Morgunblaðið - 03.06.2004, Side 50
ÍÞRÓTTIR
50 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Ísland – Frakkland 0:3
Laugardalsvöllur, Evrópukeppni kvenna-
landsliðs, 2. riðill, miðvikudaginn 2. júní
2004.
Mörk Frakklands: Hoda Lattaf 4., 12.,
Laëtitia Tonazzi (76.).
Lið Íslands: Þóra B. Helgadóttir - Erna
B. Sigurðardóttir, Erla Hendriksdóttir,
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Málfríður
Erna Sigurðardóttir - Björg Ásta Þórð-
ardóttir (Dóra María Lárusdóttir 45.),
Edda Garðarsdóttir (Rakel Logadóttir
86.), Margrét Lára Viðarsdóttir, Laufey
Ólafsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir
(Dóra Stefánsdóttir 82.) - Olga Færseth.
Lið Frakklands: Celine Deville - Sand-
rine Dusang, Laura Georges, Corinne Di-
acre, Sabrina Viguier - Stephenie
Mugneret-Beghe, Sandrine Soubeyrand,
Sonia Bompastor, Peggy Provost (Anna-
Laure Casseleux 82.) - Laëtitia Tonazzi
(Elise Bussaglia 73.), Hoda Lattaf
(Claire Morel 82.).
Markskot: Ísland 4 - Frakkland 8.
Horn: Ísland 6 - Frakkland 6.
Rangstöður: Ísland 1 - Frakkland 2.
Gul spjöld: Sonia Bompastor, Frakk-
landi.
Dómari: Alexandra Ihringova frá Slóvak-
íu.
Aðstoðardómarar: Miroslava Migalova
og Slavomira Majkuthova, frá Slóvaníu.
Áhorfendur: 2.133.
Staðan í 2. riðli:
Frakkland 6 6 0 0 25:1 18
Ísland 7 4 1 2 23:9 13
Rússland 5 2 2 1 11:6 8
Ungverjaland 7 1 1 5 6:24 4
Pólland 7 0 2 5 6:31 2
Síðasti leikur Íslands er gegn Rúss-
landi á Laugardalsvellinum 22. ágúst.
Efsta deild karla,
Landsbankadeild
Fylkir – Keflavík.................................. 2:0
Björgólfur Takefusa 21., 29.
Staðan:
Fylkir 4 3 1 0 6:1 10
ÍA 4 2 2 0 5:2 8
Keflavík 4 2 1 1 6:5 7
ÍBV 4 1 3 0 5:4 6
FH 4 1 2 1 3:3 5
Grindavík 4 1 2 1 4:5 5
Fram 4 1 1 2 6:6 4
KR 4 1 1 2 5:7 4
KA 4 1 0 3 3:5 3
Víkingur R. 4 0 1 3 2:7 1
Markahæstir:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ...........3
Grétar Ólafur Hjartarson, Grindavík .....3
Arnar Gunnlaugsson, KR.........................2
Þorbjörn Atli Sveinsson, Fylki................2
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Fram ...2
Atli Sveinn Þórarinsson, KA ...................2
Björgólfur Takefusa, Fylki ......................2
Magnús Már Lúðvíksson, ÍBV ................2
Ríkharður Daðason, Fram.......................2
Sævar Þór Gíslason, Fylki .......................2
Undankeppni HM 2006
Suður-Ameríka:
Venesúela – Chile .................................0:1
Pinilla 82.
Uruguay – Perú ....................................1:3
Diego Forlan 72. - Solano 14., Pizaro 19.,
Farfan 62.
Ekvador – Kólumbía.............................2:1
Agustin Delgado 3., Franklin salas 66. -
Frankie Oviedo 55.
Vináttulandsleikir
Suður-Kórea – Tyrkland......................0:1
Hakan Sükür 21.
Tékkland – Búlgaría.............................3:1
Milan Baros 54., Jaroslaw Plasil 74.,
Tomas Rosicky 84. - Milen Petkov 90.
Írland – Jamaíka...................................1:0
Barrett 26.
Sviss – Þýskaland..................................0:2
Kevin Kuranyi 61., 84.
Úrslitakeppni EM U21
A-riðill:
Hvíta-Rússland – Serbía-Svartfj......... 1:2
Ítalía – Króatía ..................................... 1:0
B-riðill:
Þýskaland – Portúgal ........................... 1:2
Sviss – Svíþjóð ...................................... 1:3
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Síðari leikur um sæti í 1. deildinni
Post Schwerin - Kronau/Östringen . 39:29
Kronau vann fyrri leikinn, 39:30 og því
heldur Post Schwerin sæti sínu í deild-
inni, 69:68.
