Morgunblaðið - 03.06.2004, Page 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FORSETI SYNJAR
Forseti Íslands synjaði í gær
staðfestingar frumvarpi til laga um
eignarhald á fjölmiðlum sem Al-
þingi samþykkti í maí síðastliðnum.
Forsetinn sagði á blaðamannafundi
sem hann boðaði til á Bessastöðum
að skort hefði þann samhljóm sem
þurfi að vera á milli þings og þjóðar
í svo mikilvægu máli. Brúa þurfi gjá
milli vilja þings og þjóðar og það
verði best gert með því að þjóðin
meti lagafrumvarpið í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra segir
að upp sé komin fullkomin óvissa í
kjölfar ákvörðunar forseta. Þjóð-
aratkvæðagreiðsla muni þó fara
fram.
Myrti bekkjarsystur sína
Ellefu ára japönsk skólastúlka
myrti bekkjarsystur sína með
bréfahníf á þriðjudaginn. Talið er að
móðganir á heimasíðu séu orsök
voðaverksins, sem átti sér stað í
borginni Sasebo í suðurhluta Jap-
ans.
Áfall fyrir Bush
Svæðisdómari í San Francisco í
Bandaríkjunum hefur kveðið upp
þann úrskurð, að lög um bann við
fóstureyðingum á fimmta eða sjötta
mánuði meðgöngu stangist á við
stjórnarskrá landsins. Þykir úr-
skurðurinn talsvert áfall fyrir
George W. Bush forseta, sem skrif-
aði undir lögin fyrir aðeins hálfu ári.
Leifsstöð í hljóð og mynd
Tollgæslan í Leifsstöð vinnur að
því að koma upp upptökubúnaði til
að taka upp mynd og hljóð í kjölfar
atvika þar sem farþegar hafa ásak-
að tollverði um ófagmannleg vinnu-
brögð og jafnvel kynþáttafordóma.
Stefnumörkun kynnt
Stefnumörkun Þingvallanefndar
fyrir þjóðgarðinn á Þingvöllum til
ársins 2024 var kynnt í gær en hún
miðar að því m.a. að Þingvellir fari á
heimsminjaskrá UNESCO.
Hagnaður í Kauphöll
Hagnaður fyrirtækja í Úrvals-
vísitölu Kauphallar Íslands jókst
um 175% milli ára á fyrsta fjórðungi
ársins eða úr 7,8 milljörðum króna í
fyrra í 21,6 milljarða króna í ár.
Aukinn hagnaður skýrist nær ein-
göngu af auknum hagnaði banka og
fjárfestingarfyrirtækja.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 34/35
Erlent 16/19 Minningar 36/39
Minn staður 20 Skák 43
Höfuðborgin 21/22 Kirkjustarf 43
Akureyri 22 Brids 43
Suðurnes 23 Bréf 44
Austurland 24 Dagbók 46/47
Landið 25 Staksteinar 46
Neytendur 27 Íþróttir 48/51
Listir 28/29 Fólk 52/57
Forystugrein 30 Bíó 54/57
Þjónusta 33 Ljósvakamiðlar 58
Viðhorf 34 Veður 59
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FRÍSKLEGUR hópur krakka úr 9.
bekk Smáraskóla í Kópavogi mætti
blaðamanni og ljósmyndara Morg-
unblaðsins við Esjurætur í gærdag.
Alls höfðu 43 ungmenni gengið
saman á Esjuna í gærmorgun, en nú
er síðasta vikan í skólanum fyrir
sumarfrí og prófin að baki. Þótti til-
valið að fara í uppbyggjandi göngu í
lok skólaársins.
Þrátt fyrir nokkra rigningu var
kyrrt veður, en nokkuð hvasst hafði
verið á toppnum, sögðu þau Alex-
andra, Ólöf og Skender, sem voru
meðal krakkanna sem þegar voru
komnir niður af Esjunni, en enn
voru um 15 krakkar á leiðinni nið-
ur.
„Veðrið versnaði eftir því sem við
fórum hærra, og efst uppi var ískalt
og þoka,“ sagði Ólöf. Nokkrir
krakkanna fóru næstum því alveg
upp á topp, en aðrir fóru eitthvað
styttra.
Bekkirnir víða á ferð
„Það er mjög gaman að fara á
Esjuna,“ sögðu krakkarnir. „Þetta
var nokkuð erfitt á kafla, en það er
stígur alla leið upp sem gerir göng-
una léttari,“ bættu Alexandra og
Ásta við. Aðrir bekkir skólans lögðu
einnig land undir fót í gær, og fór til
dæmis 6. bekkur á Þingvelli og 10.
bekkur í gönguferð við Elliðavatn.
Þegar blaðamaður forvitnast um
sumarplönin verður margt um svör.
Sumir ætla til útlanda, aðrir ætla að
vinna, en nokkrir segjast að
minnsta kosti ekki ætla á Esjuna
aftur í bráð.
Tekist á við Esjuna eftir prófin
Morgunblaðið/RAX
Krakkarnir gengu fylktu liði niður brekkuna eftir Esjugöngu.
ELLEFU aðilar hafa sent Davíð
Oddssyni forsætisráðherra og Hall-
dóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra
áskorun vegna málefna fanga í flota-
stöð Bandaríkjamanna við Guant-
anamoflóa á Kúbu. Að áskoruninni
standa ASÍ, BSRB, Deiglan.com, Ís-
landsdeild Amnesty International,
Múrinn, Sellan, Skoðun, Tíkin, Ung
frjálslynd, Ung vinstri græn og Ung-
ir jafnaðarmenn.
