Morgunblaðið - 26.04.2004, Side 27

Morgunblaðið - 26.04.2004, Side 27
HESTAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2004 27 HARÐARMENN ætla greinilega að mæta vel undirbúnir til leiks þegar kemur að landsmóti eftir rúma tvo mánuði og í því augnamiði buðu þeir upp á lokað æfingamót á laugardag í slæmu veðri. Þátttaka í mótinu var allþokkaleg þar sem tamningafólkið á Dallandi lét greipar sópa í verðlaunasafni mótsins. Sigruðu þau í þremur grein- um og unnu stigasöfnunarkeppni vetrarins í sínum flokkum. Úrslitin urðu annars eftirfarandi: Börn 1. Leó Hauksson, Tígull frá Helgafelli 8v rauður 2. Sebastian Sævarsson, Svartur frá Síðu 8v svartur 3. Kristín Kristmundsdóttir, Krummi 12v brúnn 4. María G. Pétursdóttir, Blesi frá Skriðu- landi 15v rauðblesóttur 5. Sigurgeir Jóhannsson, Farsæll frá Stóru Ásgeirsá 7v jarpur. Stigameistari í barnaflokki: María G. Pét- ursdóttir Unglingar 1. Halldóra H. Ingvarsdóttir, Geysir frá Stóru Hildisey 6v gráskjóttur 2. Sigríður S. Ingvarsdóttir, Geisli frá Blesa- stöðum 7v rauðblesóttur 3. Sandra M. Sigurðardóttir, Assa frá Ólafs- völlum 7v grá 4. Marissa Pinal, Lilja 10v jörp 5. Sara Sigurðardóttir, Faxi 6v brúnn. Stigameistari í unglingaflokki: Sigríður S. Ingvardóttir. Ungmenni 1. Halldóra S. Guðlaugsdóttir, Snót frá Akur- eyri 9v jörp 2. Gunnar M. Jónsson, Dropi frá Selfossi 8v rauðblesóttur 3. Steinþór Runólfsson, Brandur frá Hellu 12v brúnn 4. Ari B. Jónsson, Þytur frá Krithól 12v jarp- ur. Stigameistari í ungmennaflokki: Halldóra S. Guðlaugsdóttir. Pollar Úlfar D. Lúthersson, Prinsessa 7v. Konur/stigamót 1. Helle Laks, Spaði frá Kirkjubæ 9v rauður 2. Svava Kristjánsdóttir, Skuggi frá Kú- skerpi 8v brúnn 3. Magnea R. Axelsdóttir Tinna 7v brún 4. Berglind Árnadóttir, Hilmir frá Skíðanesi 9v brúnn 5. Ásta B. Benediktsdóttir, Írafár. Stigameistari: Helle Laks. Karlar/stigamót 1. Birkir H. Jónsson, Gyðja frá Vindási rauð 2. Úlfar Guðmundsson, Gullfoss frá Gerðum 10v bleikur 3. Guðmundur Björgvinsson, Garpur frá Torfastöðum 11v mósóttur 4. Guðmundur Þ. Gunnarsson, Bellu frá Kú- skerpi 9v leirljós 5. Björgvin Jónsson, Kraftur frá Varmadal 7v rauður. Stigameistari: Úlfar Guðmundsson. Atvinnumannaflokkur 1. Halldór Guðjónsson, Vonandi frá Dallandi 7v brúnn 2. Elías Þórhallsson, Elva frá Mosfellsbæ 8v brún 3. Þorvarður Friðbjörnsson, Hylling frá Kimbastöðum brún 4. Guðlaugur Pálsson, Mökkur frá Björgum 8v 5. Friðdóra Friðriksdóttir, Perlusteinn frá Torfufelli 6v jarpur. Stigameistari: Halldór Guðjónsson. 100 metra flugskeið 1. Halldór Guðjónsson, Dalla frá Dallandi, 8,04 sek. 2. Björgvin Jónsson, Eldur 8,2 sek. 3. Friðdóra Friðriksdóttir, Lína frá Gilla- stöðum, 8,35 sek. 4. Þórir Grétarsson, Þula frá Barkastöðum, 8,6 sek. 5. Þorvarður Friðbjörnsson, 8,97 sek. Stigameistari: Halldór Guðjónsson. Opna ÁG mótið Hið árlega opna ÁG töltmót fyrir unga fólkið fór fram sumardaginn fyrsta, 22. apríl, og tókst vel. Þátt- taka var góð í öllum flokkum, en keppt var í tölti barna, unglinga og ungmenna. Fjöldi fólks kom til að horfa á keppnina í reiðhöll Gusts í Kópavogi, en hið stórglæsilega kaffi- hlaðborð kvennadeildar Gusts var einmitt í boði á sama tíma á efri hæð- inni. Úrslit mótsins urðu eftirfarandi: Börn 1. Rakel N. Kristinsdóttir, Geysi, og Vígar frá Skarði, 6,40/6,68 2. Arna Ý. Guðnadóttir, Fáki, og Dagfari frá Hvammi II, 5,33/5,98 3. Edda R. Guðmundsdóttir, Fáki, og Fiðla frá Höfðabrekku, 5,37/5,95 4. Skúli Þ. Jóhannsson, Sörla, og Gyðja frá Hafnarfirði, 5,17/5,91 5. Ástríður Magnúsdóttir, Gusti, og Pjakkur frá Garðabæ, 5,07/5,68 