Morgunblaðið - 03.06.2004, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í
sólina í júní á hreint ótrúlegum kjörum og tryggt þér síðustu sætin
til Benidorm, þessa vinsæla áfangastaðar. Þú bókar tvö sæti en
greiðir bara fyrir eitt, og getur
valið um úrval góðra gististaða á
meðan á dvölinni stendur.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.990
Fargjald kr. 32.600/2 = 16.300.
Flugvallarskattur kr. 3.690. Ferðir til og
frá flugvelli kr. 1.800.
Verð kr. 2.490
Verð á mann hver nótt, m.v. 2 í íbúð,
Trinisol III. Val um 1 eða 2 vikur.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu 22 sætin
2 fyrir 1 til
Benidorm
23. júní
frá kr. 19.990
Úrvals gististaðir
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, hefur gefið
út reglugerð sem felur í sér breyt-
ingar á reglugerð um bifreiðakaupa-
styrki. Útgjöld Tryggingastofnunar
ríkisins vegna bifreiðakaupastyrkja
voru 530 milljónir króna á árinu 2003
og höfðu þá ríflega þrefaldast miðað
við útgjöld ársins 2002. Útgjalda-
aukningunni olli reglugerðarbreyt-
ing sem tók gildi í ársbyrjun 2003.
Með setningu hinnar nýju reglu-
gerðar er verið að draga úr útgjalda-
aukningunni sem varð umtalsvert
meiri en gert var ráð fyrir með
reglugerðarbreytingunni á sínum
tíma.
Arnþór Helgason, framkvæmda-
stjóri Öryrkjabandalags Íslands,
segir að þar á bæ sé þungt í mönnum
hljóðið vegna hinnar nýju reglugerð-
ar, en reglugerðin, sem tók gildi 1.
júní sl., felur í sér breytingar á skil-
yrðum sem þeir þurfa að uppfylla
sem rétt eiga á styrkjum frá Trygg-
ingastofnun ríkisins til að kaupa bif-
reiðar. Samkvæmt fréttatilkynningu
frá heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneyti felast tvær meginbreyt-
ingar í nýju reglugerðinni: „Í fyrsta
lagi er verið að lengja tímann sem
líður á milli styrkja úr fjórum árum í
fimm þegar menn sækja um að end-
urnýja bifreiðar. Í öðru lagi mun
réttur til 500 þúsund króna styrkja
miðast við að viðkomandi sé að
kaupa sína fyrstu bifreið.“
Að sögn Arnþórs er reglugerðin
ekki stjórnvöldum til sóma. „Hér á
landi má segja að lán eða styrkir til
bifreiðakaupa séu veittir með
skemmra millibili en sums staðar
annars staðar á Norðurlöndunum en
Ísland sker sig úr vegna þess hve
upphæðir hér eru lágar. Þær eru
lægri en annars staðar þekkist. Þeir
bera það fyrir sig að útgjöld til bif-
reiðamála fatlaðra hafi rokið upp úr
öllu valdi síðastliðið ár, en það ár var
mjög sérstakt vegna þess að árið þar
á undan hafði myndast ákveðin stífla
og menn höfðu margir hverjir ekki
efni á því að leysa út styrki sína og
það voru margir sem fengu styrki í
fyrsta sinn og það hleypti upphæð-
inni talsvert upp. Nú er það hins veg-
ar að gerast að tíminn á milli styrkj-
anna er lengdur og þar að auki eru
þrengd ákvæði um uppbætur vegna
bifreiðakaupa fyrir þá sem eru
hreyfihamlaðir og það finnst mér
hreint og beint heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra til hneisu,“ segir
Arnþór.
Á skjön við mat á lífsgæðum
Gagnrýni Öryrkjabandalagsins
snýr einkum að þremur þáttum
reglugerðarinnar. „Í fyrsta lagi eru
þrengd skilyrði fyrir því að hreyfi-
hamlaðir einstaklingar fái uppbót
vegna bifreiðakaupa. Áður kvað 4.
tölul. 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar
á um það, að hinn hreyfihamlaði væri
bundinn í hjólastól, notaði hækjur,
spelkur eða gervilimi, en nú er sér-
staklega tekið fram að fólk þurfi að
vera með tvær hækjur og/eða sé
bundið hjólastól að staðaldri. Ein-
staklingar sem nota staf eða eina
hækju komast yfirleitt ekki leiðar
sinnar án þess að ferðast með bifreið
og fjöldi fólks sem notar gervilimi
þarf á bifreið að halda. Þessi breyt-
ing er því á skjön við mat á lífsgæð-
um í okkar samfélagi.
