Morgunblaðið - 03.06.2004, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 29
DONA nobis pacem-tónleikar
verða haldnir í Grensáskirkju kl.
20 í kvöld. Að tónleikunum standa
þrír stúlknakórar með söngvurum
á aldrinum 13 til 18 ára, alls um
80 stúlkur. Kórarnir sem samein-
ast á tónleikunum eru Stúlknakór
Reykjavíkur sem Margrét Pálma-
dóttir stjórnar, Unglingakór
Digraneskirkju sem Heiðrún Há-
konardóttir stjórnar og Stúlkna-
kór Grensáskirkju sem Ástríður
Haraldsdóttir stjórnar en hún
verður einnig undirleikari kóranna
á tónleikunum. Flutt verður dag-
skrá sem kórarnir munu flytja á
tónleikum á Ítalíu í sumar, en
þangað fara þeir í tónleikaferð
14.–21. júní. Dagskráin sam-
anstendur af kirkjutónlist frá
ýmsum tímum, meðal höfunda má
nefna L. Delibes, Orlando di
Lasso, Mozart, Fauré, Bach-
Gounod, Andrew Lloyd Webber
og Leon Dubinsky. Einnig verða
flutt lög eftir íslenska höfunda,
t.d. Þorkel Sigurbjörnsson, Jón
Ásgeirsson o.fl. Á Ítalíu munu
kórarnir m.a. halda tónleika í
Flórens og í Massa.
Stúlknakórar syngja
í Grensáskirkju
Stúlknakór Reykjavíkur, Unglingakór Digraneskirkju og Stúlknakór Grensáskirkju halda sameiginlega tónleika.
PÍANÓTÓNLEIKAR Aladár Rácz
verða í Salnum í kvöld kl. 20.Tón-
leikarnir bera yfirskriftina Dansar
síðustu alda og verða leikin verk
eftir Johann Sebastian Bach, Wolf-
gang Amadeus Mozart, Ludwig van
Beethoven, Frédéric Chopin, Franz
Liszt, Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Sunleif Rasmussen (frumfl. á Ís-
landi), Igor Stravinsky, Béla Bart-
ók, Arthur Benjamin og Dave Bru-
beck.
Aladár Rácz fæddist í Rúmeníu
árið 1967. Hann stundaði fyrst nám
í píanóleik við Georges Enescu-
tónlistarskólann í Búkarest en síð-
an framhaldsnám við Tónlistarhá-
skólana í Búkarest og Búdapest.
Einnig hefur Aladár tekið þátt í
mörgum námskeiðum í Evrópu og
sjálfur haldið masterclassnámskeið
fyrir píanónemendur. Hann hefur
leikið á tónleikum víðsvegar um
heiminn, leikið inn á geisladiska og
unnið til verðlauna fyrir píanóleik í
alþjóðakeppnum, m.a. á Spáni, Ítal-
íu og í Tékklandi.
Síðan árið 1999 hefur Aladár
starfað sem tónlistarkennari við
Tónlistarskóla Húsavíkur, leikið
með ýmsum kórum og söngvurum á
Norður- og Austurlandi (s.s. Leik-
húskórnum á Akureyri og Kamm-
erkór Austurlands) og leikið einleik
með Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands í píanókonsert nr. 1 eftir Lud-
wig van Beethoven. Aladár mun
einnig fara með þessa efnisskrá til
Færeyja í sumar.
Morgunblaðið/Eggert
Aladár Rácz við flygilinn í Salnum.
Dansað
á píanó
Listasetrið Kirkjuhvoli,
Akranesi
Sýningu Erlu Axelsdóttur
lýkur á sunnudag. Á sýning-
unni eru um fimmtíu verk,
pastelmyndir og olíuverk, sem
öll eru unnin á sl. tveim til
þremur árum.
Listasetrið Kirkjuhvoli er
opið alla daga nema mánudaga,
frá kl. 15–18.
Sýningu
lýkur
TÖK námskeið í júní og ágúst
- 14. til 25. júní (8 dagar)
- 9. til 18. ágúst. (8 dagar)
Kennt frá kl. 9:00 til12:30
og kl. 13:30 til 17:00
Bókhaldsnámskeið í júní og ágúst
- 14. til 25. júní (9 dagar)
- 9. til 19. ágúst (9 dagar)
Kennt frá kl. 8:30 til 12:00
og kl. 13:00 til 16:30
Photoshopnámskeið í júní og ágúst
- 21. til 23. júní (3 dagar)
- 16. til 18. ágúst (3 dagar)
Kennt frá kl. 8:30 til 12:00
og kl. 13:00 til 16:30
„Mig langar að skipta um starfs-
vettvang og því kemur sér vel fyrir
mig að nota hluta af sumarfríinu til
endurmenntunar“
- Kristín Þóra
„Að taka TÖK námið á tveim
vikum í stað sex hentar mér vel
því ég vinn vaktavinnu og á erfitt
með að binda mig lengi í námi“
- Jón Ingi
Að eiga stafræna myndavél og
kunna ekki grunnatriði í Photoshop
myndvinnsluforritinu er eins og að
eiga bíl og kunna ekki að keyra!
GRUNNNÁM Í
BÓKHALDI
95 kennslustunda hagnýtt og
hnitmiðað nám fyrir þá sem vilja
læra bókhald frá grunni til að
styrkja stöðu sína á vinnu-
markaðinum.
Námið hentar einnig
einstaklingum með sjálfstæðan
atvinnurekstur og þeim sem eru að
hefja rekstur og vilja geta fært
bókhaldið sitt sjálfir.
Helstu námsgreinar:
Verslunarreikningur
- það helsta sem notað er við skrifstofustörf
Undirstaða bókhalds
- mikið um verklegar æfingar
Virðisaukaskattur
- reglur, skil og öll meðferð vsk.
Tölvubókhald í Navision
- rauhæf verkefni með fylgiskjölum
Nánari upplýsingar
og skráning í síma
544 4500 og á ntv.is
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
TÖK NÁMSKEIÐ
TÖK tölvunám er 84 stunda
tölvunám sem bæði er ætlað fyrir
byrjendur og þá sem eitthvað
kunna. Námið og kennslugögnin
miða að því að gera nemendum
kleift að taka þau 7 próf sem þarf
til að fá TÖK skírteini.
Helstu námsgreinar:
Upplýsingatækni - Windows
Word - Excel - Access
Power-Point - Tölvupóstur
Internetið
TÖK er skammstöfun á alþjóðlegu
prófskírteini sem vottar tölvu-
kunnáttu þína og vottar að þú sért
tölvulæs þ.e. kunnir að nýta þér
flesta möguleika tölvunnar og
þeirra forrita sem hvað mest eru
notuð við vinnu og daglegt líf.
GRUNNNÁM Í
PHOTOSHOP
Á þessu námskeiði er lögð áhersla á
þá hluti sem mest eru notaðir af
þeim sem eiga stafræna vél eða
skanna. Ótrúlega áhugavert og
skemmtilegt 31 stunda námskeið í
þessu frábæra forriti.