Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.2003, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. SEPTEMBER 2003 3
S
TUNDUM er sagt að fiskar
sjái ekki vatnið sem þeir
synda í. Ég veit ekki hvað
fiskar sjá. Ég þykist þó vita
að í þessu orðtaki sé sann-
leikur fólginn, sem má heim-
færa á mannlífið, því oft og
iðulega veitum við því litla
athygli sem næst okkur er og hugmyndir
sem móta sýn okkar á lífið og tilveruna eru
margar of hversdagslegar til að við veltum
þeim fyrir okkur. Margir ganga til dæmis
að því vísu að allir menn séu jafningjar og
eigi að hafa sama rétt, siðferði og stjórnmál
skuli snúast um hamingju fólks og farsæld,
hvaðeina sem gerist eigi sér skýringar sem
hægt er að grafast fyrir um með vísinda-
legum aðferðum og að þekkingu manna
fleygi fram svo þeir kunni, geti og viti
meira í dag en í gær. Þótt þessar hug-
myndir þyki sjálfsagðar nú voru þær einu
sinni róttækar og ferskar.
Við nútímamenn búum að arfi vísinda-
byltingar og upplýsingar og hugmyndir
sem spekingar á borð við Galíleó Galíleí
(1564-1642), Rene Descartes (1596-1650),
Benedict Spinoza (1632-1677), John Locke
(1632-1704) og Isaac Newton (1642-1727)
mótuðu á 17. öld eru okkur eins sjálfsagðar
og ætla má að vatnið sé fiskunum. Við verð-
um þeirra ef til vill helst vör þá sjaldan við
reynum í alvöru að skilja fólk sem hugsar
öðru vísi, fólk sem ekki hefur mótast af vís-
indalegri hugsun og upplýsingu.
Það er erfitt að orða nákvæmlega áhrif
þessara frumkvöðla í vísindum og heim-
speki nútímans, því merking orðanna sem
við notum til að tjá hugsun okkar breyttist
í meðförum þeirra svo það er langt frá því
að vera einfalt mál að gera grein fyrir
hugarheimi gamla tímans, þess tíma sem
var fyrir sigra upplýsingarinnar. En þótt
það sé erfitt hafa margir reynt. Að minni
hyggju er skáldsagan Líflæknirinn eftir
Svíann Per Olov Enquist með merkari til-
raunum sem gerðar hafa verið til lýsa hug-
arheimi sem stendur á þröskuldi nútímans.
Þar er sagt frá viðleitni Struense læknis
við dönsku hirðina til að hrinda hugsjónum
upplýsingarstefnunnar í framkvæmd í
Danmörku.
Struense (1732-1772) fæddist réttum 100
árum seinna en Spinoza og Locke. Sú sann-
færing að menn eigi að nota skynsemi sína
til að hugsa sjálfstætt og hvers kyns skoð-
anir skuli gagnrýndar og prófaðar er meðal
þess sem hann tók í arf eftir þessa heim-
spekinga frá öldinni áður. Hann hafði það
einnig frá þeim að allir menn séu jafnir,
hafi allir sams konar skynsemi til að bera,
sama siðferði gildi fyrir þá alla og stjórn-
mál eigi að snúast um farsæld almennings.
Saga þeirra umskipta í hugmyndasög-
unni sem hófust um öld fyrir daga Stru-
ense hefur verið sögð aftur og aftur og
hver kynslóð sagnfræðinga sér hana í nýju
ljósi. Eina gerð hennar ritaði Ágúst H.
Bjarnason (1875-1952) af mikilli list í
fimmta bindi af Sögu mannsandans. Meðal
þess sem gerði útgáfu Ágústs sérstaka á
sínum tíma var álit hans á hollenska heim-
spekingnum Spinoza. Hann fær talsvert
meira rúm en aðrir frumkvöðlar í heim-
speki og vísindum 17. aldar og Ágúst full-
yrðir að hugsun hans marki aldahvörf í
heimspeki Vesturlanda (bls. 222). Flestir
aðrir fræðimenn á sviði hugmyndasögu
töldu Descartes og Locke helstu bylt-
ingamenn í heimspeki seinni alda. Fyrir
skömmu bættist Ágúst þó liðsauki þegar
stórvirkið Radical Enlightenment, Philo-
sophy and the Making of Modernity 1650-
1750 eftir Jonathan I. Israel kom út árið
2001. Í þeirri miklu bók færir Israel góð
rök fyrir því að áhrif Spinoza á þróun upp-
lýsingarinnar hafi verið miklu meiri en
sagnfræðingar hafa almennt talið. Með því
að plægja gegnum heilu bókasöfnin og
rýna í ritlinga og blaðagreinar frá Hol-
landi, Frakklandi, Englandi, Ítalíu og fleiri
löndum Evrópu hefur Israel komist að
þeirri niðurstöðu að undir lok sautjándu
aldar hafi menntamenn hvarvetna hvíslast
á um kenningar Spinoza og skrifað um þær
undir rós. Í kringum aldamótin 1700 sner-
ist ritskoðun í Evrópu að verulegu leyti um
að hefta útbreiðslu á kenningum þessa
hugrakka gyðings frá Amsterdam. Hann
var jafnvel talinn hættulegasti maður álf-
unnar.
Þegar Spinoza var 24 ára gamall hafði
hann mótað eigin sýn á tilveruna og hafnað
trú feðra sinna. Öldungarnir í samkundu-
húsi gyðinga ráku hann úr söfnuðinum og
bannfærðu með formála sem í lauslegri
þýðingu er eitthvað á þessa leið: „Bölvaður
sé hann um daga og bölvaður sé hann um
nætur, bölvaður þegar hann leggst að
kveldi og bölvaður þá hann rís að morgni,
bölvaður þegar hann gengur út og bölvaður
þegar hann kemur inn. Drottinn mun ekki
fyrirgefa honum, heldur mun heift og reiði
Drottins geisa móti honum og færa honum
alla fordæming sem lögmálið greinir frá í
ritningunni og Drottinn mun afmá nafn
hans af jörðinni.“
Á þessum árum var skoðanafrelsi meira í
Hollandi en öðrum löndum og þar var tek-
ist á um djörfustu hugmyndirnar. Róttækir
hugsuðir frá Frakklandi og víðar leituðu
þar hælis og fengu bækur sínar gefnar út.
En jafnvel hinni frjálslyndu borgarastétt
Hollands blöskraði boðskapur Spinoza og
hann var ekki aðeins útskúfaður af söfnuði
sínum heldur voru bækur hans bannaðar. Í
mörgum öðrum löndum Evrópu hefðu yfir-
völd tekið hann af lífi, en í Hollandi fékk
hann að lifa í friði, þótt hann mætti ekki
prenta bækur sínar. Spinoza varði tíman-
um til að ræða heimspeki við vini sína og
slípa sjóngler. Ekki er vitað hvort hann
stundaði sjónglerjasmíðina til að afla tekna
eða hvort tilgangur hennar var einkum að
þjóna vísindunum og smíða betri smásjár
en til voru.
Ástæðan fyrir því að Spinoza ógnaði við-
tekinni heimsmynd var að nokkru sú að
hann steypti helstu hugsjónum trúleys-
ingja og efnishyggjumanna frá öllum tím-
um saman í skipulega heild, kerfi sem
menn fundu enga leið til að hrekja með
skynsamlegum rökum. En þetta er ekki öll
sagan, því Spinoza skar sig líka úr fyrir þá
sök að hann treysti eigin skynsemi, hugsaði
algerlega sjálfstætt og tók ekki mark á
neinu kennivaldi. Fleiri ástæður má nefna
fyrir því hve hættulegur Spinoza var talinn.
Fimbulfamb og staðlausir stafir vekja
sjaldan reiði og heift. Ef fræðilegar vanga-
veltur og heimspekileg rök fá menn til að
kreppa hnefa og gnísta tönnum þá er það
oftast vegna þess að þær bregða birtu á
eitthvað sem þeir vilja að sé hulið. Ofsa-
fengin viðbrögð gamla samfélagsins við
dagfarsprúðum handverksmanni og heim-
spekingi sem skrifaði bækur um að náttúr-
an sé allur veruleikinn, líkami og sál einn
og sami hlutur, allir menn jafningjar, lýð-
ræði farsælasta stjórnarformið og það
sæmi ekki skynsömum mönnum að trúa
bókstaflega á kraftaverk, hindurvitni og
furðusögur úr eldgömlum helgiritum verða
tæpast skýrð með öðru en því að sannleik-
anum er hver sárreiðastur.
Um sumt má líkja Spínóza við Sókrates.
Sá síðarnefndi vakti yfir vöggu heimspek-
innar í Grikklandi fyrir rúmum 2400 árum
en sá fyrrnefndi studdi upplýsinguna í
Vestur-Evrópu fyrstu fetin. Báðir höfnuðu
viðteknum hugmyndum um undirstöðu og
réttlætingu siðferðis og samfélagshátta en
voru samt til fyrirmyndar um heiðarleika
og góðmennsku og báðir fóru meira en lítið
í taugarnar á veraldlegum og andlegum
yfirvöldum.
Þótt hugsjónir upplýsingarinnar séu ef
til vill orðnar of sjálfsagðar til að við velt-
um þeim mikið fyrir okkur skyldum við
ekki ætla að þær hafi unnið neinn
fullnaðarsigur. Bókstafstrú, rökleysis-
hyggja, afneitun á sammannlegu siðferði
og urgur út í vísindi, tækni og framfarir
eru enn til og meðal annars þess vegna á
Spinoza erindi við samtímann.
SPINOZA OG
UPPLÝSINGIN
RABB
A T L I H A R Ð A R S O N
this.is/atli
JÓN HELGASON
Í EYRARSUNDI
Heim skal nú vitjað til Hadesar bústaða dökkra,
hugur mun særast unz tómlætið gerist hans brynja,
augað mun daprast við umlyking sífelldra rökkra,
eyrað mun sljóvgast er skrímsli í loftinu drynja.
Gustar um þiljur, og særinn á súðunum niðar,
síðustu dofnandi kvöldgeislar leiðina vísa …
Hverfandi frelsi! ó sól þú er sígur til viðar,
sé ég þig aftur úr djúpunum ljómandi rísa?
Stjarnanna þúsundir tindra um himinsins hvelfing,
heilagur eldur í víðáttu geimanna lifir;
engu að síður er ljós þeirra lifandis skelfing
lítið hjá öllu því myrkri sem nóttin býr yfir.
Jón Helgason (1899–1986) var textafræðingur og skáld. Hann er nú skáld
mánaðarins í Þjóðmenningarhúsinu. Ljóðið var ort um veturnætur 1940 og kom
út í ljóðabókinni Úr landsuðri (2. útgáfa 1948).
José Saramago
las upp úr sögu sinni um ókunnu eyjuna á
Bókmenntahátíð í Reykjavík fyrir skömmu.
Hér er sagan birt í heild sinni í þýðingu Sig-
rúnar Ástríðar Eiríksdóttur en sagan segir
frá manni sem fer til kóngsins að biðja sér
skips til að leita að ókunnu eyjunni.
Claude Cahun
var franskur ljósmyndari og rithöfundur
sem tók þátt í byltingu súrrealismans á síð-
ustu öld. Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir
segir frá lífi og list þessarar listakonu sem
fór ekki troðnar slóðir.
Valkyrjur
gegndu fleiri hlutverkum en að kjósa val
fyrir Óðin og Freyju, segir Elías Snæland
Jónsson í grein þar sem hann fer í slóð val-
kyrja í íslenskum fornbókmenntum.
Þingvellir
hafa mikið aðdráttarafl en er ekki hægt að
gera eitthvað til þess að fólk fái meira út úr
heimsókn sinni þangað? Haukur Sigurðsson
bendir á ýmsa möguleika á að miðla menn-
ingararfi Þingvalla á lifandi hátt fyrir
áhugasama gesti staðarins.
FORSÍÐUMYNDIN
er af Björnsbakaríi, Vallarstræti 4. Myndina tók Magnús Ólafsson
árið 1910 og er hún á sýningu á myndum hans sem verður opnuð í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag.
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
3 9 . T Ö L U B L A Ð - 7 8 . Á R G A N G U R
EFNI