Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 53
GAUKUR Á STÖNG Dúnd-
urfréttir með tónleika í
kvöld frá 22.30 til 1.00. Eftir
það munu Buff skemmta.
GRAND ROKK Fjórðu (og í
bili síðustu) söfnunartón-
leikarnir fyrir Palestínu
verða í kvöld. Eru þessir
tónleikar liður í tónleikaröð
þar sem allur ágóði rennur
til neyðarsöfnunnar Félags-
ins Ísland-Palestína. Þetta
eru þeir fjórðu í röðinni og
jafnframt þeir síðustu í bili.
Þeir sem koma fram eru 5ta
herdeildin, Siggi Ármann,
Retron (með Kolla úr
Graveslime), Beikon (innan-
borðs meðlimir Stjörnukisa)
og The Viking Giant Show
(Heiðar í Botnleðju).
Aðgangseyrir er eins og áð-
ur 500 krónur og fer fyrsta
sveit á svið klukkan 21.00.
Varningur frá Félaginu Ís-
land-Palestína (bolir, merki,
blöð og fánar) verður til sölu
á staðnum.
JÓN FORSETI Dúkkulís-
urnar með tónleika. Einnig
leika Barbarella og Rokkslæðan.
Klukkan 22.00. Miðaverð er 700
krónur. Húsið opnað klukkan 20.00.
Nýtt myndband með Dúkkulísum
verður frumflutt.
KLINK OG BANK Fjórða Tímakvöld-
ið verður haldið í fundarherbergi
Klink og Bank, Brautarholti, í kvöld
á milli klukkan 21.00 og 23.00. Á
þessum kvöldum eru hin og
þessi fyrirbæri innan tón-
listar og annarra tíma-
tengdra lista tekin fyrir.
Í kvöld ræðir Birgir Örn
Thoroddsen um eðli hljóðs.
Í tilkynningu segir: „Hvað
er hljóð? - Hvað …er það og
hvernig er unnið með það?
… Birgir Örn Thoroddsen
fjöllistamaður ræðir um eðli
hljóðs og hvernig listamenn
geta nýtt sér rétta meðferð
þess til að bæta og auðga
verk sín.“
Aðgangur að kvöldinu er
ókeypis.
RAUÐA LJÓNIÐ Kvenna-
kvöld. Hljómsveit Hilmars
Sverrisonar spilar fyrir
dansi til klukkan þrjú.
STÚDENTAKJALLARINN
Touch spila. Tónleikarnir
byrja kl. 22:00.
Í DAG
The Viking Giant Show er nýtt verkefni
Heiðars í Botnleðju. Hann kemur fram í
kvöld ásamt fleirum á Grand Rokk, á sér-
stökum söfnunartónleikum fyrir félagið Ís-
land Palestína.
Erla Ragnarsdóttir, söngvari í
Dúkkulísunum, treður upp á Jóni
forseta.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Morgunblaðið/Jim Smart
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is