Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.2003, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. SEPTEMBER 2003 15
Pavel Panasiuk, Helga Bryndís Magnúsdóttir og Sigurður
Ingvi Snorrason saman komin í náttúrunni norðan heiða.
VERK þriggja tón-skálda verða fluttaf þremur flytj-endum í Salnum
annað kvöld kl. 20. Það eru
þau Sigurður Ingvi
Snorrason, klarinettuleik-
ari, Pavel Panasiuk, selló-
leikari og Helga Bryndís
Magnúsdóttir, píanóleik-
ari, sem flytja verk eftir
L.v.
Beethoven,
Þorkel Sig-
urbjörns-
son og Jo-
hannes Brahms. Þau fluttu
þessa dagskrá á Dalvík og
Akureyri fyrr í mán-
uðinum.
Eru áheyrendur að ein-
hverju leyti öðruvísi úti á
landi, Sigurður?
„Fólk úti á landi fær
sjaldnar tækifæri til að
hlýða á klassíska tónlist og
er að mörgu leyti einlæg-
ara í upplifun sinni og
þakklátara. Ég geri yf-
irleitt ekki mikið af því að
leika úti á landi en það er
mjög gaman að vinna með
fólki sem starfar annars
staðar en hér fyrir sunnan.
Ég er búinn að fara þrisvar
sinnum norður undanfarið
til að æfa og það, eitt og
sér að skipta um umhverfi,
hefur veitt mér mikla
ánægju.“
Er hér um fastmótað
samstarf ykkar að ræða?
„Það hefur ekki verið
rætt ákveðið um það en
vonandi fáum við að spila
saman aftur því það hefur
verið mjög gaman og gef-
andi að leika með þeim
tveimur. Ég hef þekkt
Helgu Bryndísi lengi, al-
veg frá því hún tók einleik-
arapróf sitt frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík.
Pavel kynntist ég er ég
vann með Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands í
janúar sl. Þá lékum við
saman á Vínartónleikum.“
Segðu okkur af verk-
unum sem þið flytjið.
„Já. Verk Beethovens og
Brahms eru mjög þekkt.
Verk Beethovens er æsku-
verk, opus 11. Þess gætir í
verkinu, en síðasti kaflinn
er götuslagari sem Beet-
hoven heyrði í Vín og skrif-
aði tilbrigði við. Tríóið er
kennt við stefið í síðasta
þætti verksins, lagið Pria
ch’io l’impegno (Ég verð að
borða eitthvað áður en ég
held til vinnu). Fyrstu
heimildir um flutning eru
frá árinu 1800 og stendur
húsið enn þar sem sá flutn-
ingur fór fram. Þessi „slag-
ari“, eða uppá þýsku
„Gassenhauer“, var um
tíma raulaður af öðrum
hverjum manni á götum
Vínarborgar. Beethoven
vissi ekki fyrr en löngu síð-
ar að lagið er úr óperunni
Sjómaður af ást eftir Jos-
eph Weigl sem frumsýnd
var í borginni 1797. Óper-
an er ekki lengur flutt, en
slagarinn góði lifir.
Verkið sem við flytjum
eftir Brahms, Tríó op. 114,
er meðal hans síðustu
verka. Áður hafði Brahms
ákveðið að komið væri að
lokum tónlistarferils síns,
þá tæplega sextugur. Hann
gekk svo ákveðinn til verks
að hann tók nótnabunkann
sinn og henti honum í á í
Austurríki. Hann sagði við
útgefanda sinn að meðal
pappíranna hafi verið upp-
kast að 5. sinfóníunni.
Nokkrum mánuðum síðar
fer Brahms til Meiningen í
Þýskalandi og heyrir þá í
fyrsta klarínettuleikara í
hirðhljómsveitar staðarins,
Richard Mühlfeld að nafni.
Hann var svo ævintýralega
góður að hann kveikti aft-
ur neistann í brjósti tón-
skáldsins. Eftir þetta sem-
ur Brahms, í einum rykk,
Tríóið op. 114 og Klarín-
ettukvintettinn op. 115og
stuttu síðar Sónöturnar op.
120 nr. 1 og 2. Hann lést 64
ára gamall.
Eftir Þorkel flytjum við
Thema senza variazioni,
Stef án tilbrigða. Þetta er
gott verk og dæmigerður
Þorkell. Verkið leynir á
sér og stutt er í húmorinn.
Í umsögn sinni um verkið
leggur hann útfrá því að í
mörgum tónverkum sé
alltaf eitthvert þema og til-
brigði, þar af eitt í moll.
Þarna leikur hann sér að
einu þema og kastar á milli
flytjenda.“
Gefandi að vinna
með fólki úti á landi
STIKLA
Tríótónleikar
í Salnum
Næsta v ika
Laugardagur
Gallerí Skuggi, Hverfisgötu,
kl. 17 Guðrún Öyahals opnar
sýningu. Í verkum sínum leitast hún
við að kanna huglægt ástand ein-
staklingsins, þörf manneskjunnar
fyrir persónulegt rými, ferð hennar
um hringrás lífsins og tilraunir til að
gera sjálfa sig að miðjupunkti.
