Morgunblaðið - 26.04.2004, Page 33

Morgunblaðið - 26.04.2004, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2004 33 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6 og 8. Með ensku tali / Sýnd kl. 4. Með ísl tali „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið r i t t t fr r t tt r t i í í í r tt l i AKUREYRI Kl. 6. Með ísl tali KRINGLAN Sýnd kl. 6. Með ísl tali KRINGLAN Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. AKUREYRI Sýnd kl. 6 og 8 Það vilja allir vera hún, en hún vil vera „frjáls“ eins og allir aðrir.Sprenghlægileg rómantísk gamanmynd um forsetadóttur í ævintýraleit! Án efa einn besti spennuhrollur sem sést hefur í bíó. „The Dawn of the Dead“ er hressandi hryllingur, sannkölluð himnasending. Þá er húmorinn aldrei langt undan. Semsagt, eðalstöff. ” Þ.Þ. Fréttablaðið. Stranglega bönnuð innan 16 ára.  SV. MBL  VE. DV F r u m s ý n d e f t i r 1 1 d a g a Ævintýrahópurinn Ráðgáta hf er mætt aftur til að leysa hin undarlegustu mál eins og þeim einum er lagið! Toppskemmtun fyrir alla fjölskylduna! Nr 1 í USA! Fyrsta stórmynd sumarssins KEFLAVÍK Sýnd kl. 6 og 8. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. B.i 16 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.10.  Tær snilld. Skonrokk. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.20. AKUREYRI Sýnd kl. 10. AKUREYRI Sýnd kl. 8. ÁLFABAKKI Kl. 6, 8 og 10.10. KRINGLAN Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i.12 ára w w w. l e t t o g l a ggo t t . i s w ww. l e t t og l a ggo t t . i s w ww. l e t tog l a g got t . i s ww w. l e t t o g l a g go t t . i s ww w. le tt o g la gg ot t. is ww w. let tog lagg ott.is www.lettoglaggott.is www.lettoglaggott.is www.lettoglaggott.is VILTU VINNA FERÐ TIL ÍTALÍU? LEIKARINN Sylvester Stallone er aftur kominn í hnefaleikana, vænt- anlega í þeirri von að þeir komi ferli hans enn og einu sinni til bjargar. Stallone hefur ákveðið að framleiða nýja raunveruleikasjón- varpsþætti um hnefaleika sem koma til með að heita Keppandinn eða The Contender. Þættirnir verða með útsláttarfyrirkomulagi og seg- ir leikarinn 57 ára gamli að slíkt verkefni henti sér afar vel nú þegar hann hefur ekki lengur áhuga að vera fjarri fjölskyldunni of lengi við tökur á stórum kvikmyndum Stallone sló fyrst í gegn í mynd- inni Rocky þar sem hann lék ungan skapstóran Ítala sem barðist til æðstu metorða og náði á endanum að verða heimsmeistari í þungavikt. Myndin sló í gegn, fékk Óskar árið 1977, gat af sér nokkrar vinsælar framhaldsmyndir og gerði stór- stjörnu úr Stallone. Reuters Sylvester Stallone mun koma veru- lega við sögu í nýju hnefaleikasjón- varpsþáttunum. Hér sýnir hann gamla takta fyrir ljósmyndara í Los Angeles um helgina. Stallone í raunveru- leikasjónvarpi og liggur nærri að um 600 miðar séu nú farnir til félaga í Metaclub. Ragn- heiður Hanson segir að þegar hæst stóð hafi örugglega verið yfir þúsund manns í biðröð en miðasalan hafi samt gengið vel. Um 10 þúsund miðar verða í boði á tónleikana. Miðinn kostar 7500 kr. á svæði A sem er uppi við sviðið og 6500 kr. á svæði B sem er fyrir aftan, fjær sviðinu. Metallica leikur í Egilshöll 4. júlí. Almenn miðasala hefst um miðjan maímánuð. FORSALA á tónleika Metallica fór fram á laugardag og að sögn Ragn- heiðar Hanson þá seldist á 4 þúsund miða. Nær allir sem búnir voru að kaupa miða á tónleika Placebo nýttu forkaupsrétt sinn og þar að auki not- uðu félagar í alþjóðlegum aðdáenda- klúbbi sveitarinnar tækifærið til að kaupa miða. „Það voru um 35 manns skráðir í Metaclub á Íslandi fyrir, en eftir daginn voru félagarnir orðnir 300.