Morgunblaðið - 03.06.2004, Qupperneq 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Búum til þjóð | Eftir tveggja daga vinnu á
þemadögum settu nemendur Grunnskóla
Grindavíkur upp sýningu sem bar heitið
„Búum til þjóð“. Mikil litadýrð var í skrúð-
göngu sem farin var um bæinn.
Börnunum var skipt í aldursblandaða
hópa. Fyrsta verkefni þeirra var að nefna
landið og þar kenndi ýmissa grasa, svo sem
Gleðiland, Regnbogaland, Boltaland og
Marsel. Þá þurfti að ákveða helstu einkenni
þjóðarinnar, stærð og lögun landsins, sögu,
menningu o.s.frv. Ekki var annað að sjá á
vinnudögunum að allir nytu sín vel. „Gaman
að sjá alla þá sköpunargleði sem ríkti á þess-
um dögum og sjá unglingana okkar vinna
með yngstu nemendum skólans. Sérstaklega
fannst mér skemmtilegt að sjá umhyggjuna
sem þau sýndu yngri nemendum,“ sagði
Gunnlaugur Dan Ólafsson, skólastjóri.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Vistvernd í verki | Verkefnið Vistvernd í
verki heldur áfram af fullum krafti en það
hefur staðið í tvö ár. Þetta er alþjóðlegt um-
hverfisverkefni fyrir heimili og hefur verið
starfrækt í 11 sveitarfélögum hér á landi.
Að því er fram kemur í frétt frá Landvernd
hafa á fimmta hundrað heimila tekið þátt og
þannig lagt sitt af mörkum til sjálfbærrar
þróunar. Verkefnið hefur skilað sýnilegum
árangri þar sem heimili hafa gripið til raun-
hæfra aðgerða til að bæta umhverfið.
Sýningarstandur sem tekinn var í notkun
á degi umhverfisins, 25. apríl sl., hefur nú
verið settur upp í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Síðar mun hann fara á milli sveitarfélaga en
tilgangurinn er að vekja fólk til umhusunar
um aðgerðir til að færa heimilishald í vist-
vænna form. Sjö fyrirtæki styrkja verk-
efnið en þau eru Landsvirkjun, Orkuveita
Reykjavíkur, Sorpa, Toyota, Dýrabær,
Yggdrasill og Tæknival. Verkefnið er jafn-
framt stutt af umhverfisráðuneytinu.
Dagur hinna villtublóma verðurhaldinn á öllum
Norðurlöndunum ásamt
Færeyjum og Grænlandi á
sunnudag,13. júní. Þá
gefst fólki víðs vegar um
landið kostur á að fara
stutta gönguferð um ná-
grenni sitt og fá leiðsögn
um algengustu plöntur
sem þar vaxa. Gönguferðir
þessar eru ókeypis fyrir
þátttakendur og ekki þarf
að tilkynna þátttöku fyrir
fram. Umhverfisráð Dal-
víkurbyggðar stendur fyr-
ir ferð frá Dalvíkurkirkju
þennan dag og verður far-
ið frá kirkjunni kl. 10 og
gengið upp í Hólana. Leið-
beinandi verður Þórir
Haraldsson kennari. Fólk
er hvatt til að nota þetta
tækifæri til að fræðast um
plönturíkið. Áhugafólki er
bent á vefsíðuna
www.floraislands.is segir í
frétt frá Dalvíkurbyggð.
Villt blóm
Kvennadeild Fjórð-ungssjúkrahúss-ins á Akureyri
hefur borist góð gjöf, en á
dögunum komu 3ja árs
nemar á leikskólabraut
Háskólans á Akureyri
færandi hendi á deildina.
Þeir höfðu safnað pen-
ingum sem nýttir voru til
að kaupa Lazy-boy stól
sem mun án efa koma sér
vel á deildinni. Á mynd-
inni eru nokkrir nemanna
ásamt Ingibjörgu Jóns-
dóttur deildarstjóra.
Fengu stól að gjöf
Í Viðhorfi fyrir rúmuári lofaði undirrit-aður að svara ljóða-
bréfi Rúnars Kristjáns-
sonar frá Skagaströnd. Í
haust var Rúnar farið að
lengja eftir svari:
Á vordögum lofað var sendingu
svars
með saumuðu og vottfestu gildi.
Það gerðist að áliti mínu í mars
en margt fer nú öðruvísi en
skyldi!
Svo ennþá ég þolandi og þreyj-
andi bíð
og það fer að líða að vetri.
En kannski með skammdegis
kulda og hríð
þá kemur nú svarið frá Pétri!