Gerðuberg kl. 13.30 Sjónþing
með Koggu. Stjórnandi er Að-
alsteinn Ingólfsson listfræðingur.
Spyrlar eru Edda Jónsdóttir for-
stöðumaður gallerís i8 og Tinna
Gunnarsdóttir iðnhönnuður. Einnig
verður opnuð yfirlitssýning á verk-
um Koggu sem spannar sl. 30 ár.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur,
Grófarhús kl. 13 Yfirlitssýningu
á verkum Magnúsar Ólafssonar
(1862–1937) eins helsta frumherja
í íslenskri ljósmyndun. Verk Magn-
úsar, sem eru kjölfestan í safneign
Ljósmyndasafns Reykjavíkur, varpa
ljósi á tímabilið frá aldamótum
1900 fram undir miðbik 20. aldar.
Opið virka daga kl. 12–19, um
helgar kl. 13–17.
Sunnudagur
Listasafn Íslands kl. 15 Harpa
Þórsdóttir listfræðingur fylgir gest-
um um sýningar Söru Björnsdóttur
og Spessa í „Sjónarhorni“ lista-
safnsins. Einnig verður farið um
sýninguna Vefur lands og lita – Yf-
irlitssýning á verkum Júlíönu
Sveinsdóttur.
Listasafn Reykjavíkur – Hafn-
arhús kl. 15 Pétur H. Ármanns-
son, deildarstjóri byggingarlist-
ardeildar og sýningarstjóri, fer
með gestum um sýningu á húsa-
teikningum og líkönum og spjallar
við gesti um verkin.
Listasafn Reykjavíkur – Kjar-
valsstaðir kl. 15 Eyjólfur Ein-
arsson verður með leiðsögn um
sýningu sína, Hringekjur lífsins, og
ræðir við gesti um listsköpun sína.
Nýlistasafnið kl. 15 Baldur Geir
Bragason myndlistarmaður verður
með leisögn um sýninguna Grasrót
2003. Þar eru verk 13 ungra
myndlistarmanna.
Mánudagur
Listaháskóli Íslands, Laug-
arnesi, kl. 12.30 Þýski myndlist-
armaðurinn Ingo Frölich flytur fyr-
irlestur er hann nefnir
„Raunveruleiki og möguleiki“ og
fjallar þar um tíma og rúm í eigin
verkum.
Þriðjudagur
Salurinn kl. 20 Hannes Þ. Guð-
rúnarson gítarleikari flytur tónlist
frá Paragvæ, Mexíkó og Kúbu.
Villancico de Navidad, Barcarola
og La Samaritana eftir Agustin
Barrios Mangore, 5 Prelúdíur,
Theme varie et Finale og Vals eftir
Manuel M. Ponce og Elogio de la
Danza, Dansa Caracteristica og
Cancion de Cuna eftir Leo Brouwer.
Norræna
húsið kl.
12.05–13
Már Jónsson
flytur erindi
sem hann
nefnir Heim-
an eða
heim? Brott-
rekstur mára
frá Spáni í
byrjun 17.
aldar. Fyr-
irlesturinn er í fyrirlestraröð Sagn-
fræðingafélags Íslands sem nefnist
„Hvað er (um)heimur? Aðgangur
er ókeypis.
Miðvikudagur
Listháskóli Íslands, Skipholti 1
kl. 12.30 Glerlistamaðurinn Mike
Lees fjallar um glerlist. Mike er bú-
settur í Norður –Wales og starfar
þar að list sinni.
Fimmtudagur
Háskólabíó
kl. 19.30
Sinfón-
íuhljómsveit
Íslands. Ein-
leikari á selló
Erling Blön-
dal Bengts-
son. Hljóm-
sveitarstjóri
er Lawrence
Foster. Flutt
verða verk
eftir Georges
Enesco, Rúm-
ensk raps-
ódía nr. 2, Sellókonsert eftir Aram
Khatsjatúrjan og Sinfónía nr. 3 eftir
Johannes Brahms.
Már Jónsson.
Kogga.
Erling Blöndal
Bengtsson.
unnar Liv Blåvarp. Til
19.10. Anddyri: Sari
Maarit Cedergren. Til
12.10.
Nýlistasafnið: Grasrót
2003. Til 12.10.
Safn – Laugavegi 37:
Opið mið-sun, kl. 14–
18. Til sýnis á þremur
hæðum íslensk og al-
þjóðleg samtíma-
listaverk.
Skaftfell, Seyðisfirði:
Sirra Sigrún Sigurð-
ardóttir og Erling T.V.
Klingenberg. Til 10.10.
Slunkaríki, Ísafirði:
Hjörtur Hjartarson. Til
28.9.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Landafundir.
Skáld mánaðarins – Jón
Helgason.
Þjóðarbókhlaða:
Humar eða fræðg:
Smekkleysa í 16 ár. Til
23.11.
