöðugt er reynt að setja á markað rakvélar sem gefa æ dýpri rakstur. Eiríkur segir að það nýjasta á markaðnum sé Mach3 Turbo frá Gillette og það noti hann sjálfur þeg- ar hann rakar sig. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða þrefalt rakvélarblað þar sem hvert kemur á eftir öðru yfir sama svæðið og gefur því dýpri rakstur. Sumir raka sig á þennan hátt að staðaldri, aðrir með einnota raksköfum og enn aðrir með rafmagnsrakvél. Allt getur hentað, að sögn Eiríks, því húðgerð og skeggrót er mismunandi. „Sumir eru með viðkvæma húð og þola ekki daglegan rakstur. Þeir raka sig þá kannski annan hvern dag með sköfu en hinn daginn með raf- magnsrakvél. Rafmagnsrakvél gefur ekki eins djúpan rakstur og getur því hentað þeim sem eru með viðkvæma húð,“ segir Eiríkur. Meginreglan, að hans sögn, er að skafa undan skeggvextinum, þ.e. ekki á móti, en hafa ber í huga að skeggvöxturinn getur þó verið mis- munandi eftir hvort um vanga, höku eða háls er að ræða. Og svo eru sum- ir með svokallaða snarrót, þ.e. nokk- urs konar hvirfil eða sveip og geta átt erfitt með rakstur þess vegna. Tilgangurinn með notkun raksápu er að halda hitanum í húðinni og nú inniheldur raksápa oft mýkjandi efni að auki. Ekki er nauðsynlegt fyrir alla að nota raksápu. Margir nota ol- íu og aðrir alls ekkert annað en vatn, þ.e. raka sig í sturtu eða nýkomnir úr henni. Hitinn í húðinni er það allra mikilvægasta fyrir góðan rakstur, ítrekar Eiríkur rakari.  RAKSTUR Morgunblaðið/Ásdís Rakstur: Eiríkur Þorsteinsson rak- ari segir að meginreglan sé að skafa undan skeggvextinum, en hafa ber í huga að skeggvöxturinn getur þó verið mismunandi eftir hvort um vanga, höku eða háls er að ræða. Karlmenn: Flestir þurfa að prófa sig áfram með rakvélar og raksápu. „Núorðið fá menn jafn- góðan rakstur heima hjá sér og á rakarastofu.“ Heit húð grund- vallaratriði steingerdur@mbl.is Nú á tímum eignast konurbörn sín seinna á ævinni enáður. Samkvæmt frétt í vefútgáfu Berlingske Tidende, sýnir tölfræðin í Danmörku að konum sem eignast börn eftir þrítugt sé fyrst og fremst að þakka sú aukning sem orðið hefur á barneignum í Danmörku á síðasta ári. Þær sem eru á aldrinum 30–34 ára eru dug- legastar við að fjölga mannkyninu en einnig hefur fjölgað fæðingum hjá konum sem eru 35–39 ára. Aftur á móti hefur fæðingum hjá konum á aldrinum 20–24 ára fækkað. Félagsfræðingurinn Lasse Denc- ik segir þetta ekki vera neitt vanda- mál og eiginlega hið besta mál, því regla og öryggi á heimilum eldri foreldra sé meiri en hjá þeim yngri og einnig sé hættan á hjónaskilnaði mun minni hjá fólki sem komið er yfir þrítugt. „Meðalaldur fólks hefur hækkað svo það er lítil hætta á að foreldrarnir deyi frá ungum börnum sínum. Og ég blæs á allt tal um að börn eldri foreldra séu fordekruð og sjálfselsk, það er ekki rétt.“ Annar aðili sem starfar á þessu sviði tekur undir orð Lasse en tekur þó fram að hann mæli ekki með að foreldrar eignist börn svo seint á ævinni að þau fari beint úr barn- eignum yfir á eftirlaun. Barnið má ekki ráða ferðinni Einn sérfræðingurinn enn, Peter Albæk, er líka talsmaður þess að fólk eignist börn sín eftir þrítugt, af því að nú sé fólk miklu lengur ungt en áður. „Kona sem er fertug í dag er ekki eins gömul og útslitin og jafnaldra hennar fyrir hálfri öld. En ég neita því ekki að það er viss hætta á að „eldri“ foreldrar skipu- leggi líf sitt í kringum litla barnið. Í stað þess að barnið sé hluti af fjöl- skyldunni, þá verður það stjórnand- inn á heimilinu og þá er hætta á að það fari á mis við nauðsynlega fé- lagslega hæfni sem þarf að hafa í farteskinu út í lífið,“ aðvarar Peter og talar af eigin reynslu, því hann er fertugur og yngsta barn hans er eins árs. Á Íslandi eru þróunin svipuð og í Danmörku. Á vef Hagstofu Íslands má finna ýmsar tölulegar upplýs- ingar um þessi mál og þar kemur fram að meðalaldur mæðra fer hækkandi hér á landi og að sífellt fátíðara sé að konur eigi börn áður en þær ná 25 ára aldri. Lækkun fæðingartíðni er mest áberandi í aldurshóp 20–24 ára kvenna. Ung- lingamæðrum hefur einnig fækkað jafnt og þétt á þessu tímabili. Nú er algengasti barneignaraldurinn 25– 29 ára. Í aldurshópunum 30–34 ára og 35–39 ára hækkaði fæðingartíðni lítillega um miðbik 9. áratugarins og síðan þá hefur fæðingartíðni í þeim aldurshópum haldist stöðug.  FÆÐINGAR|Margar konur seinka barneignum fram yfir þrítugt Blæs á að börnin verði fordekruð Associated Press TENGLAR .............................................. www.hagstofa.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.