Morgunblaðið - 25.06.2004, Side 37

Morgunblaðið - 25.06.2004, Side 37
ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Work from home www.toppjobb.no kode gryo R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu verslunar-, skrifstofu-, þjónustu-, lager- og iðnaðarhúsnæði á stór-Reykjavíkursvæðinu. Fasteignafélagið Kirkjuhvoll. Vefsíða okkar er www.kirkjuhvoll.com Uppl. veitir Karl í síma 892 0160 og Styrmir Karlsson í síma 899 9090. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi Sumarferð til Flateyjar Vegna veðurs er sumarferðinni í Flatey á Skjálfanda, sem vera átti laugardaginn 26. júní, frestað Ferðin verður farin laugardaginn 3. júlí nk. og verður lagt af stað frá Umferðarmiðstöðinni á Akureyri kl. 13.00. Nánari upplýsingar er að finna á vefnum „islendingur.is“, en einnig má hafa samband við eftirtalda: Gunnar Ragnars, sími 898 5560, Helgi Vilbergs, sími 864 0088, Alfreð Almarsson, sími 862 3323. Stjórn Kjördæmisráðsins. NAUÐUNGARSALA Uppboð Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli auglýsir uppboð á eftirfarandi lausafé: Ford Explorer XLT árgerð 2002. Uppboðið fer fram við sýsluskrifstofuna Græn- ási þriðjudaginn 29. júní 2004 kl. 14.00 en bif- reiðin verður til sýnis á uppboðsstað á upp- boðsdegi frá kl. 10.00. Uppboðsskilmálar munu liggja frammi á sýsluskrifstofunni Grænási, 235 Keflavíkurflugvelli, frá mánudeginum 28. júní 2004. Keflavíkurflugvelli, 24. júní 2004, sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli. TILKYNNINGAR Vegagerðin auglýsir Frumdrög að tillögu að matsáætlun Dettifossvegar í Keldu- nes- og Skútustaðahreppi eru nú til kynningar á heimasíðu Vegagerðar- innar, www.vegagerdin.is undir kaflanum Framkvæmdir/Mat á umhverfisáhrifum. Almenningi gefst frestur til 9. júlí 2004 til að koma á framfæri athugasemdum og fyrirspurn- um um matsáætlunina. Hægt er að senda tölvupóst til: sj@vegagerdin.is eða póstsenda á Vegagerðin b/t Sóleyjar Jónas- dóttur, Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri. Rafskautaverksmiðja á Katanesi í Hvalfjarðar- strandarhreppi í Hvalfirði Mat á umhverfisáhrifum — athugun Skipulagsstofnunar Kapla hf. hefur tilkynnt til athugunar Skipulags- stofnunar matsskýrslu um rafskautaverksmiðju á Katanesi í Hvalfjarðarstrandarhreppi í Hval- firði. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 25. júní—6. ágúst 2004 á eftirtöldum stöðum: Á bókasafni Akraness, á skrifstofum Hvalfjarð- arstrandarhrepps og Skilmannahrepps, í Þjóð- arbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu HRV Samsteypunnar: www.hrv.is. Vakin er athygli á að opið hús verður haldið mánudaginn 28. júní 2004 frá kl. 17.00 til 21.00 að Hlöðum í Hvalfirði þar sem öllum gefst kostur á að kynna sér framkvæmdina. Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 6. ágúst 2004 til Skipulagsstofn- unar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á um- hverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis- áhrifum, nr. 106/2000. Skipulagsstofnun. Auglýsing um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi Samkvæmt 25. gr. laga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir athugasemdum við deiliskipulag sbr. eftirfarandi: a) Deiliskipulag í landi Nesja í Grafningi Landið er um 30 ha. að stærð þar sem gert er ráð fyrir 24 lóðum undir frístundabyggð. Hver lóð er 5.600 fm til 11.000 fm að stærð. Aðkoma að lóðunum er frá Grafningsvegi og Hestvíkurvegi. b) Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Ásgarðs í Grímsnesi Landið er um 34 ha. að stærð þar sem gert er ráð fyrir 32 lóðum undir frístundabyggð. Hver lóð er 5.200 fm til 9.500 fm að stærð. Aðkoma að frístundabyggðinni er frá Fljótsbakka. c) Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Hraunkots í Grímsnesi Svæði A: Frístundabyggð sem er að mestu fullbyggð, skipt upp í þrjá hluta 1, 2 og 3. Á svæðinu er gert ráð fyrir 229 lóðum, hver að stærð u.þ.b 0,5 ha. Svæði B: Frístundabyggð þar sem gert er ráð fyrir 118 lóðum, hver að stærð u.