Í öðru lagi þá er tíminn á milli
styrkveitinga lengdur úr fjórum ár-
um í fimm og í einu tilviki upp í sex
ár, þar sem um er að ræða hæstu
styrkina vegna þeirra sem eru mest
hreyfihamlaðir. Þá eru fjárupphæð-
irnar algerlega óbreyttar, sem hefur
það í för með sér að um verulega
kjaraskerðingu er að ræða.“
Brot á heiðursmanna-
samkomulagi
Arnþór segir heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra hafa brotið
heiðursmannasamkomulag við Ör-
yrkjabandalag Íslands og segir
vinnubrögðin í samræmi við það að
ræða ekki við samtök fatlaðra. „Við
höfum að vísu vitað um að það stæði
til að breyta þessari reglugerð en
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra hét okkur því að það yrði ekki
gert án samráðs við Öryrkjabanda-
lagið. Það hefur ekkert samráð verið
haft. Okkur grunaði hvað væri að
gerast þegar við áttuðum okkur á
því, föstudaginn 14. maí sl., að búið
væri að loka þeim hluta heimasíðu
Tryggingastofnunar ríkisins, sem
fjallaði um bifreiðamál öryrkja. Þeg-
ar hann var opnaður aftur var greini-
lega komin ný reglugerð. Þetta eru
ekkert annað en svik á heiðurs-
mannasamkomulagi og þessi
óskapnaður er í algjöru samræmi við
það að ræða ekki við samtök fatlaðra.
Evrópusamtök fatlaðra hafa kjör-
orðið „ekkert um okkur án okkar“ en
íslensk stjórnvöld virðast hafa að
markmiði allt um okkur án okkar.“
Breyttar reglur um bifreiðakaupastyrki
Dregið úr útgjaldaaukningu
OLÍUFÉLÖGIN, utan Atlantsolíu og Ork-
unnar, hækkuðu í gær og fyrradag elds-
neytisverð á stöðvum sínum. Bensínlítrinn
hjá Olís, Skeljungi og Olíufélaginu Esso
hækkaði á þjónustustöðvum um fjórar
krónur og dísilolíulítri um tvær krónur.
Frá því í febrúar hefur bensínið hækkað
um tæp 15% hér á landi.
Hæsta bensínverðið var hið sama með
fullri þjónustu hjá Esso, Olís og Skeljungi,
eða 113,20 kr. fyrir 95 oktana bensín og
52,60 kr. fyrir dísilolíu. Sjálfsafgreiðsluverð
á sömu stöðvum var yfirleitt fimm krónum
ódýrara fyrir bæði bensín og dísilolíu.
Ástæða hækkana nú er sögð spenna á ol-
íumörkuðum þar sem olíuverð hafi ekki
verið hærra um árabil. Í tilkynningu Esso,
sem hækkaði í gær í kjölfar hækkana Olís
og Skeljungs, segir að væntingar um lækk-
anir hafi ekki staðist og vegna ófriðar í
Mið-Austurlöndum hafi verið tekið stökk
upp á við á nýjan leik.
Munur á lægsta og hæsta verði í gær á
95 oktana bensíni á höfuðborgarsvæðinu
var tæpar 14 krónur og hagstæðustu kaup-
in virtust almennt vera í Hafnarfirði og
Kópavogi, næst stöðvum Atlantsolíu.
Lægst var verðið 99,80 kr. á þremur stöðv-
um Orkunnar og framan af degi var svipað
verð á nokkrum stöðvum Ób og Ego sem
síðan hækkuðu verðið vel upp fyrir 100
krónur. Atlantsolía bauð bensínlítrann á
101 krónu en algengasta verðið hjá
Orkunni var 102,50 krónur, Ego var með
103,90 kr. á stöðvum sínum í Kópavogi síð-
degis í gær en 106,60 í Reykjavík. Algengt
verð hjá Ób var 106,60 kr. en lægra á viss-
um stöðum, m.a. 103,90 kr. í Kópavogi og
Hafnarfirði.
Lítri af dísilolíu hjá sjálfsafgreiðslustöðv-
unum var frá 42,50 kr. og upp í 46 krónur.
Metan hf. sendi í gær frá sér tilkynningu
þar sem minnt var á kosti metaneldsneyt-
isins sem fengist á afgreiðslustöð Esso á
Ártúnshöfða. Metanið er framleitt á urð-
unarstað Sorpu í Álfsnesi og er 33% ódýr-
ara en ódýrasta bensínið á höfuðborgar-
svæðinu, að því er segir í tilkynningunni.
