Morgunblaðið - 25.06.2004, Síða 34
MINNINGAR
34 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Guðmunda Guð-rún Kjartans-
dóttir fæddist í
Reykjavík 9. apríl
1931. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 12. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Kjartan Einarsson
bílstjóri, f. 19.7.
1904, d. 8.2. 1959,
og Sigurlilja Péturs-
dóttir húsmóðir, f.
27.9. 1907, d. 29.12.
1989. Bræður Guð-
mundu eru: 1) Har-
aldur Kjartansson, verkamaður,
sjómaður, f. 19.5. 1901, d. 10.8.
1943, og Andrea Guðrún Guð-
mundsdóttir húsmóðir, f. 10.10.
1906, d. 17.7. 1996. Dætur þeirra
eru: 1) Halldóra Sigríður sjúkra-
liði, f. 23.9. 1947. Eiginmaður
hennar er Magnús Finnur Jó-
hannsson, f. 28.7. 1955. Halldóra
á þrjú börn, Guðmund Birgi,
Thelmu og Hörð. 2) Lilja Guð-
mundsdóttir húsmóðir, f. 5.2.
1951, sambýlismaður hennar er
Guðmundur Vignir Hauksson, f.
8.3. 1957. Lilja á tvö börn, Jessicu
og John. 3) Andrea Guðrún Guð-
mundsdóttir ritari, f. 2.11. 1961.
Eiginmaður hennar er Eysteinn
Sigurðsson, f. 6.5. 1958, börn
þeirra eru Kjartan Dagur, Helga
Vala og Ylfa. 4) Helga Guð-
mundsdóttir, grafískur hönnuður,
f. 2.2. 1964. Sambýlismaður henn-
ar er Ævar Rafn Kjartansson, f.
15.5. 1962. Barnabarnabörnin eru
tíu.
Útför Guðmundu var gerð frá
Fossvogskapellu 18. júní.
f. 20.4. 1936, kvæntur
Ingibjörgu Hannes-
dóttur leikskólakenn-
ara, f. 11.11. 1935, og
eiga þau tvö börn,
Birnu og Steinar. 2)
Halldór Kjartansson
lagerstjóri, f. 1.7.
1942, d. 28.5. 2001,
átti tvo syni, Kjartan
og Viðar.
Hinn 13. júlí 1952
giftist Guðmunda
Guðmundi Ingvari
Sveinjónssyni húsa-
smíðameistara, f.
5.12. 1930. Foreldrar
hans voru Sveinjón Ingvarsson
Elsku mamma. Loksins líður
þér vel. Veikindi þín og erfiðleikar
heyra nú fortíðinni til. Þú tókst á
við hvert áfallið á fætur öðru með
þvílíku æðruleysi að því er ekki
hægt að lýsa með orðum, enda
mesta hetja sem við höfum kynnst.
Þú varst okkur allt í senn, móðir,
vinur og félagi, og vantar því mik-
ið þegar það vantar þig.
Við kveðjum þig með söknuði,
elsku mamma, en trúum því að nú
líði þér vel. Við biðjum góðan Guð
að passa þig og gefa pabba og okk-
ur stelpunum þínum styrk til að
halda áfram.
Þínar
Halldóra, Lilja,
Andrea og Helga.
Núna þegar við svilarnir höfum
fylgt tengdamóður okkar til grafar
syrgjum við ekki aðeins Mundu
sem móður eiginkvenna okkar
heldur líka sem félaga sem er sárt
saknað.
Saman höfum við árlega haldið
sumarmót þar sem keppt er í
vísnagerð, vísnabotnum, tónlistar-
getraun, pílukasti og hverju því
öðru sem okkur hefur dottið í hug.
Í þessum kjarna rann keppn-
isskap Mundu og Dengsa saman
við sigurvilja dætra og tengdasona
og ekkert var gefið eftir.
Við vorum tíu félagar í lokuðum
klúbbi. Nú er einn þessara félaga
fallinn frá.
En Munda var meira en þetta.
Hún og Dengsi, eiginmaður henn-
ar nánast frá barnæsku, tömdu sér
snemma lífsstíl sem var þá lítt
þekktur með byggingu sumarbú-
staðar, gróðursetningu og ræktun
landsins ásamt tilheyrandi lífi sem
svo margir Íslendingar í dag
kunna að meta. En það var ekki
sjálfsagður hlutur þá hjá alþýðu-
fólki að eiga sinn eigin sælureit í
sveitinni.
Þau byggðu sér saman paradís
fjarri öngþveiti borgarinnar, við
bakka Þjórsár og kölluðu Árbakka.
Þarna kom saman hugvit og
handverk Dengsa sem byggði
þeim gegnum árin falleg hýbýli og
alúð Mundu við að gera þennan
stað að gróðursælli paradís.
Og þess nutu dætur þeirra í
uppeldinu. Að þessari kynngi-
mögnuðu blöndu tengdaforeldra
okkar gengum við við kynni af
dætrum þeirra. Þessari náttúru-
dýrkun. Þessu fallega sumarlífi
þar sem Þjórsá rennur tignarlega
fram hjá og niður árinnar fylgir
okkur inn í draumana.