þ.b. 0,5 ha. Aðkoma að svæðinu er annars vegar um Álfasteinssund og hins vegar frá Biskups- tungnabraut. Skipulagstillögur liggja frammi á skrifstofu Grímsnes- og Grafningshrepps, félagsheimil- inu Borg og á skrifstofu skipulagsfulltrúa Dal- braut 12, Laugarvatni, frá 25. júní til 23. júlí 2004. Skriflegum athugasemdum við skipu- lagstillögurnar skal skila á skrifstofu skipulags- fulltrúa til 6. ágúst 2004. Sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps. upplýsingar er að finna á mbl.is/upplýsingar ATVINNU- OG RAÐAUGLÝSINGAR MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 37 Þegar þið pabbi ættleidduð mig ár- ið 1952 hafði margt á daga þína drifið; skilnaður foreldra þinna á unglings- árunum; lífsbaráttan í Reykjavík með móður þinni og systkinum; gifting ykkar pabba og flutningur vestur á Hjarðarfell. Það hafa verið töluverð viðbrigði fyrir þig, borgarbarnið, að standa fyr- ir heimili í sveit. Þið pabbi byggðuð ykkur glæsilegt nýbýli á jörð afa og ömmu. Á sumrin var gestkvæmt á Hjarðarfelli, glaðværð og sólskin ein- kennir þessi sumur í minningunni. Og ekki voru veturnir kaldir þrátt fyrir margan snjóaveturinn, inni fyrir var hlýtt og öruggt, þetta voru tímar íhugunar og ævintýra. Svo komu aðrir tímar, önnur lífsins ævintýri og ekki voru þau öll auðveld eða falleg, en þú varst ætíð baráttu- kona og hafðir góðan húmor, sérstak- lega fyrir því smágerða í umhverfi þínu. Tveim vikum fyrir andlát þitt minntir þú mig á ferð sem við fórum saman til Evrópu árið 1983. Í þeirri ferð komum við til fallegra og sögu- frægra staða í mörgum löndum, en þú minntir mig sérstaklega á hvað við sólbrunnum skemmtilega suður á Ítalíu. Við vorum þar á strönd í nokkra daga og gerðum lítið annað en að tefla skák, liggjandi í sandinum, og auðvit- að brunnum við. Sólbruninn myndaði fallegar rendur á bak okkar, því við lágum í skugga af rimlastólum! Þú hafðir unun af góðum kveðskap, sérstaklega stökum, en þær máttu ekki vera grófar eða groddalegar, þú hafðir litlar mætur á slíku. Margar góðar minningar á ég frá samveru- stundum okkar. Þú komst mér ung- um í kynni við skáldskap og leikhús- ferðir okkar eru mér ógleymanlegar bernskuminningar. Nú ert þú farin héðan á vit stærri ævintýra. Ég bið Guð að blessa og varðveita sálu þína, mamma mín. Þinn sonur, Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson. Elsku mamma. Þú ert farin. Ég kvaddi þig með þeim orðum í fyrra- sumar, áður en ég fór til Noregs, að við sæjumst næsta sumar. Það varð ekki svo. Ég kom til þín þriggja ára gömul. Bróðir þinn bað þig er hann lá bana- leguna að taka dóttur sína (mig) að þér. Þá bjugguð þið við Háaleitis- brautina. Stuttu síðar fluttumst við vestur í Hjarðarfell í Miklaholts- hreppi, þar sem við bjuggum þar til ég var 16 ára. Það er margs að minnast, pabbi byggði glæsilegt hús á Hjarðarfelli og natni þín og smekkvísi gerði það að fallegu og hlýlegu heimili. Á þeim tíma var farskóli í sveitinni og oft var hann heima. Þá var gott að geta feng- ið hjálp frá mömmu með lærdóminn. Gestkvæmt var á Hjarðarfelli og öll sumur komu kaupstaðarbörn í sum- ardvöl, þá var glatt á hjalla. Elsku mamma, þú kenndir mér margt nytsamlegt eins og saumaskap og eldamennsku. Oft gerði ég villur og kom þá til þín og bað þig að hjálpa mér, en þá sagðir þú ætíð: „Nei, þú lærir þetta aldrei nema þú gerir það sjálf!“ Þá fannst mér þú hörð en nú þakka ég þér einmitt fyrir þetta. Þú kenndir mér einnig margt um lífið, eins og að láta ekki bugast á erfiðum stundum, vera hörð og segja: „Ég skal!“ Vera ötul, þrautseig og ætlast ekki til of mikils af öðrum. Þetta og margt annað vil ég þakka þér, elsku mamma. En það komu erfið ár. Ár fyllt sársauka og misklíð á milli okkar. En ég gleymi aldrei þeim degi er við náðum sáttum. Ég heimsótti þig og þú byrjaðir að tala um ósætti okkar. En svo hættir þú snögglega og sagðir: „Æ, ég nenni ekki að rífast við þig lengur, farðu og helltu upp á könn- una.“ Síðan sátum við eins og í gamla daga og spjölluðum og hlógum. Elsku mamma, takk fyrir allt. Minningin um þig mun lifa í hjarta mínu. Guð varðveiti sálu þína. Þín dóttir Hulda Björg Lúðvíksdóttir. Ég hugsa um það elsku mamma mín, hvað marþætt voru alltaf störfin þín, nú þreytt að háu beði hefur lotið. Í kyrrþey unnin öll þín miklu störf, sem útheimt voru bæði mörg og þörf, það var alltaf ljós á þinni leið, að lofa og biðja Guð í sælu og neyð. Barnabörnin bæði stór og smá, blíðu þinnar sakna, ömmu þrá, þau vita að þú ert farin frá þeim, í fegurri og betri heim. Þó svíði í augum angurs tár, því alltaf verður kveðjustundin sár, ég ann þér hvíldar, elsku mamma mín, alla tíð sé blessuð minning þín. (Jónína Magnúsdóttir.) Ég á þér mikið að þakka, elsku mamma mín. Hvíldu í friði og Guð veri með þér. Þín dóttir Björg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.