“ Klúbbfélagar geta keypt sér tvo miða út á félagsskírteini sitt og lykilorð sem þeir fá á metaclub.com Reuters Mikill áhugi er fyrir tónleikum Metallicu í Egilshöll 4. júlí. Félögum í Metaclub snarfjölgar Forsala á Metallica-tónleika skipuleggja menningarviðburði út allt árið. Þetta má þakka dugmikilli menningarnefnd og velvilja bæjaryf- irvalda, sem eins og Sigríður Guðnadóttir fulltrúi í menningarnefnd sagði hafa lagt sitt af mörkum til að styrkja starfsemina. GUÐRÚN Gunnarsdóttir ásamt hljómsveit var með frá- bæra tónleika í Versölum í Þorlákshöfn 15. mars sl. Húsfyllir var á tónleikunum og kunnu tónleikagestir vel að meta frábær tilþrif þessa einstaka listafólks við að túlka sívinsæl lög Ellýjar Vilhjálmsdóttur og heiðra minningu hennar í leiðinni. Sérlegur gestasöngvari var Friðrik Ómar Hjörleifsson, frá Dalvík og söng hann nokkra dúetta með Guðrúnu og er þarna á ferðinni mik- ið efni í stórsöngvara. Það má með sanni segja að íbúar Þorlákshafnar og nágrennis hafa fengið stóraukinn skammt af menning- unni eftir að nýja Ráðhúsið var tekið í notkun. Það er gleðilegt til þess að vita að gestir út nágrannasveit- arfélögum okkar mæta á menningarviðburði til okkar. Hver menningarviðburðurinn rekur annan og búið er að „Óður til Ellýjar“ – tónleikar í Versölum Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Guðrún Gunnarsdóttir og hljómsveit fluttu „Óð til Ellýjar“ í Versölum, ráðhúsinu í Þorlákshöfn. SKÚLI Þórðarson er trúbadúr eða söngvaskáld og gerir út frá Ísa- firði. Hann var einn af þeim fjöl- mörgu sem tróðu upp á tónlistarhá- tíðinni þar, Aldrei fór ég suður, sem fram fór fyrir stuttu og er ágætis dæmi um þá miklu grósku sem er í gangi um þessar mundir í kringum Ísafjarðardjúpið. Skúli á að baki einn disk, sex laga, og ekki nema ríflega tíu mínútur að lengd. Um margt merkilegur gripur sem er heimabrenndur og gefinn út í tæplega 200 eintökum. Umslagið er ekkert minna en snilld og toppar al- gerlega heimspekina á bak við „heimabruggið“ eins og þetta er stundum kallað. Á því er einfaldlega mynd af hauskúpu, sem hefur verið tússuð upp með hraði, fyrir neðan er skraflað Skúli Þórðarson og svo er þetta ljósritað á rauðan pappír. Gæti ekki verið einfaldara – en um leið af- ar skemmtilegt og stílhreint. Það má næstum segja að í umslaginu felist lúmsk, pólitísk yfirlýsing. Tónlistin er einföld, bara Skúli og gítarinn. Hljómgæðin eru þó fyrir- tak enda upptaka í höndum Vern- harðs Jósefssonar (sem eitt sinn plokkaði bassa með Geirfuglunum). Röddin er nálægt manni og sömu- leiðis gítarinn. Skúli virðist kunna aðeins meira en vinnukonugripin, og bregður einatt fyrir skemmtilegum slaufum og snúningum. Tónlistin er svona venjubundin kassagítartón- list, með nettum þjóðlagablæ. Rödd Skúla er hlý, tær og skýr en söngröddin svona í meðallagi. Textarnir eru klárlega vinstra megin við línuna og fylgja hefðbund- inni mótmælasöngvalínu. Upphafs- lagið „Verst er sem best er“ gagn- rýnir fyrirgreiðslupólitik – hina alíslensku klíkustarfsemi, kvóta- kerfið, markaðsvæðingu og fleira. Hæfandi upphafslag! „Hér lifa í velsæld markaðsljón/en lítið er að hafa fyrir meðal Jón“ segir þar m.a. En Skúli tekst líka á við mál sem varða dýrslegri hvatir og volar um kvennafar sitt og drykkju í henni Reykjavík. Svo er hér lagið „Vísur heilla ráða nr. 1“ sem inniheldur hina ágætustu punkta um hvernig maðurinn getur gert vegferð sína betri í lífinu. Lagavalið sýnir því í raun hið þversagnakennda eðli mannsins. Textarnir fylgja með, snyrtilega útprentaðir, til fyrirmyndar þegar um svona plötu er að ræða. Allt í allt lítil og skemmtileg plata. Tónlist Heilræða- og drykkjuvísur Skúli Þórðarson Skúli Þórðarson  Lög og textar eru eftir Skúla Þórðarson sem syngur og leikur á gítar. Um upptöku sá Vernharður Jósefsson. Dauðarokk S.M. gefur út. Arnar Eggert Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.