Stoltið af verkum okkar þegar
hamrarnir þagna. Stoltið af erfiði
okkar þegar vöxtur gróðursins ber
þann ávöxt sem til var sáð. Þetta
er arfleifð Mundu og Dengsa. Það
sem þau hafa kennt okkur og
dætrum sínum.
Í dag njótum við verka þeirra og
án þess væri tilvera okkar fátæk-
legri.
Fyrir þetta erum við þakklátir.
Það hefði dugað okkur að Munda
átti þessar indælu stelpur.
Í dag eigum við öll okkar sum-
arlíf. Okkar nálægð við náttúruna
og okkar þakklæti fyrir að hafa
verið kynntir fyrir þessum forrétt-
indum.
Munda og Dengsi töluðu oft um
„gullnu ströndina“ þegar morgun-
sólin snerti bakka Þjórsár og varp-
aði gullnum ljóma eftir bökkum
hennar. Það fylgdu tár þessari lýs-
ingu sem segir mest um virðingu
þeirra fyrir náttúrunni.
Það fylgja tár með þessari
kveðju okkar.
Félagi okkar og kennari er fall-
inn frá. Við Dengsa getum við ekk-
ert sagt sem sefar sorg hans nema
það að við vitum allir í hjarta okk-
ar að Munda er enn með okkur og
verður alltaf.
Við verðum alltaf tíu.
Tengdasynirnir.
GUÐMUNDA
GUÐRÚN
KJARTANSDÓTTIR
Dóttir okkar,
SIGRÍÐUR KOLBRÚN
GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Emmubergi,
Drekagili 28,
Akureyri,
andaðist á FSA sunnudaginn 20. júní.
Minningarathöfn fer fram frá Glerárkirkju
fimmtudaginn 1. júlí kl. 14.00.
Jarðsett verður frá Breiðabólstað föstudaginn 2. júlí kl. 14.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent
á Krabbameinsfélagið.
Guðríður Friðlaug Guðjónsdóttir,
Guðmundur Jónsson,
systkini og aðrir aðstandendur.
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa, langafa og bróður,
BJÖRNS ÓLAFS ÞORFINNSSONAR
skipstjóra,
Akraseli 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 2B,
Hrafnistu í Hafnarfirði, fyrir einstaka umönnun og velvild.
Fjóla Helgadóttir,
Erna Björnsdóttir, Sigurður Grétarsson,
Björn Ólafur Árnason, Sigríður Sólveigardóttir,
Pálmi Sigurðsson,
Fjóla Sigurðardóttir,
langafabörn og systkini hins látna.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
LAUFEYJAR GOTTLIEBSDÓTTUR,
Dvergabakka 32,
Reykjavík.
Valur Sigurðsson, Karen Aradóttir,
Rúnar Sigurðsson,
Guðmundur Sigurðsson, Steinunn Gísladóttir,
Sigurjóna Sigurðardóttir,
Hildur Sigurðardóttir, Sigurjón Ólafsson,
Hörður Sigurðsson, Þóra Eylands,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
INGIMAR ÁSTVALDUR MAGNÚSSON
húsasmíðameistari,
hjúkrunar- og dvalarheimilinu Holtsbúð,
Garðabæ,
lést fimmtudaginn 24. júní.
Kolbrún Ingimarsdóttir,
Ragnar G. Ingimarsson, Halldóra M. Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir mín, tengdamóðir og stjúpmóðir,
RAGNHEIÐUR BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Hamrahlíð 25,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn
23. júní.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík miðvikudaginn 30. júní kl. 15.00.
Brynjólfur Helgason, Hrönn Kristinsdóttir,
Tómas Helgason,
Ragnhildur Helgadóttir, Þór Vilhjálmsson.
Bjarni Helgason.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur, systur,
mágkonu og frænku,
EMILÍU SIGURSTEINSDÓTTUR
(Millu),
Blikanesi 29,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki líknar-
deildar Kópavogi, deildar 11E Landspítala og Heimahlynningar fyrir góða
umönnun og alúð í hennar garð.
Guð blessi ykkur öll
Snorri Hallgrímsson,
Ágústína Berg, Sigursteinn Jónsson,
Heiðdís Sigursteinsdóttir, Vilhjálmur Þórðarson,
Hafdís Sigursteinsdóttir, Theodór K. Ómarsson
og frændsystkin.
Eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐRÚN SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
(Dúra),
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju í dag,
föstudaginn 25. júní, kl. 14.00.
Jón A. Valdimarsson,
Bjarni Valtýsson,
Sigurbjörg Jónsdóttir,
Ásdís Jónsdóttir Schultz,
Guðbjörg Jónsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
SAGA JÓNSDÓTTIR,
Rauðá,
lést fimmtudaginn 17. júní.
Jarðarförin fer fram frá Þorgeirskirkju, Ljósa-
vatni, mánudaginn 28. júní kl. 14.00.
Grímur Vilhjálmsson,
börn og barnabörn.