Morgunblaðið - 03.06.2004, Page 51
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 51
FÓLK
GÐMUNDUR Hrafnkelsson
landsliðsmarkvörður og félagar
hans í Kronau/Östringen töpuðu í
gær fyrir Post Schwerin í síðari leik
liðanna um sæti í efstu deild í þýska
handknattleiknum. Lokatölur 39:29
en Guðmundur og félagar unnu
fyrri leikinn 39:30 þannig að tæpara
gat það vart verið.
MICHEL Salgado, leikmaður
spænska landsliðsins og Real Madr-
id, mun að öllum líkindum missa af
tveimur fyrstu leikjum Spánverja á
EM í Portúgal. Hann er meiddur í
læri og verður frá næstu tvær vik-
urnar. Fyrsti leikur Spánverja verð-
ur við Grikki jinn 12. júní.
KNATTSPYRNUSAMBAND
Katar hefur gefið út þá tilkynningu
að Brasilíumaðurinn Rivaldo muni
leika í Katar á næsta tímabili. „Riv-
aldo hefur skrifað undir samning og
mun leika í Katar. Ég veit að það eru
peningarnir sem heilla Rivaldo.
Þrátt fyrir að Celtic og Bolton hafi
boðið honum háar fjárhæðir get ég
lofað því að við borgum honum
miklu meira,“ sagði Manfred Honer,
tæknilegur ráðgjafi knattspyrnu-
sambands Katar.
JOHN Terry, varnarmaður
Chelsea, segir að forráðamenn
Chelsea verði að vera þolinmóðir við
nýráðinn knattspyrnustjóra liðsins,
Jose Mourinho. „Það tók okkur fjög-
ur ár undir stjórn Claudio Ranieri
að enda í öðru sæti í ensku úrvals-
deildinni. Það tekur tíma að byggja
upp sigursælt lið og ég held að Rom-
an Abramovich, eigandi liðsins, geri
sér grein fyrir því,“ sagði Terry.
BEN Wallace, miðherji Detroit
Pistons, hefur fengið boð um að
leika með bandaríska landsliðinu í
körfuknattleik á ólympíuleikunum í
Aþenu í ágúst. „Ég hef verið beðinn
um að leika með landsliðinu í sumar í
Aþenu og ég ætla mér að gera það,“
sagði Wallace.
ÁSTRALINN Mark Viduka, sókn-
armaður Leeds United, mun í næstu
viku hefja viðræður við enska úr-
valsdeildarliðið Middlesbrough en
liðið hefur lengi haft augastað á hon-
um. Viduka er 28 ára gamall og lék
með Celtic áður en hann gekk í raðir
Leeds United.
FRJÁLSÍÞRÓTTAKONAN Vita
Pavlysh hefur verið dæmd í ævi-
langt keppnisbann vegna stera-
neyslu. Pavlysh, sem er frá Úkr-
aínu, sigraði í kúluvarpi á
heimsmeistaramótinu innanhúss í
Búdapest í mars en hún hefur verið
svipt heimsmeistaratitlinum. Pav-
lysh varð einnig uppvís að neyslu
stera á heimsmeistaramótinu í Jap-
an árið 2001 og var þá dæmd í
tveggja ára keppnisbann.
PAVLYSH féll á lyfjaprófi að lok-
inni keppninni í Búdapest. Svetlana
Krievelyova frá Rússlandi, sem varð
önnur á heimsmeistaramótinu, hefur
verið tilnefnd heimsmeistari í stað
Pavlysh.
GUÐMUNDUR Karls-
son er með tilboð frá
Haukum um að taka við
þjálfun kvennaliðs fé-
lagsins í handknattleik
fyrir næstu leiktíð í stað
Ragnars Hermannsson-
ar sem stýrði Haukalið-
inu í vetur en er hættur.
„Það liggur tilboð á
borðinu frá Haukum
sem ég er að skoða í
tengslum við þau verk-
efni sem ég er með fyrir
Frjálsíþróttasambandið.
Ég er samningsbundinn
FRÍ fram yfir Ólympíu-
leikana og ég get ekki
tekið formlega ákvörðun um hvort
ég tek að mér starfið hjá Haukum
fyrr en ég er búinn að ræða við FRÍ.
