Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.2003, Side 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. SEPTEMBER 2003 11
Af hverju er krabbamein kallað
þessu nafni?
SVAR: Áður en komið er að nafngiftinni er
ekki úr vegi að gera grein fyrir eðli krabba-
meina.
Krabbamein eru margvísleg að uppruna,
en að mörgu leyti sambærileg hvað hegðun
varðar. Þau mynda flokk alvarlegra sjúk-
dóma sem yfirleitt eru lífshættulegir ef við-
eigandi meðferð er ekki beitt. Krabbamein
einkennast flest af fyrirferðaraukningu, það
er æxli, sem kemur fram eftir að frumur í
einhverjum vef eða líffæri líkamans hafa tek-
ið þeirri umbreytingu sem krabbameins-
myndun nefnist, og eru teknar að fjölga sér
stjórnlaust.
Í umbreytingunni felst einnig að frum-
urnar öðlast hæfileika til að vaxa inn í aðra
vefi. Þessi innvöxtur nefnist íferð(invasion)
og veldur skemmdum í þeim líffærum sem
fyrir henni verða. Krabbameinsfrumur geta
einnig sáð sér út með bláæðum eða vessaæð-
um og tekið sér bólfestu á nýjum stöðum.
Þar vaxa þær einnig stjórnlaust, mynda fyr-
irferð og valda skemmdum. Slíkt nefnist á ís-
lensku meinvarp(metastasis). Krabbamein í
brjóstum kvenna geta til dæmis sáð sér til
eitla í holhönd, krabbamein í lungum geta
sáð sér til heila og krabbamein í blöðruháls-
kirtli karla geta sáð sér til beina.
Krabbameinin eru hættuleg vegna þess að
frumuvöxturinn lýtur ekki stjórn líkamans
og heldur áfram þó að slíkt þjóni engum
hagnýtum tilgangi og verði aðeins til að
skemma og eyðileggja aðra vefi og önnur líf-
færi. Bera má þetta saman við vöxt í
græðsluvef í sári eða beinbroti. Græðsluvefur
vex fram til að fylla í sár eða beinbrot, en
þegar sárinu er lokað eða brotið gróið hættir
vöxtur hans. Í krabbameini hættir vöxturinn
hins vegar ekki fyrr en hann er stöðvaður
með meðferð eða hann hefur valdið svo mikl-
um skemmdum í mikilvægum líffærum að
sjúklingurinn deyr.
Uppruna krabbameinsheitisins má rekja til
forngrísku, þar sem karkinos þýðir krabbi,
og til latínu, þar sem cancer þýðir krabbi.
Sennilega er það lögun hins ífarandi vaxtar,
það er angar og tungur æxlisins sem teygja
sig inn í aðra vefi, sem veldur því að mönn-
um hefur dottið í hug samlíking við krabba-
dýr.
Einnig hefur komið fram sú tilgáta að út-
þandar og blóðfylltar æðar sem stundum
teygja sig út frá krabbameini geti líkst öng-
um krabbadýrsins.
Loks hafa menn getið sér þess til að gríski
læknirinn Hippókrates, sem uppi var um 400
f. Kr., hafi fyrstur notað heitið carcinoma,
krabbaæxli. Talið er að hann hafi, auk ofan-
greinds, einnig haft í huga að krabbamein
eru oft mjög þétt á yfirborði, nánast eins og
hörð skel krabbadýrs. Þá hefur verið sett
fram sú tilgáta að hann hafi borið saman
hegðun krabbameinsins og hegðun krabba-
dýrsins, sem ekki sleppir taki sínu fyrr en í
fulla hnefana.
Í ritmálsskrá Orðabókar háskólans má
finna að íslenska heitið krabbamein hefur
verið komið í notkun þegar á miðri 18. öld.
Það er fyllilega viðurkennt sem fræðiheiti,
en í daglegu tali er óformlega heitið krabbi
oft notað.
Hver tegund krabbameins hefur sitt fræði-
lega sérheiti. Almennt eru þau fyrst kennd
við upprunalíffærið, svo sem magakrabba-
mein, nýrnakrabbamein og húðkrabbamein.
Læknisfræðilega geta þau svo verið nánar
flokkuð eftir vefja- eða frumugerð æxlisvaxt-
arins, til dæmis í kirtilkrabbamein, smá-
frumukrabbamein, flöguþekjukrabbamein og
margt fleira. Krabbamein í stoðvefjum, það
er í beinum, vöðvum og bandvef, eru gjarnan
nefnd sarkmein, eftir gríska fræðiheitinu
sarcoma. Loks má nefna að hvítblæði er
flokkur alvarlegra sjúkdóma sem tilheyra
krabbameinum. Uppruni æxlisvaxtarins er
þá í blóðmyndandi beinmerg.
Jóhann Heiðar Jóhannsson, læknir á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi, sérfræðingur í
meinafræði.
Getum við lifað á hundasúrum,
grasi og öðru slíku eins og hest-
arnir og kýrnar?
SVAR: Við fáum orku úr jurtum fyrst og
fremst í formi sterkju sem er forðasykra
plöntunnar, samsett úr glúkósasameindum.
Aðalbyggingarefni og uppistaða í frumu-
veggjum plantna er svokallað beðmi eða
sellulósi. Það er einnig úr glúkósasameindum
en þær tengjast öðruvísi en glúkósasam-
eindir sterkjunnar og meltingarensím
mannsins geta ekki melt það. Þar af leiðandi
nýtist sellulósi manninum ekki til orku.
Reyndar er sellulasa, ensímið sem brýtur
niður sellulósa, aðeins að finna í sárafáum
dýrategundum. Jórturdýr brjóta til að
mynda ekki niður sellulósa sjálf heldur sjá
ákveðnar örverur í maga þeirra um það.