Skorað er á ríkisstjórn Íslands að
koma mótmælum á framfæri með
formlegum hætti við ríkisstjórn
Bandaríkjanna vegna þeirra mann-
réttindabrota sem viðgangast í her-
stöðinni við Guantanamo. Jafnframt
er skorað á ríkisstjórnina að fara
fram á að annaðhvort verði fangarnir
ákærðir eða þeim sleppt úr haldi.
Lagalegt tómarúm
Talið er að tæplega 600 fangar séu
nú í haldi í Guantanamo-herstöðinni
en rúm tvö ár eru síðan fyrstu fang-
arnir voru handteknir. Yngstu fang-
arnir eru 16 og 17 ára gamlir en áður
voru þar börn niður í 13 ára.
Í fréttatilkynningu frá þeim sem
standa að baki áskoruninni segir að
föngunum í herstöðinni við Guant-
anamo-flóa sé haldið í eins konar
lagalegu tómarúmi þar sem enginn
dómstóll, hvorki borgaralegur dóm-
stóll né hefðbundinn dómstóll, hefur
lögsögu að mati ríkisstjórnar Banda-
ríkjanna.
Rödd Íslands skiptir máli
Að sögn Jóhönnu K. Eyjólfsdóttur,
framkvæmdastjóra Íslandsdeildar
Amnesty International (AI), standa
vonir til að íslensk stjórnvöld mót-
mæli ástandinu í Guantanamo með
formlegum hætti og að fleiri ríkis-
stjórnir fylgi í kjölfarið. Jóhanna seg-
ir að Íslandsdeild AI hafi sent utan-
ríkisráðherra skýrslu um ástandið í
Guantanamo ásamt áskorun um að
mótmæla þeim formlega 8. mars sl.
„Við fengum svör frá utanríkisráð-
herra þar sem því var haldið fram að
Ísland hafi á alþjóðavettvangi komið
með athugasemdir við þetta ástand
en við teljum að það sé ekki nóg.
Rödd Íslands þarf að vera miklu
skýrari,“ segir Jóhanna.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segist fagna samstöðunni sem
hafi skapast gegn mannréttindabrot-
um í Guantanamo-herstöðinni.
Þess má geta að undirskriftasöfn-
un um að þrýsta á íslensk stjórnvöld
að setja fram formleg mótmæli vegna
mannréttindabrota á föngunum í
Guantanamo-herstöðinni er hafin á
vefslóðinni: http://www.skodun.is/
undirskrift.
Ríkisstjórnin mótmæli mann-
réttindabrotum í Guantanamo
RANNSÓKN lögreglu á and-
láti 11 ára gamallar stúlku
sem fannst látin á Hagamel í
Reykjavík á mánudagsmorg-
un hefur styrkt tilgátu lög-
reglunnar um að móðir stúlk-
unnar hafi orðið henni að
bana og veitt 14 ára syni sín-
um áverka, að sögn Harðar
Jóhannessonar, yfirlögreglu-
þjóns hjá lögreglunni í
Reykjavík.
Viðræðum við
móðurina haldið áfram
Rannsókn málsins og við-
ræðum við konuna var haldið
áfram í gær og segir Hörður
áherslu lagða á að hraða rann-
sókninni eins mikið og unnt
er. Hann vill hins vegar ekki
tjá sig nánar um rannsóknina
á þessu stigi málsins.
Móðirin og drengurinn
liggja enn á spítala en móðirin
er úr lífshættu og drengurinn
er að hressast samkvæmt
upplýsingum lögreglu.
Tilgáta
lögreglu
styrkist
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþing-
is, átti í gær ásamt forsetum þjóð-
þinga Norðurlandanna og Eystra-
saltsríkjanna fund með Dennis
Hastert, forseta fulltrúadeildar
bandaríska þingsins. Að sögn Hall-
dórs er tilgangur heimsóknarinnar
að skapa grundvöll fyrir meira sam-
starf milli þessara landa á sviði þings-
ins en heimsóknin hefur staðið yfir
undanfarna daga.
„Við teljum mjög mikilvægt að efla
samskipti landanna beggja vegna
Atlantshafsins á vettvangi þingsins.
Bandaríkjamenn tóku undir það með
okkur að það væri mjög gagnlegt ef
það gæti tekist. Jafnframt var komið
inn á ýmis málefni sem varða þessar
þjóðir almennt og einnig var komið
inn á samskipti þjóðanna við Banda-
ríkin. Auk þess var fjallað um örygg-
ismál, stöðuna fyrir botni Miðjarðar-
hafs, málefni heimskautalandanna og
stöðuna í Evrópu,“ sagði Halldór.
Varnarsamstarf Íslands og Banda-
ríkjanna var rætt stuttlega á blaða-
mannafundi sem haldinn var með
þingforsetunum í gær. Á fundinum
sagði Halldór að Ísland hefði átt
langt og gott samstarf við Bandaríkin
í varnarmálum og þrátt fyrir breytta
tíma og minni umsvif Bandaríkja-
manna á Íslandi, legðu Íslendingar
mikið upp úr því að ná samkomulagi
við Bandaríkjamenn á jafnréttis-
grundvelli þar sem tekið væri tillit til
öryggishagsmuna beggja aðila.
Heimsókn Halldórs lauk í gær.
Heimsókn forseta Alþingis til Washington
Rætt um
aukið
samstarf
þinganna
Ljósmynd/Yuri Gripas
Halldór Blöndal tekur hér við gjöf frá Dennis Hastert, forseta full-
trúadeildar bandaríska þingsins, eftir fund Hasterts með forsetum þjóð-
þinga Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Washington í gær. Í öskj-
unni var glerdiskur.