Morgunblaðið - 25.06.2004, Qupperneq 48
Brekkur anga
blær á vanga’
á bak mig langar og svo halda’ af stað
Nú söðla ég þig Sörli klárinn minn
því senn nú lognast út af dagurinn.
Öll læti eru hljóðnuð,
horfinn kliðurinn –
og hér bíður fákurinn.
Ég á mér stað,
(brekkur anga)
ég á mér stað,
(blær á vanga)
– griðastað.
(Á bak mig langar og svo held af stað.)
Og þegar sál mín þreytt og lúin er
og þankar dapurlegir sækja að mér,
í jóreyk burt þeir hverfa,
bagginn léttast fer,
ég blessa’ alla stund með þér.
Ég á mér …
Ég held af stað
held á minn stað
– griðastað.
Ég á mér stað
48 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Með hinum eina sanna og ofursvala Vin Diesel.
Geggjaaður hasar og magnaðar tæknibrellur.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
KEFLAVÍK
Kl. 8 og 10.30.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8 OG 10.30.
Sýnd kl. 5.30.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás 2
HL Mbl
Sýnd kl. 6 og 8.Sýnd kl. 6 og 9.
Brad Pitt, Orlando Bloom, Eric Bana
SV MBL
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 10. B.i.14 ára.
Nú er komið frábært sjálfstætt framhald þar
sem Elling fer í frí til sólarlanda ásamt móður
sinni. Norskt grin uppá sitt besta.
Mamma hans Elling
Ó.H.T Rás 2
SV Mbl
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 8 og 10.30.
Geggjaaður hasar
og magnaðar
tæknibrellur.
Með hinum
eina sanna
og ofursvala
Vin Diesel.
Sjáðu splunkunýja og magnaða heimildarmynd um
væntanlega Íslandsvini 2 vikum á undan USA.
"Ein besta mynd ársins." - Jeanne Aufmuth, PALO ALTO WEEKLY
"Mögnuð mynd...afrek!" -- Sura Wood, HOLLYWOOD REPORTER
"Leikstjórarnir hafa búið til nýtt viðmið fyrir aðra til að
stefna að." - John A. Nesbit, CULTUREDOSE.NET
LANDSMÓT hestamanna verður sett á
Hellu í næstu viku en af því tilefni var
Gunnar Þórðarson beðinn að semja lag
fyrir mótið. Þessi vinna fór í gang fyrir
um einum og hálfum mánuði en lagið er
nú tilbúið og má búast við að heyra það í
útvarpinu strax í dag. Þetta lag mótsins
heitir „Ég á mér stað“ og semur Guð-
mundur Andri Thorsson textann við lag
Gunnars. Flytjandi er hins vegar tenórinn
Jóhann Friðgeir Valdimarsson ásamt
Vörðukórnum frá Flúðum.
„Lagið verður spilað við opnunina,“ seg-
ir Gunnar en Landsmótið, sem venjulega
er vel sótt af bæði Íslendingum sem ferða-
mönnum, verður sett á fimmtudaginn í
næstu viku. „Þetta er í
anda íslenska sönglags-
ins,“ segir hann um lag-
ið.
„Ég hef farið í nokkra
túra á sumrin,“ segir
Gunnar aðspurður hvort
hann sé í hestamennsku.
Gunnar verður líka við-
staddur Landsmótið en
hann verður umsjón-
armaður tónlistar á
mótinu. Hann er ánægður með að fá tæki-
færi til að vera með. „Jú, það er gaman að
taka þátt í þessu. Þetta er hresst fólk
þarna.“
Tónlist | Gunnar Þórðarson semur lag
Landsmóts hestamanna 2004
Ekta íslenskt sönglag
Gunnar
Þórðarson
EITT vinsælasta sjónvarpsefni síðasta árs var
án efa Stjörnuleitin á Stöð 2 en eins og nafnið
gefur til kynna fór þar fram leitin að stórstjörnu
Íslands.
Kalli Bjarni bar þá sigurorð af fjölmennum
hópi hæfileikaríkra söngvara og nú er kominn
tími til að endurtaka leikinn.
Áheyrnarpróf til þátttöku í keppninni hefjast í
lok sumars en opnað verður fyrir skráningu
hinn 1. júlí næstkomandi.
Að sögn Pálma Guðmundssonar, markaðs-
stjóra hjá Íslenska útvarpsfélaginu, verður
keppnin með örlítið breyttu sniði sem snýr þó
aðallega að umfangi keppninnar.
„Þar sem þetta var gert í fyrsta sinn í fyrra
ákváðum við að fara rólega í sakirnar. Að þessu
sinni verður þó öllu til tjaldað til að gera þetta
sem veglegast og við leggjum allan okkar metn-
að í verkefnið,“ segir Pálmi.
Hann segir að ekki endilega sé búist við fleiri
keppendum en í fyrra, en alls þreyttu 1.400
manns áheyrnarpróf.
„Við vonumst þó til að fá ekki síður betri
söngvara en í fyrra,“ segir Pálmi.
Þótt keppendurnir verði nýir verða aðrir að-
standendur þeir sömu.
Þau Sigga Beinteins, Þorvaldur Bjarni og
Bubbi Morthens munu sem fyrr skjóta misupp-
byggjandi athugasemdum að keppendum og Jói
og Simmi sjá um kynningar. Þar sem Stjörnu-
leitin er að sögn Pálma „vinsælasti sjónvarps-
þáttur í sögu Stöðvar 2“ segir hann aldrei annað
hafa komið til greina en að taka þráðinn upp að
nýju.
Sem fyrr segir fer skráning í áheyrnarpróf
fram í byrjun næsta mánaðar en sú nýjung verð-
ur á að prófin fara fram um allt land, í Reykja-
vík, Vestmannaeyjum, á Ísafirði, Akureyri og
Egilsstöðum.
Fyrsti þátturinn verður svo sýndur hinn 1.
október og ný stjarna verður krýnd í Vetr-
argarðinum í Smáralindinni 11. mars 2005.
Sjónvarp | Stjörnuleitin á dagskrá Stöðvar 2 í haust
Leitin að næstu
stórstjörnu
Íslands
Sigga Beinteins, Bubbi Morthens og
Þorvaldur Bjarni aðstoða þjóðina við val á
næstu stórstjörnu Íslands.
Skráning í áheyrnarpróf hefst 1. júlí næst-
komandi á vefslóðinni www.stod2.is.