FÓLK
DETROIT Pistons mun mæta
Los Angeles Lakers í úrslitum
NBA-deildarinnar. Detroit tryggði
sér Austurstrandartitilinn í fyrri-
nótt með því að leggja Indiana
Pacers að velli 69:65. Richard
Hamilton, sem farið hefur á kost-
um í einvíginu, var stigahæstur í
liði Detroit með 21 stig. Ben Wall-
ace kom næstur með 12 stig og 16
fráköst. Í liði Indiana skoraði
Jermaine O’Neal 20 stig og Austin
Croshere 12 stig.
DETROIT Pistons hafa ekki
leikið til úrslita NBA-deildarinnar
frá árinu 1990 er liðið sigraði Port-
land Trailblazers 4:0. Detroit og
Los Angeles Lakers mættust síð-
ast í úrslitum árið 1989 og hafði
Detroit þá betur í einvíginu 4:1.
Liðin höfðu einnig mæst í úrslitum
árið áður og hafði Lakers þá betur
4:3.
CARLOS Queiros, hinn brott-
rekni þjálfari Real Madrid, mun að
öllum líkindum taka til starfa hjá
Manchester United á nýjan leik.
Queiros, sem var aðstoðarmaður
Sir Alex Fergusons áður en hann
tók við stjórninni hjá Real Madrid,
vill frekar fara til Old Trafford og
leysa Walter Smith af hólmi sem
aðstoðarmaður Fergusons heldur
en taka við knattspyrnustjórastöð-
unni hjá Tottenham en forráða-
menn Spurs hafa sýnt áhuga á að
fá Spánverjann til starfa.
FORRÁÐAMENN spænska
meistaraliðsins Valencia vonast til
að geta ráðið Ítalann Claudio
Ranieri til starfa hjá félaginu í
stað Rafael Benitez sem er hættur
og er á leið til Liverpool. Spænska
blaðið Marca segir að forráðamenn
Valencia séu staddir í Lundúnum
þar sem þeir ræði við Ranieri og
vonist til að geta gengið frá
þriggja ára samningi við Ítalann
sem missti vinnu sína hjá Chelsea
í fyrradag.
LECH Poznan varð í fyrradag
pólskur bikarmeistari í fjórða sinn
í sögu félagsins þrátt fyrir 1:0 tap
fyrir Legia Varsjá. Poznan vann
fyrrri leikinn 2:0 og því samanlagt
2:1. Með sigrinum tryggði Poznan
sér þátttökurétt í Evrópukeppni
félagsliða á næsta tímabili.
NORWICH City, sem leikur í
ensku úrvalsdeildinni á næsta
tímabili, hefur gert tveggja ára
samning við skoska landsliðsmark-
vörðinn Paul Callagher. Callagh-
er, sem er 24 ára gamall, lék áður
með Dundee United en skoska fé-
lagið hafði ekki efni á að halda
honum lengur.
ARGENTÍNUMAÐURINN
Gaston Gaudio er kominn í undan-
úrslit opna franska meistaramóts-
ins í tennis eftir sigur á Ástr-
alanum Lleyton Hewitt. Sigur
Gaudio var aldrei í hættu en hann
sigraði í þremur settum, 6:3, 6:2
og 6:2.
DAVID Beckham, fyrirliði enska landsliðsins í knatt-
spyrnu, segist verða klár í slaginn gegn Íslendingum á
Manchester-mótinu á laugardaginn. Beckham fékk
högg á kálfann seint í síðari hálfleik í leiknum við Jap-
ana í fyrrakvöld og fór af velli, en hann segir að meiðsl-
in séu minniháttar. „Ég verð tilbúinn í leikinn við Ís-
land nema að ég fái högg aftur á sárið á kálfanum fyrir
þann tíma. Ég hef ekki getað æft sem skyldi síðustu
daga og því er mikilvægt fyrir mig að að ég spili á móti
Íslendingum,“ sagði fyrirliðinn í gær.
Gary Neville, sem einnig varð fyrir hnjaski í leiknum
við Japana, segist sömuleiðis tilbúinn í leikinn gegn Ís-
lendingum.
Spurður hvort hann hyggist tefla fram sínu sterkasta
liði sagði Sven Göran Eriksson landsliðsþjálfari: „Það
er óvíst. Við þurfum að sjá hvernig þeim leikmönnum
reiðir af sem eru lítillega meiddir en við tökum enga
áhættu hvað það varðar á laugardaginn.“
Beckham vill spila
gegn Íslendingum
ÓLAFUR Stefánsson hafnaði í sjöunda sæti í vali á
besta handknattleiksmanni ársins 2003 sem Alþjóða
handknattleikssambandið, IHF, stóð fyrir í samvinnu
við World Handball Magazine og sportvöruframleið-
andann Adidas. Almenningur um víða veröld gat tekið
þátt í valinu á heimasíðu IHF með því að velja einn af
tíu leikmönnum sem IHF tilnefndi.
Ivano Balic, leikstjórnandi heimsmeistara Króata,
varð fyrir valinu sem handknattleiksmaður ársins en
hann hlaut 6.601 atkvæði eða 55 %. Sænski landsliðs-
maðurinn Peter Gentzel varð annar með með 3.534 at-
kvæði eða 29,49%, Brasilíumaðurinn Bruno Souza
þriðji með 657 atkvæði, Eric Gull, Argentínu, fjórði
með 311og Ungverjinn Lazslo Nagy fimmti með 207 at-
kvæði. Ólafur hlaut 162 atkvæði eða 1,27% at-
kvæðanna.
Í kvennaflokki var ungverska stórskyttan Bojana
Radulovics kjörin handknattleikskona ársins.
Ólafur í 7. sæti yfir
þá bestu í heimi
„VIÐ lékum ekki vel í fyrri hálfleik
og það var eins og við hefðum ekki
komið tilbúnir til leiks. Í síðari hálf-
leik spiluðum við ágætlega og ef við
hefðum leikið af sama krafti í fyrri
hálfleik hefðu úrslitin orðið önnur.
Það er ekki nóg að spila vel, við
verðum einnig að berjast allan tím-
ann og það gerðum við í síðari hálf-
leik en baráttuna vantaði í fyrri
hálfleik,“ sagði Milan Stefán Janko-
vic, þjálfari Keflavíkur, í samtali
við Morgunblaðið eftir leikinn.
Þið fenguð mörg marktækifæri í
síðari hálfleik.
„Það voru mörg marktækifæri í
leiknum og við hefðum getað skor-
að nokkur mörk í síðari hálfleik.
Fylkir fékk hins vegar líka mörg
tækifæri til að skora. Við bárum of
mikla virðingu fyrir Fylki í fyrri
hálfleik og það hafði áhrif á gang
leiksins. Við hefðum getað jafnað í
síðari hálfleik ef heppnin hefði ver-
ið á okkar bandi. Í kvöld var heppn-
in ekki með okkur en vonandi verð-
ur hún okkur hliðholl í næsta leik.“
Sjö stig eftir fjórar umferðir, ert
þú sáttur við þann stigafjölda?
„Það er alls ekki slæmt að vera
með sjö stig eftir fjórar umferðir.
Við látum þennan ósigur ekki slá
okkur út af laginu. Nú horfum við
fram á veginn og komum öflugir til
leiks í næstu umferð. Við getum
spilað mjög vel og við munum gera
það.“
Komum
ekki tilbúnir
til leiks
Þorlákur Árnason, þjálfari Fylk-is, var ánægður í leikslok enda
ærin ástæða til. Fylkismenn eru í
efsta sæti Lands-
bankadeildarinnar
eftir fjórar umferðir.
„Þetta var mjög
góður sigur en þetta
var erfiður leikur. Við lögðum
grunninn að sigrinum með góðri
frammistöðu í fyrri hálfleik. Leik-
urinn opnaðist mjög mikið í síðari
hálfleik og bæði lið fengu þá mörg
marktækifæri. Við erum mjög sáttir
við að fá þrjú stig á móti sterku liði
Keflavíkur. Við höfðum betur á
miðjunni og það var lykillinn að
sigrinum. Ólafur Stígsson, Finnur
Kolbeinsson og Helgi Valur Daní-
elsson léku feykivel á miðjunni í
kvöld.“
Sóknarleikur Fylkis gekk vel í
kvöld.
„Ég var mjög ánægður með sókn-
arleik minna manna í kvöld. Hins
vegar vorum við ekki nægilega
traustir í varnarleiknum þó að við
höfum haldið markinu hreinu. Við
þurfum að bæta varnarleikinn því
við buðum oft hættunni heim í síðari
hálfleik,“ sagði Þorlákur.
Markmiðið er að tapa
ekki leik á heimavelli
Valur Fannar Gíslason, fyrirliði
Fylkis, var kampakátur í leikslok.
„Við stefnum að því að tapa ekki
leik á heimavelli. Við höfum ekki
fengið mark á okkur síðan á Akra-
nesi í fyrstu umferðinni og meðan
við gerum það ekki er ljóst að við
töpum ekki. Það er mikilvægast fyr-
ir okkur að fá ekki nein mörk á okk-
ur því við erum með öfluga sókn-
armenn sem eru alltaf líklegir til að
skora,“ sagði Valur Fannar.
„Við fengum tvö góð færi í fyrri
hálfleik og það var nóg fyrir okkur
til þess að ná þægilegu forskoti.
Sóknarmennirnir okkar eiga að sjá
um að skora mörkin og það er gott
þegar þeir vinna vinnuna sína.“
Bæði lið fengu mörg marktæki-
færi í síðari hálfleik.
„Já, það er rétt. Keflavík fékk of
mörg tækifæri til að skora í síðari
hálfleik. Við ætluðum ekki að bakka
svona mikið. Í hálfleik töluðum við
um að halda áfram að pressa þá en
ósjálfrátt þá bakka lið oft þegar þau
eru með forystu. Við fengum hins
vegar líka mörg færi í síðari hálfleik
og hefðum vel getað skorað þriðja
markið.“
Hvernig líst þér á lið Keflavíkur?
„Keflavík er mjög gott lið. Ef þeir
hefðu verið heppnir hefðu þeir jafn-
vel getað farið með sigur af hólmi
en við nýttum færin okkar betur.
Við komum ákveðnari til leiks og
sýndum meiri sigurvilja og það
gerði gæfumuninn.“
Telur þú að það sé minni pressa á
Fylkisliðinu en í fyrra?
„Það er alveg jafn mikil pressa og
áður. Að segja að það sé minni
pressa á okkur en áður er bara eitt-
hvað sem þið fjölmiðlamenn búið til.
Við erum sallarólegir og við höfum
okkar markmið og þau eru skýr. Við
ætlum að gera betur en í fyrra en
það þýðir að við verðum að lenda of-
ar en í fjórða sæti í deildinni, kom-
ast lengra í bikarnum en á síðasta
tímabili og komast í aðra umferð í
Evrópukeppninni.“
Eftir
Atla
Sævarsson
Sóknin
gekk vel
Fylkir 2:0 Keflavík
Leikskipulag: 4-3-3 Landsbankadeild karla,
4. umferð
Fylkisvöllur
Miðvikudaginn 2. júní 2004
Aðstæður:
Hægviðri, sól með
köflum og 13 stiga hiti.
Völlurinn sæmilegur.
Áhorfendur: 1444.
Dómari: Jóhannes Val-
geirsson, KA, 4
Aðstoðardómarar:
Einar Örn Daníelsson,
Einar Guðmundsson
Skot á mark: 9(6) - 11(5)
Hornspyrnur: 4 - 8
Rangstöður: 4 - 0
Leikskipulag: 4-5-1
Bjarni Halldórsson M
Guðni Rúnar Helgason
Valur Fannar Gíslason M
Þórhallur Dan Jóhannsson M
Gunnar Þór Pétursson
(Jón B. Hermannsson 87.)
Helgi Valur Daníelsson M
Finnur Kolbeinsson MM
Ólafur Ingi Skúlason M
Sævar Þór Gíslason
Björgólfur Takefusa MM
(Eyjólfur Héðinsson 54.)
Ólafur Páll Snorrason M
(Kristján Valdimarsson 75.)
Ólafur Gottskálksson M
Guðjón Árni Antoníusson
Sreten Djurovic
Haraldur Freyr Guðmundsson M
Ólafur Ívar Jónsson M
Zoran Daníel Ljubicic
(Magnús S. Þorsteinsson 51.) M
Hólmar Örn Rúnarsson
(Þórarinn Brynjar Kristjánsson 51.)
Stefán Gíslason M
Jónas Guðni Sævarsson
Scott Ramsay
(Guðmundur Steinarsson 71.)
Hörður Sveinsson
1:0 (21.) Björgólfur Takefusa tók knöttinn niður rétt utan vítateigs. Hann lagði
boltann fyrir sig og skoraði með hnitmiðuðu vinstrifótarskoti sem
hafnaði neðst í markhorninu.
2:0 (29.) Björgólfur Takefusa fékk boltann á vítateig Keflvíkinga. Hann sneri
baki í boltann en sneri sér á punktinum og skoraði með föstu vinstri-
fótarskoti upp í þaknetið.
Gul spjöld: Ólafur Ívar Jónsson, Keflavík (81.)
Rauð spjöld: Engin
BRYNJAR Valdimarsson tryggði sér í gær
sæti í 32 manna úrslitum á Evrópumótinu í
snóker sem nú stendur yfir í Austurríki en
Jóhannes B. Jóhannsson er úr leik.
Brynjar, sem á dögunum hampaði Íslands-
meistaratitlinum eftir 12 ára hlé, átti ekki í
vandræðum með að leggja Austurríkis-
mann að velli í lokaumferð riðlakeppninn-
ar, 4:0, en Jóhannes beið lægri hlut fyrir
Þjóðverja, 4:1. Brynjar hafnaði í þriðja sæti
í sínum riðli og Jóhannes varð fimmti en
fjórir efstu menn í hverjum riðli komust í
32 manna úrslitin.
Brynjar áfram
á Evrópumótinu