Morgunblaðið - 03.06.2004, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 55
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Ó.H.T Rás2
www.laugarasbio.iswww .regnboginn.is
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
ELLA
Í ÁLÖGUM
Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16.
Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni mögnuðustu mynd sem
stefna öllu lífi á jörðinni í hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður
sést á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.
Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 10.20.
DV
Léttöl
Ó.H.T Rás2
SV MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 10.30. B.i. 16 ára.
Kvikmyndir.com
Að breyta fortíðinni getur haft óhugnalegar
afleiðingar fyrir framtíðina. Svakalegur
spennutryllir sem fór beint á toppinn í USA.
Sýnd kl. 6. Íslenskt tal.
19.000
manns
á 7 dögum!!!
SKONROKK
Kynntu þér tilboð okkar
á bílaleigubílum
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað
Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Við erum í 170 löndum
5000 stöðum
T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn,
Frankfurt, Milano, Alicante ...
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is
Minnum á Visa afsláttinn
Himnatjörn (Heaven’s Pond)
Drama
Bandaríkin 2003. Skífan VHS. (90 mín.)
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Joel
Viertel. Aðalhlutv. Kip Pardue, Tara Reid.
Í ÞESSU nett imbalega hryllings-
drama ætluðu ungstirnin Kip Pardue
(Remember The Titans, Thirteen,
The Rules of Attraction) og Tara
Reid (American Pie
1 og 2, Van Wilder)
klárlega að sýna og
sanna hversu ofsa-
lega góðir leikarar
þau væru. En þau
blekkja engan því
myndin er nett löm-
uð, gölluð og klisju-
kennd. Fjallar um
unga bláeygða stúlku sem giftist dul-
arfulla draumaprinsinum og fer svo
með honum í brúðkaupsferð í lítinn
afskekktan kofa á miðri tjörn. Hún er
ósynd og hefur ekki hugmynd um að
nýi eiginmaðurinn er kexruglaður og
lítur á hana sem eign sína.
Þessi mynd hefur hreint ekki
styrkt stöðu þeirra Pardue og Reid
enda sýnist manni á næstu myndum
þeirra að þau stefni hraðbyri í að
verða ekta myndbandamatur.
Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Í hjúskap-
arfjötrum
BÍTILLINN fyrrverandi, Paul
McCartney, hefur viðurkennt að
hafa reykt heróín þegar frægð Bítl-
anna var sem mest. Segist hann í
tímaritsviðtali vera heppinn að
hafa ekki ánetjast þessu eiturlyfi.
McCartney notaði kókaín og hass
á tímabili og segir að stöðug rifrildi
Bítlanna á síðari hluta sjöunda ára-
tugarins megi m.a. rekja til fíkni-
efnanotkunar þeirra.
„Ég prófaði heróín einu sinni. Ég
vissi raunar ekki þá hvað þetta var;
mér var bara rétt eitthvað og ég
reykti það, en komst svo að því síð-
ar hvað þetta var,“ segir McCartn-
ey í samtali við breska tímaritið Un-
cut. „Ég fékk ekkert út úr þessu
sem var heppilegt því ég hefði ekki
viljað lenda á þeirri braut,“ bætir
hann við.
Hann segir að Bítlarnir hafi
sannarlega notað ólögleg fíkniefni.
„Ég notaði kókaín og kannski smá
„gras“ til að jafna áhrifin. Ég var
aldrei sérlega hrifinn af kókaíni,
sérstaklega vegna fráhvarfs-
einkennanna. Þetta voru 10 ár í hel-
víti, sem höfðu í för með sér vinslit
og sundrung.“
McCartney, sem er 61 árs, er nú á
tónleikaferð um Evrópu.
McCartney
viðurkennir að
hafa prófað heróín
Reuters
Bítillinn Sir Paul McCartney á
sannarlega skrautlega fortíð.