Það er engin launung
að mig dauðlangar að
komast í hand-
boltaþjálfunina á nýjan
leik,“ sagði Guðmundur
við Morgunblaðið í gær.
Guðmundur hefur
verið landsliðsþjálfari í
frjálsíþróttum frá
haustinu 2002 en hann
kom síðast nærri þjálf-
un í handknattleik þeg-
ar hann þjálfaði karla-
lið FH-inga 2000–2002.
Vorið 2000 stýrði hann
karlaliði Hauka til sig-
urs á Íslandsmótinu
sem var fyrsti Íslands-
meistaratitill Hauka í 54 ár en Hauk-
ar hafa síðan þá unnið titilinn í þrí-
gang.
Haukar vilja fá Guðmund
Guðmundur
Karlsson
EKKI kemur til greina af hálfu forráðamanna Dallas Mavericks að
selja Jón Arnór Stefánsson frá félaginu í sumar þegar kaup og sala á
körfuknattleiksmönnum hefst á milli félaga í NBA-deildinni í Banda-
ríkjunum. Þrátt fyrir að Jón Arnór hafi ekki fengið neitt tækifæri
með Dallas á leiktíðinni og árangur þess hafi verið lakari en vonir
stóðu til þá verður Jón Arnór ekki einn þeirra manna sem félagið vill
losna við. Þetta kemur fram í dagblaðinu Dallasnews. Þar segir að
forráðamenn Dallas ætli að halda Íslendingnum utan við alla kaup-
mennsku, hann verði ekki látinn af hendi. Charlotte Bobcats, nýja lið-
ið í NBA á næsta tímabili vonast til að geta klófest einhverja leikmenn
Dallas. Þegar nýtt lið kemur inn í NBA getur það valið úr hópi leik-
manna sem liðin sem fyrir eru hafa ákveðið að verja ekki.
Jón Arnór verður ekki seldur
VALLARÞULURINN í Vík-
inni tilkynnti áhorfendum á
leik Víkings og FH í úrvals-
deildinni í knattspyrnu í
fyrrakvöld að þeir hefðu
tekið þátt í að setja vall-
armet en alls sáu 963 leik
liðanna sem endaði 1:1.
Þetta er ekki alls kostar rétt
og aðsóknin á leikinn er að-
eins sú fjórða besta á leik í
efstu deild í Víkinni, en
reyndar sú besta í 12 ár.
Flestir áhorfendur á leik í
Víkinni mættu sumarið 1991
þegar KR kom í heimsókn
en þá voru þeir 1.150. Ári
síðar sáu 980 manns leik
Víkings og Fram á sama
stað og árið 1989 var þar
971 áhorfandi þegar Fram
kom í heimsókn. Núna bjóða
hins vegar Víkingar áhorf-
endum sínum að sitja í nýrri
og glæsilegri stúku, undir
þaki, svo ekki þarf að koma
á óvart þó þetta þrettán ára
gamla vallarmet falli síðar í
sumar.
Vallarmet-
ið féll ekki
í Víkinni
Keflvíkingar byrjuðu vel í veður-blíðunni á Árbæjarvelli og
strax á 3. mínútu munaði minnstu að
þeim tækist að skora
þegar Hörður
Sveinsson átti skot
að markinu sem
Fylkimenn náðu að
bjarga, nánast á marklínunni.
Heimamenn tóku síðan völdin hægt
og bítandi og sérstaklega var það
áberandi á miðsvæðinu þar sem
Finnur Kolbeinsson réð ríkjum
ásamt félögum sínum Helga Val og
Ólafi Stígssyni. Björgólfur Takefusa
var mjög líflegur í framlínu Fylkis-
manna og hann sýndi hversu megn-
ugur hann er þegar hann skoraði tvö
afar snotur mörk með átta mínútna
millibili. Fylkismenn léku síðasta
hálftímann í fyrri hálfleik af mikilli
yfirvegun þar sem boltinn gekk vel á
milli manna. Keflvíkingar voru hins
vegar mjög ólíkir sjálfum sér. Þeir
náðu engum tökum á leik sínum og
allan brodd vantaði í sóknina enda
Hörður Sveinsson mjög einmana
gegn sterkum varnarmönnum Fylk-
is.