Kostar metanið 80 kr. rúmmetrinn, sem
svarar í orku til 72 króna á lítra, miðað við
95 oktana bensín.
Öll félög nema
Orkan og
Atlantsolía
hafa hækkað
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
SAMKVÆMT samtölum sem Morgunblaðið
átti við ökumenn á nokkrum bensínstöðvum í
gær hafa þeir miklar áhyggjur af eldsneyt-
ishækkunum síðustu daga og vikur. Höfðu
þeir á orði að ef hækkanir yrðu meiri í sumar,
þá færu þeir alvarlega að íhuga að fá sér dís-
ilbíl.
Bensínafgreiðslumenn, sem rætt var við,
höfðu svipaða sögu að segja og sögðust skilja
vel áhyggjur fólks yfir verðhækkunum. Stund-
um bitnaði reiði fólks á þeim en yfirleitt sýndu
ökumenn fullan skilning á aðstæðunum. Einn
afgreiðslumaður sagðist varla snúa sér við,
öðruvísi en að verðið hækkaði á skiltunum á
meðan. Þetta gerðist í raun á Esso-stöð í Hafn-
arfirði, á meðan Morgunblaðsmenn litu þar
við í gærmorgun. „Tölunum er breytt í tölvu í
höfuðstöðvunum og við komum ekki nálægt
þessu,“ sagði bensínafgreiðslumaður Esso.
Kemst varla á milli stöðva
Við stöð Orkunnar í Hafnarfirði var Guð-
mundur Ólafsson að dæla bensíni á stóran fjöl-
skyldubíl sinn. Hann sagðist ávallt leita eftir
því hvar verðið væri lægst hverju sinni, að
minnsta kosti á sjálfsafgreiðslustöðvum sem
tækju peningaseðla. Kort notaði hann ekki.
„Þessar hækkanir eru ömurlegar, nú orðið
kemst maður varla á milli bensínstöðva,“ sagði
Guðmundur, sem reiknaði með að fara að
íhuga kaup á stórum sjö manna dísilbíl handa
fjölskyldunni ef bensínið héldi áfram að
hækka í verði. „Maður fær tíu lítra fyrir þús-
und kallinn og kemst ekki langt á því á svona
bíl.“
Einn fárra ökumanna á Esso-stöðinni við
Lækjargötu í Hafnarfirði sem lét dæla fyrir
sig bensíninu á bílinn í gærmorgun var Hlöð-
ver Hjálmarsson. Hann sagði þetta und-
antekningu, yfirleitt dældi hann sjálfur. Um
verðhækkanirnar sagði Hlöðver þær koma sér
illa, hann notaði bíl mikið vinnu sinnar vegna.
„Eitt af því sem ég skil ekki er að bensínið
hækkar hér sama dag og úti í heimi en ef
lækkun á sér stað kemur hún hér fram nokkr-
um mánuðum síðar. Mér virðist að Öskjuhlíð-
arsamtökin séu enn að og hækka allt sama
daginn með sömu krónutölu,“ sagði Hlöðver,
sem óttaðist frekari hækkanir í sumar. Bens-
ínkostnaður væri stór hluti af rekstri heim-
ilanna og hækkanirnar væru farnar að segja
mikið til sín.
Á Olís-stöðinni við Mjódd var Þorsteinn
Pálsson að dæla á sinn bíl. Aðspurður sagðist
hann ekki vera sáttur við bensínhækkanir.
Þær kæmu illa við sig og fjölskylduna, sem
notaði tvo bensínbíla. „Ég er mjög svekktur
yfir þessum hækkunum. Maður er eiginlega
hættur að taka eftir þeim, verðið bara hækkar
og hækkar og hefur hækkað í hvert sinn sem
maður tekur bensín,“ sagði Þorsteinn. Hann
sagðist reyna að leita að lægsta verðinu hverju
sinni og dældi þá yfirleitt sjálfur. Hvort til
greina kæmi að skipta yfir í dísilbíl sagði Þor-
steinn það vel íhugandi, ekki síst þar sem
stefndi í breytingu á olíugjaldinu.
„Verðið bara hækkar og hækkar“
Morgunblaðið/Golli
Guðmundur Ólafsson leitaði uppi lægsta verð.
Morgunblaðið/Golli
Þorsteinn Pálsson dælir á annan bílinn sinn.
Morgunblaðið/Golli
Hlöðver Hjálmarsson lét að þessu sinni dæla bensíninu fyrir sig.