Cannes fyrir skömmu var þó alls-
endis óljóst hvort leyfi fengist fyrir
dreifingu myndarinnar í Bandaríkj-
unum. Weinstein-bræður sögðust
ósáttir við ákvörðun Disney, enda
lagði Miramax fjármagn til fram-
leiðslu myndarinnar. Michael
Moore hefur sakaði forráðamenn
Disney um að láta undan pólitískum
þrýstingi er þeir hættu við að dreifa
myndinni en aðrir hafa bent á að
það hafi legið ljóst fyrir allt frá upp-
hafi þess að Miramax ákvað að
framleiða myndina og að þetta upp-
hlaup Moores á þessum tímapunkti
sé aðeins til að vekja frekari athygli
á myndinni.
BOB og Harvey Wein-
stein, stofnendur banda-
ríska dreifingarfyrirtækis-
ins Miramax Films, hafa í
eigin nafni keypt sýning-
arrétt heimildarmyndar
Michaels Moores, Fahren-
heit 911, af Disney-kvik-
myndasamsteypunni, að
því er fram kemur á
fréttavef BBC.
Disney, sem Miramax
er dótturfélag að, neitaði
að dreifa myndinni sem
m.a. felur í sér harkalega
gagnrýni á stjórnarhætti
og stríðsrekstur George
W. Bush, Bandaríkjafor-
seta. Þar leitast leikstjór-
inn m.a. við að sýna fram
á tengsl Bush-fjölskyldun-
ar við valdamiklar fjöl-
skyldur í Saudi-Arabíu, þar á meðal
Bin Laden-fjölskylduna.
Weinstein-bræður segjast ætla að
standa sjálfir að dreifingu mynd-
arinnar í kvikmyndahús og á mynd-
bandamarkaði, og eru því allar líkur
á því að myndin komi fyrir sjónir
bandarískra kvikmyndahúsagesta
um mitt sumar. Orðrómur er um að
verið sé að semja um aðkomu þriðja
aðila að dreifingunni.
Fahrenheit 911 hlaut Gullpálm-
ann á kvikmyndahátíðinni í Cannes
í ár og hafa dreifingaraðilar frá
ýmsum löndum sýnt henni áhuga
eða keypt sýningarréttinn. Þegar
Moore tók við verðlaununum á
Weinstein-bræður
kaupa Fahrenheit 911
Reuters
„Engar áhyggjur Mikki minn, ég skal sýna
þeim myndina þína.“ Harvey Weinstein, stjóri
Miramax, og Michael Moore í Cannes á dög-
unum.
JENNIFER Hawkins, tvítug áströlsk sýning-
arstúlka, var í fyrrinótt krýnd ungfrú alheimur
en fegurðarsamkeppnin var haldin í Ekvador.
Í öðru sæti varð Shandi Finnessey frá Banda-
ríkjunum og Alba Giselle Reyes frá Puerto
Rico varð þriðja. Enginn þátttakandi var frá
Íslandi að þessu sinni en alls tóku 80 stúlkur
þátt í keppninni.
Um 500 blaðamenn víðsvegar að úr heim-
inum voru viðstaddir keppnina. Nokkurt upp-
nám varð þegar Gabrielu Oviedo, ungfrú Bóli-
víu, mislíkaði spurningar blaðamannanna um
land hennar. Hún sagði að blaðamennirnir létu
eins og allir Bólivíumenn væri indíánar. La Pas
kynni að vera full af beiningamönnum og fá-
tæku litlu fólki, en á austurströndinni væri fólk
hávaxið og hvítt og talaði ensku. Maria Alvarez
Plata, aðstoðarmenntamálaráðherra Bólivíu,
reyndi að útskýra hvers vegna blaðamenn
hefðu misskilið stúlkuna: „Hún tjáði sig á
ensku,“ sagði hún.
Athafnamaðurinn Donald Trump á keppn-
ina. Meðal dómara voru leikkonurnar Bo
Derek og Daisy Fuentes.
Ungfrú alheimur er áströlsk
Ungfrú Ástralía
Jennifer Hawkins.