Magi jórturdýra sem skiptist í fjögur hólf,
vömb, kepp, laka og vinstur, á þó sinn þátt í
að gera meltingu á grasi mögulega. Hestar,
sem ekki eru jórturdýr, brjóta sellulósa einn-
ig niður með hjálp örvera í botnristli.
Auðmeltanlega sterkju, sem maðurinn þarf
sem kolvetnagjafa, er frekar að finna í ávöxt-
um og rótum plantna, en minna er af henni í
stönglum og blöðum sem innihalda meira af
sellulósa. Í grasi er til dæmis að mestu leyti
ómeltanlegur sellulósi og því má segja að
ómögulegt sé fyrir manninn að lifa eingöngu
á grasi. Við gætum ekki nýtt það nægilega
vel sem orkugjafa auk þess sem okkur
myndi fljótlega skorta ýmis næringarefni.
Þó að hægt sé að fá einhverja orku úr
blaðgrænmeti eins og hundasúrum, þá er
mikilvægt að neyta líka sterkjuríkra afurða á
borð við kartöflur, rófur og gulrætur svo að
dæmi séu nefnd. Annars má segja almennt
um jurtafæði að fjölbreytni skiptir þar afar
miklu máli; þannig má tryggja nægilega
neyslu af orku og næringarefnum. Hunda-
súrur gætu því verið hluti af fæðunni en þær
gætu alls ekki fullnægt næringarþörf okkar.
Björn Sigurður Gunnarsson, matvæla- og
næringarfræðingur á Rannsóknastofu í
næringarfræði.
AF HVERJU ER
KRABBAMEIN
KALLAÐ ÞESSU
NAFNI?
HVAÐ er heilög þrenning, eru íþróttameiðsl meðal
barna og unglinga algeng, eru til villihestar í dag
og af hverju fær maður stundum gæsahúð þegar maður hlustar á góða
tónlist? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað
að undanförnu á Vísindavefnum og hægt er að lesa svörin á slóðinni
www.visindavefur.hi.is.
VÍSINDI
Nú er illt að inna
ókjör harma minna,
þá er ráða þinna
þolinmóður að bíða,
bíða betri tíða.
Stormurinn rauk,
strompurinn fauk
fyrir hörku hríða.
Opt mér hefur amað
enn þó lítið framað,
lund og gleði lamað.
Leiðu seljans af koti
fullu af mör og floti.
Stormurinn rauk,
strompurinn fauk,
beinu lá við broti.
Úti í Árna garði
er nú strompurinn harði
fyr en firða varði.
Flestu má nú una,
þaut á þaki duna.
Stormurinn rauk,
strompurinn fauk,
burt hann varð að bruna!
Hvað mun Árni segja?
Hvurt mun kaupmanns freyja,
nú í drottni deyja?
Dottinn er nú strompur!
Kæfum allar kumpur!
Stormurinn rauk,
strompurinn fauk,
skemmdar allar hvumpur.
Haf mig nú í huga!
Hér má ekkert duga,
nema bönd sem buga.
Blástur efri krapta
sterkt með haunkum hapta.
Stormurinn rauk,
strompurinn fauk,
þúngt er það að kjapta.
Biskup mun oss bráðum,
bjarga vel með ráðum.
Um stiga biskup bæðum
brátt hann hjálpa vildi,
Þá í harðri hildi.
Stormurinn rauk,
strompurinn fauk,
mikil er biskups mildi!
Harminn minn í hljóði
Hyl ég nú í óði,
við þig, Gísli góði,
gæddur meistara höndum
berst frá listar löndum.
Stormurinn rauk,
strompurinn fauk,
Gísla brauzt úr böndum.
Fauk í ofviðri 27. janúar 1900, en 28. janúar var þetta kveðið til Gísla.
Strompkvæði orti Gröndal eftir að strompurinn fauk af húsi hans á Vesturgötu 16. Það
gerðist 27. janúar árið 1900 eins og segir á handritinu undir kvæðinu. Frumritið er í eigu
Guðfinnu Lilju Gröndal. Tengdamóðir hennar Eygló Gísladóttir gaf henni handritið, en
Eygló var dóttir Gísla Finnssonar járnsmiðs.
Það var úr vöndu að ráða hjá skáldinu þegar strompurinn var farinn svo hann tók sér
penna í hönd og ritaði Gísla bónarbréf um björgun á strompinum. Sendi hann svo kvæðið
til vinar síns sem bjó vestar á Vesturgötunni.
Gísli Finnsson járnsmiður sigldi til Kaupmannahafnar árið 1897 til þess að kynna sér
tækninýjungar í sinni grein, þ.e. járnsmíði. Hann flutti síðan heim með sér stein-
olíumótor. Mótor þessi átti að knýja rennibekkinn á verkstæði hans. Auk mótorsins kom
hann með fjöldann allan af nýjum verkfærum, sem ekki voru þekkt hér á landi. Gísli
stofnaði einnig með Knud Zimsen verkfræðingi fyrstu járnvöruverslunina á Íslandi.
Einnig byggði Gísli árið 1907 á Norðurstíg 7 stóra smiðju og nefndi hana „Hamar“.
Kvæðið er handskrifað á folio. Á fremstu síðu er efst teikning af þaki hússins og það
sem eftir er af strompinum en strompurinn sjálfur flýgur á vængjum á braut. Benedikt
notar rauðan og bláan og svartan lit í þetta handrit. Teikningin er í bláu og rauðu, en
kvæðið skiptist í rauðan og svartan lit.
BENEDIKT SVEINBJARNARSON GRÖNDAL
STROMPKVÆÐI
Fyrsta síða í handriti Gröndals að Strompkvæði.