Síðari hálfleikurinn var tveggja
mínútna gamall þegar Björgólfur og
Ólafur Gottskálksson, markvörður
Keflvíkinga, rákust saman sem varð
til þess að Björgólfur varð að yfir-
gefa völlinn skömmu síðar sem varð
til þess að Fylkismenn misstu ákveð-
ið frumkvæði sem þeir höfðu haft
enda Björgólfur afar iðinn við að
bjóða sig og byggja upp sóknarspil
sinna manna. Keflvíkingar gerðu
tvöfalda skiptingu fljótlega í síðari
hálfleik. Innkoma Magnúsar Sverris
Þorsteinssonar og Þórarins Krist-
jánssonar ásamt því að nýliðarnir
breyttu leikskpulagi sínu, settu þrjá
menn í fremstu víglínu, færði líf í leik
nýliðanna og síðasta hálftímann voru
þeir mun sterkari aðilinn. Fylkis-
menn björguðu skalla Stefáns Gísla-
sonar á línu en Fylkismenn færðu lið
sitt aftar og stíluðu inn á að beita
skyndisóknum. Úr einni slíkri var
Guðni Rúnar Helgason hársbreidd
frá því að skora þriðja markið en
Ólafur sá við honum með glæsilegu
úthlaupi. Skömmu síðar voru Fylk-
ismenn stálheppnir að fá ekki
dæmda á sig vítaspyrnu þegar Valur
Fannar stuggaði greinilega við Þór-
arni innan teigs en Jóhannes Val-
geirsson sá ekki ástæðu til að dæma
víti. Magnús og Þórarinn áttu síðan
báðir góð færi í heiðarlegri tilraun
Keflvíkinga til að komast inn í leik-
inn en þeim brást bogalistin.
Fylkismenn hafa byrjað mótið
mjög vel. Liðið er heilsteypt, spilar
agaðan leik, er með skæða sóknar-
menn og öfluga vörn en Árbæjarliðið
hefur haldið marki sínu hreinu í síð-
ustu þremur leikjum. Björgólfur átti
frábæran leik meðan hans naut við
og fellur greinilega æ betur inn í
leikskipulag liðsins. Finnur Kol-
beinsson var eins og kóngur í ríki
sínu á miðsvæðinu, vann feikilega vel
fram og til baka og hafði góðan
stuðning frá Helga Val og Ólafi
Stígssyni. Fylkismenn þekkja það
vel að sitja í efsta sæti framan af
móti en gefa síðan eftir þegar mest á
reynir og eflaust hafa leikmenn liðs-
ins það á bakvið eyrað. Árbæjarliðið
lítur hins vegar býsna vel út og það
er vel skiljanlegt að krafa stuðnings-
manna liðsins sé að ná titlinum eft-
irsótta í Árbæinn.
Keflvíkingar voru mjög daufir og
nánast baráttulausir lengi leiks. Þeir
gáfu Fylkismönnum allt of mikinn
frið til að athafna sig og þá sérstak-
lega á miðsvæðinu. Leikur þeirra
skánaði mikið í síðari hálfleik og með
smá heppni hefðu þeir getað hleypt
spennu í leikinn. Ólafur Gottskálks-
son kom í markið eftir meiðsli og var
bestur sinna manna og þá átti hinn
smái, en knái, Magnús Sverrir fína
innkomu en lykilmenn á borð fyrir
Zoran Ljubicic, Scott Ramsey og
Hólmar Örn Rúnarsson voru langt
frá sínu besta og munar um minna.
Morgunblaðið/Sverrir
Björgólfur Takefusa skoraði bæði mörk Fylkis gegn Keflavík er liðið komst í efsta sætið.
Björgólfur í gang
BJÖRGÓLFUR Takefusa opnaði markareikning sinn fyrir Fylki á Ís-
landsmótinu þegar Fylkismenn skutu sér á topp Landsbankadeild-
arinnar með 2:0 sigri á Keflvíkingum í gærkvöld. Björgólfur skoraði
tvö glæsimörk í fyrri hálfleik í sanngjörnum sigri Árbæjarliðsins og
þar með töpuðu Suðurnesjamenn sínum fyrsta leik á leiktíðinni en
þeim hefur aldrei tekist að leggja Fylki í Árbænum í efstu deild.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar