Morgunblaðið - 25.06.2004, Side 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta er nú meira svínaríið, maður getur ekki einu sinni treyst ykkur fyrir ,,grísinum“ sín-
um meðan maður skreppur í afmæli.
Hlutabréf í Kaup-höll Íslands hafahækkað linnulítið
frá því síðla árs 2001 og
hefur hækkunin verið
hvað mest á síðustu vikum
og mánuðum. Í þessum
mánuði hefur hækkunin
verið rúm 10% og tæp
40% frá áramótum þegar
miðað er við þróun Úr-
valsvísitölu Kauphallar-
innar. Og þegar horft er
til eins árs hefur Úrvals-
vísitalan tvöfaldast, en
Úrvalsvísitalan mælir
verðbreytingar á 15 félögum á Að-
allista Kauphallarinnar og al-
mennt má segja að í Úrvalsvísitöl-
unni séu verðmætustu félög
Kauphallarinnar og jafnframt þau
sem mest viðskipti eru með. Þeg-
ar hlutabréfaverð hækkar með
þessum hætti er full ástæða til að
huga að því hvort gengi hluta-
bréfa sé almennt orðið of hátt.
Á þriðjudag í þessari viku ítrek-
aði greiningardeild Landsbank-
ans þá skoðun sína, sem áður hafði
meðal annars mátt lesa um í sér-
riti deildarinnar fyrir rúmum
mánuði, að hlutabréfamarkaður-
inn væri hátt verðlagður. Grein-
ingardeildin lýsti jafnframt þeirri
skoðun sinni að fátt benti til að
veruleg lækkun yrði á verði hluta-
bréfa í bráð, en ef verðið héldi
áfram að hækka eins og það hefði
gert ykjust líkur á lækkun.
Í byrjun þessa mánaðar gaf
greiningardeild Íslandsbanka út
rit um eignaverð og spáði þar
meðal annars 6–8% hækkun inn-
lendra hlutabréfa til áramóta. Á
þeim rúmu þremur vikum sem
liðnar eru frá þessari spá hefur
Úrvalsvísitalan hækkað um 10%,
þannig að eigi spáin að ganga eftir
verður hlutabréfaverð að lækka
nokkuð til áramóta.
Greining Íslandsbanka velti í
riti sínu upp þeirri spurningu
hvort að verð hlutabréfa hafi
hækkað mun meira en grundvöll-
ur sé fyrir og hvort að þess vegna
mætti búast við mikilli skyndilegri
lækkun. Komist er að þeirri nið-
urstöðu að svo sé ekki og Atli B.
Guðmundsson sérfræðingur hjá
Greiningu Íslandsbanka segir að
þrátt fyrir hækkun Úrvalsvísitöl-
unnar það sem af er mánuði hafi
skoðun Greiningar Íslandsbanka
á innlenda hlutabréfamarkaðnum
ekki breyst í grundvallaratriðum.
Hann segir mikla hækkun Úrvals-
vísitölunnar í þessum mánuði að
mestu skýrast af hækkun KB
banka, Össurar, Marel og Bakka-
varar en Greining Íslandsbanka
hafi að undanförnu mælt með að
fjárfestar markaðsvegi eða yfir-
vegi bréf þessara félaga í vel
dreifðum eignasöfnum. Ef til vill
megi gera ráð fyrir einhverri leið-
réttingu til lækkunar á verði
þeirra félaga sem hafi hækkað
mest, en mikil lækkun á markaðn-
um í heild sé ekki líkleg í bráð.
Greiningardeild KB banka hef-
ur bent á það að Úrvalsvísitalan
hafi í síðustu viku hækkað um
6,9%, sem sé þriðja mesta viku-
hækkun hennar frá upphafi.
Mesta vikuhækkunin hafi orðið í
7. viku ársins 2000 þegar vísitalan
hafi hækkað um tæp 8%. Í vikunni
þar á eftir hafi vísitalan byrjað að
leita niður á við og það hafi verið
byrjunin á því lækkunarferli vísi-
tölunnar sem staðið hafi þar til í
nóvember árið 2001.
Ýmsar vísbendingar eru því um
að verð hlutabréfa sé hátt nú þó að
vitaskuld gildi ekki hið sama um
öll hlutabréf og að mikil nýleg
hækkun einstakra bréfa þurfi
ekki fela í sér að þau hljóti að
lækka á næstunni. Og þrátt fyrir
hina miklu hækkun er hlutabréf-
um almennt ekki spáð lækkun og
hér verður ekki lagt mat á hver
þróunin muni verða.Óhætt er þó
að segja að við aðstæður eins og
þær sem nú eru uppi er jafnvel
enn frekar ástæða til að fara var-
lega í hlutabréfakaup en oftast áð-
ur.
Fréttaskýring | Hækkun hlutabréfa
Tvöföldun
á einu ári
Hlutabréf hafa hækkað mikið,
en er gengið orðið of hátt?
Þórður Magnússon
Mikil hækkun hlutabréfa hefur
skilað mörgum fjárfestum mikl-
um gengishagnaði það sem af er
þessu ári. Eyrir fjárfesting-
arfélag hefur verið hvað mest
áberandi þessara fjárfesta að
undanförnu, en aðaleigendur
þess eru feðgarnir Þórður Magn-
ússon og Árni Oddur Þórðarson.
Eyrir eignaðist rúmlega 2% í
KB banka í kjölfar þess að Gild-
ing, félag sem feðgarnir voru
meðal stofnenda og eigenda að,
rann inn í Búnaðarbankann sem
svo sameinaðist KB banka. Eyrir
hefur átt fleiri eignir sem hafa
gefið vel af sér, en vegna mik-
illar hækkunar KB banka á þessu
ári hefur eignin í honum hækkað
úr rúmum 2 milljörðum króna
um áramót í tæpa 4 milljarða
króna nú. Að undanförnu, lík-
lega meðal annars í krafti þessa
gengishagnaðar, hefur Eyrir
keypt stóra hluti í Marel og Öss-
uri og á nú samanlagt um 2,7
milljarða króna í þessum tveimur
félögum.
Gengishagnaður
haraldurj@mbl.is