Unglingar 1. Linda R. Pétursdóttir, Herði, og Aladín frá Laugardælum, 6,27/6,50 2. Hekla K. Kristinsdóttir, Geysi, og Assa frá Ölversholti, 6,13/6,41 3. Bára B. Kristjánsd., Gusti, og Dimma frá Skagaströnd, 6,0/6,27 4. Sandra L. Þórðardóttir, Sörla, og Hrókur frá Enni, 5,90/6,12 5. Freyja Þorvaldardóttir, Gusti, og Salka frá Vatnsleysu, 5,33/6,08 Ungmenni 1. Tryggvi Þór Tryggvason, Gusti, og Skrekkur frá Stóra-Sandfelli, 2 5,87/6,40 2. Sigvaldi Lárus Guðmundss., Gusti, og Ör frá Hofsstaðaseli, 5,53/6,28 3. Ívar Örn Hákonarson, Andvara, og Rosi frá Hlíð, 5,27/6,15 4. Elva Björk Margeirsd., Mána, og Stika frá Kirkjubæ, 5,47/6,0 5. Geir Harrysson, Sörla, og Svarti-Pétur frá Hreiðri, 4,97/5,90 Vetrarleikar Faxa og Skugga Þriðju og síðustu vetrarleikar Faxa og Skugga voru haldnir laug- ardaginn 24. apríl í Borgarnesi. Þátt- taka var nokkuð góð. Dómari var Skjöldur Orri Skjaldarson frá Hamraendum. Úrslit urðu sem hér segir: Pollar 1. Ursula H. Karlsdóttir og Blakkur frá Eskiholti. 12v. 2. Sigrún R. Helgadóttir og Rammi frá Hrafnagili 9v. Börn 1. Sigurborg H. Sigurðardóttir og Rökkvi frá Oddstöðum 8v. 2. Heiðar Á. Baldursson og Tá frá Múlakoti 5v. 3. Lára M. Karlsdóttir og Fagriblakkur frá Langárfossi 8v. 4. Flosi Ólafsson og Föl frá Feti 8v. 5. Gunnhildur Helgadóttir og Leifi frá Litla Kambi 19v. Unglingar 1. Elis V. Ingibergsson og Fjalar 8v. 2. Sigrún S. Ámundadóttir og Léttir frá Varmahlíð 7v. 3. Höskuldur Kolbeinsson og Baugur frá Stóra Ási 9v. 4. Anna H. Baldursdóttir og Rist frá Múla- koti 6v. 5. Valdís Ý. Ólafsdóttir og Hrönn frá Ósi 6v. Konur 1. Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Mósart frá Leysingjastöðum 7v. 2. Steinunn Hilmarsdóttir og Gjafar frá Kiljuholti 7v. 3. Björg M. Þórsdóttir og Mjölnir frá Hesti 7v. 4. Íris H. Grettisdóttir og Nubbur frá Hólum 8v. 5. Sigurborg Á. Jónsdóttir og Örn frá Indr- iðastöðum 18v. Karlar 1. Ólafur Sigurðsson og Roði frá Eyri 8v. 2. Jóhannes Kristleifsson og Steinar frá Litla Bergi 12v. 3. Grettir Börkur Guðmundsson og Bragi frá Búðardal 6v. 4. Sigfús Jónsson og Feykir frá Sveinatungu 14v. 5. Haukur Bjarnason og Nútíð frá Skáney 11v. Hestamót helgarinnar GRANI er hestamannafélag sem á sinn engan líka meðal hestamanna- félaga. Það starfar einungis hluta úr ári og félagatalið er síbreytilegt að stærstum hluta því hlutverk þess er fyrst og fremst að vera vettvangur þeirra nemenda Landbúnaðarhá- skólans á Hvanneyri sem kjósa að stunda hestamennsku meðan á námi stendur. Það er því óhætt að fullyrða að ekkert hestamannafélag á land- inu hafi haft jafnmarga einstaklinga innan sinna vébanda á þessum fimmtíu árum frá því félagið var stofnað. Meðal fyrrum félaga eru margir kunnir hestamenn í dag og meðal þeirra Ágúst Sigurðsson hrossaræktarráðunautur sem var heiðursgestur afmælis og fluttti hann erindi af því tilefni þar sem hann kynnti sína framtíðarsýn í hestamennsku og hrossarækt. Þar á meðal ræddi hann hugmynd sína um innflutning á erfðaefni úr íslenskum hrossum erlendis sem gæti orðið nauðsynlegt ef Íslendingar ætli að halda þeirri forystu sem þeir hafa í ræktun íslenskra hrossa. Einnig benti hann á að það gæti gagnast í viðleitni við að viðhalda erfðabreyti- leika í íslenska hrossastofninum og sporna gegn því að skyldleiki verði of mikill í stofninum hér á landi. Hann benti á að þegar Íslendingar flytja stöðugt út góð kynbótahross sem okkur vissulega bæri að gera væri hætt við að samkeppnisstaða okkar myndi hægt og bítandi versna ef við hefðum ekki möguleika á að fá eitthvað til baka. Sagði hann að í raun væri ekki eftir neinu að bíða með að láta reyna á hvort þetta væri mögulegt því gera mætti ráð fyrir að mál sem þetta gæti tafist í kerfinu og því nauðsynlegt að fá það á hreint hvort þetta sé fær leið. Þá afhenti Ágúst sínu gamla félagi veglegan bikar frá Bændasamtökum Íslands en tók fram að ekki væri af samtakanna hálfu nein áform um í hvað ætti að nota bikarinn en vel færi á því að gera þetta að farand- bikar en ráðunauturinn bætti svo við í léttari tón að í versta falli mætti þá taka lokið af og nota hann sem blómsturpott. Langþráð skólafjós í höfn Aðstaða til iðkunar hestamennsku á Hvanneyri hefur batnað allnokkuð síðustu árin og þótt langþráð hest- hús hafi ekki enn verið byggt þykj- ast hestaunnendur á Hvanneyri sjá fyrir sér að nú verði það næsta ný- bygging sem ráðist verður í á Hvanneyri þar sem loksins sé nú bú- ið að byggja ennþá langþráðara skólafjós og er nú að sjá hvað setur. Kennslu í hestamennsku og hrossarækt var í vetur í höndum Magnúsar Þ. Lárussonar og Svan- hildar Hall sem bæði eru vel mennt- aðir hestafræðingar. Að þeirra til- stuðlan var aukið við námið á þessu sviði og er það vel því eins og þau sögðu er full ástæða til að standa vel að menntun bændaefna í þessari vaxandi grein og getur það verið góð búbót ef bændur geta komið að tamningu hrossa sem þeir sjálfir framleiða. Alls voru það tíu nemendur sem þátt tóku í hestamennskunni á Hvanneyri í vetur og sýndu nem- endur árangurinn af tamningum vetrarins á skeifudaginn. Þar bar hæstan hlut vestur-húnvetnsk mær Sigríður Ólafsdóttir og hlaut hún að launum hina eftirsóttu Morgun- blaðsskeifu. Viðfangsefni Sigríðar í tamningum vetrarins var Skrámur frá Innri Skeljabrekku, borgfirskt gæðingsefni. Sigríður hlaut einnig ásetuverðlaun Félags tamninga- manna. Þess má geta að systir Sig- ríðar hefur einnig hlotið Morgun- blaðsskeifuna og mun það í annað skipti sem slíkur skyldleiki er milli skeifuhafa. Í hinu tilvikinu voru það bræður sem áttu hlut að máli. Í öðru sæti varð Þórunn Eyjólfsdóttir en hún tamdi og sýndi á skeifudaginn Ketil frá Starrastöðum og í þriðja sæti varð svo Jóhann Þorsteinsson á Prinsessu frá Álftagerði en hann hlaut einnig Eiðfaxabikarinn sem veittur er fyrir bestu umhirðu á tamningatrippi. Haldið upp á fimmtugsafmæli Hestamannafélagsins Grana á skeifudaginn Tímamótaár á Hvanneyri Merk tímamót voru hjá Hestamannafélaginu Grana á Hvanneyri sumardaginn fyrsta þegar haldið var upp á hálfrar aldar afmæli félagsins á skeifudaginn sem að jafnaði er hápunkturinn í starfsemi félagsins. Valdimar Kristinsson brá sér í Borgarfjörðinn og heimsótti sinn gamla skóla sem nú er orðinn háskóli. Sigríður Ólafsdóttir á folanum Skrámi. Morgunblaðið/Vakri Hestamennskan dafnar vel á Hvanneyri en nú tóku tíu nemendur skólans þátt í keppninni um Morgunblaðsskeifuna. DAGANA 5.–9. maí mun gæð- inganefnd Fáks halda lokað gæðingamót og opið punkta- mót í tölti. Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, A- og B- flokki, 100 metra fljúgandi skeiði og tölti. Einnig verður boðið upp á pollaflokk. Heimilt verður að skrá fleiri en einn hest í yngri flokkum en komi knapi fleiri en einum hesti í úr- slit verður hann að velja hverj- um hann vill ríða. Einnig er heimilt að skrá fleiri en einn hest í tölti. Skráning verður í Félagsheimili Fáks mánudag- inn 3. maí frá kl 18–20. Skrán- ingargjöld erukr 1.500 kr á grein, 500 í pollaflokk og 2.500 í tölti. Nefndin áskilur sér rétt til að fella niður greinar sé skráning ekki næg. Gæðinga- keppni og opið punkta- mót í tölti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.