Á mannlegum afköstum yfirleitt
sést
að orkuna fjölmargir spara.
Og víst þurfa ýmsir sinn full-
komna frest
svo fært verði einhverju að
svara!
Ég veit ekki um Pétur, hvert við-
horf hans er,
en vottfesta gildið er skrítið.
Og oft fer það þannig í heim-
inum hér
að heiðurinn fer fyrir lítið!
Í dag verður svarið póst-
lagt og birt á morgun.
Hvar er bréfið?
pebl@mbl.is
Djúpivogur | Ný þrjátíu tonna tvíbytna kom
til heimahafnar á Djúpavogi nýlega. Bátur-
inn var smíðaður í Póllandi og hefur fengið
nafnið Sigurrós. Sigurrós er í eigu laxeld-
isfyrirtækisins Salar Islandica sem er með
laxeldi í Berufirði.
Gunnar Steinn Gunnarsson segir að eldið
gangi vel, nú þegar hafi verið settar út fimm
kvíar með fjögur hundruð þúsund seiðum
sem dafni vel. Fljótlega verður fjórum kví-
um bætt við og sett fjögur hundruð þúsund
seiði í þær. Eftir að búið er að koma öllum
seiðunum út þarf svo að flokka og til þess
þarf nokkrar kvíar. Gunnar segir að alls
ættu þær því að verða fimmtán á þessu ári.
Fyrirtækið ætlar einnig að gera tilraun með
þorskeldi annars staðar í Berufirði og verða
sett út þrjátíu þúsund seiði í sumar. Nú
vinna sex manns hjá fyrirtækinu. Stefnt er
að því að hefja slátrun í haust.
Þegar tvíbytnunni var gefið nafn á dög-
unum var það Sigurrós Unnur Sigurbergs-
dóttir, móðir Gunnars Steins og Einars Arn-
ars Gunnarssonar, sem afhjúpaði bátinn, en
sr. Sjöfn Jóhannesdóttir sóknarprestur
blessaði fleyið í kjölfarið.
Sigurrós í lax-
eldið hjá Salar
Islandica
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Gægst á laxinn: Jómfrúarferð Sigurrósar
að kvíum Salar Islandica í Berufirði.
LÖGREGLAN á Akureyri stöðvaði öku-
mann um tvítugt sem ók á 114 km/klst. eft-
ir Drottningarbraut um kl. 9 í gærmorgun,
en hámarkshraði þar eru 50 km/klst. Öku-
maður gaf þá skýringu að hann hafi verið
að flýta sér út í sveit. Hann á von á sekt og
sviptingu ökuskírteinis í mánuð. Maðurinn
var auk þess ekki með ökuskírteinið á sér
og á von á annarri sekt fyrir það.
Ók á 114 km
hraða á Drottn-
ingarbraut
♦♦♦
Stokkseyri | Örnum fjölgar
hægt og bítandi og telur stofn-
inn nú um 60 pör, fleiri en
nokkru sinni síðan örninn var
friðaður fyrir réttum 90 árum.
Þetta er meðal þess sem í ljós
kom við árlega vöktun arnarins,
sem Náttúrufræðistofnun Ís-
lands stendur að í samvinnu við
Fuglaverndarfélag Íslands og
Náttúrustofu Vesturlands í
Stykkishólmi. Vitað er um 43
arnarhreiður sem orpið var í í
vor og hafa þau ekki verið jafn-
mörg í manna minnum. Ernir
hafa nú loks náð fótfestu að
nýju í gömlum heimkynnum ut-
an Vesturlands og Vestfjarða. Í
vor urpu tvö pör á öðrum land-
svæðum, bæði á stöðum þar
sem vitað er um arnarvarp áður
fyrr. Annað setrið hafði verið í
eyði í næstum 60 ár en hitt í 115
ár. Verndun gamalla varpstaða
er því afar mikilvæg fyrir frek-
ari vöxt og viðgang arn-
arstofnsins. Alþingi samþykkti
nýverið lög sem tryggja eiga
betur vernd þeirra 170 arn-
arsetra sem þekkt eru að fornu
og nýju. Um þriðjungur þess-
ara setra er í ábúð í dag, svo
enn er langt í land að örninn
hafi endurheimt sín fornu heim-
kynni. Talið er að arnarstofninn
hafi verið a.m.k. helmingi
stærri á síðari hluta 19. aldar
en hann er í dag. Nánari upp-
lýsingar um arnareftirlit, lífs-
hætti og afkomu fuglanna er að
finna á vefnum: fuglavernd.is/
arnarvernd.
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
Stofninn breiðist hægt út
Örninn
Mínstund frett@mbl.is