Upplýsingamiðstöð
myndlistar: www.umm.is
undir Fréttir.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Dýrin í
Hálsaskógi, sun. Með
fulla vasa af grjóti, lau.,
fös. Pabbastrákur, lau.,
fös. Veislan, sun.
Borgarleikhúsið: Lína
Langsokkur, lau., sun.
Öfugu megin uppí, lau.
Púntila og Matti, fös.
Grease,
Loftkastalinn: Erling,
lau.
Hafnarfjarðarleik-
húsið: Vinur minn
heimsendir, lau., fim.,
fös.
Iðnó: Sellofon, fim.
Tjarnarbíó: Eldurinn,
Jóhanna af Örk, lau.,
sun.
Möguleikhúsið: Tveir
menn og kassi, sun.
Heiðarsnælda, sun.
Völuspá, sun.
Til 12.10.
Listasafn Akureyrar:
Þjóð í mótun.Vestursalur:
Erla S. Haraldsdóttir og
Bo Melin. Til 2.11.
Listasafn ASÍ: Einar
Garibaldi Eiríksson og
Bruno Muzzolini. Til
12.10.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laug-
ardaga og sunnudaga
kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Júl-
íana Sveinsdóttir. Sara
Björnsdóttir og Spessi. Til
26.10.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Stefán Geir
Karlsson. Til 19.10.
Listasafn Reykjavíkur
– Ásmundarsafn: Ás-
mundur Sveinsson – Nú-
tímamaðurinn. Til 20.5.
Listasafn Reykjavíkur
– Hafnarhúsi: Erró –
stríð. Til 3.1. Samsýning
alþýðulistar og samtíma-
listar, í samstarfi við
Safnasafnið. Úr bygg-
ingarlistarsafni. Innsetn-
ing Bryndísar Snæ-
björnsdóttur og Mark
Wilson. Til 2.11.
Listasafn Reykjavíkur
– Kjarvalsstaðir: Eyj-
ólfur Einarsson. Sæ-
mundur Valdimarsson
myndhöggvari. Til
12.10. List án landa-
mæra: Sigrún Huld
Hrafnsdóttir og Þórey Rut
Jóhannesdóttir. Til 28.9.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Meistarar
formsins – Úr högg-
myndasögu 20 aldar. Til
28.9.
Ljósmyndasafn
Reykjavíkur: Magnús
Ólafsson ljósmyndari. Til
1.12.
Mokkakaffi: Bjarni
Bernharður. Til 15. okt.
Norræna húsið: Skart-
gripir norsku listakon-
MYNDLIST
Gallerí Dvergur,
Grundarstíg: Elín
Hansdóttir. Til 4.10.
Gallerí Fold, Rauð-
arárstíg: Pétur Gautur.
Ljósafold: Jóna Þorvalds-
dóttir. Til 5.10.
Gallerí Hlemmur: Val-
gerður Guðlaugsdóttir:
Innsetning. Til 28.9.
Gallerí Kambur,
Rangárvallasýslu:
Hulda Vilhjálmsdóttir. Til
5.10.
Gallerí Skuggi: Guð-
rún Öyahals. Til 12.10.
Gallerí Sævars Karls:
Svanborg Matthíasdóttir.
Til 8.10.
Gerðarsafn: Helgi
Hjaltalín Eyjólfsson,
Katrín Þorvaldsdóttir og
Olga Bergmann. Til
5.10.
Gerðuberg: Yfirlitssýn-
ing af verkum Koggu sl.
30 ár. Til 16.11.
Hafnarborg: Bernd og
Jutta Lohmann. Krist-
bergur Pétursson. Ingi-
ríður Óðinsdóttir. Teikn-
ingar hafnfirskra barna.
Til 13.10.
Hallgrímskirkja:
Gunnar Örn. Til 1.12.
Hús málaranna: Jó-
hann G. Jóhannsson og
Guðbjörn Gunnarsson.
Til 28.9.
i8, Klapparstíg 33:
Guðrún Einarsdóttir.
Undir stiganum: Tomas
Lemarquis. Til 1.11.
Íslensk grafík: Berg-
lind Björnsdóttir. Til 28.
sept.
Ketilhús, Akureyri:
Einar Hákonarson. Til 5.
okt.
Kling og bang gall-
erí, Laugavegi 23:
Nína Magnúsdóttir. Til
28.9.
Listasafni ASÍ: Arin-
stofa, Kristinn Pétursson.
ALBÍNA Thordarson fjallar um ævi og störf föður
síns, Sigvalda Thordarsonar, í fjölnotasal Lista-
safns Reykjavíkur – Hafnarhúsi, kl. 20 á mið-
vikudagskvöld. Þann dag er alþjóðlegur dagur bygg-
ingarlistar.
Sigvaldi var einn listfengasti arkitekt sinnar kyn-
slóðar og hafði með verkum sínum mikil áhrif á þró-
un byggingarlistar hér á 5. og 6. áratug 20. aldar.
Hann fæddist á Ljósalandi í Vopnafirði árið 1911.
Eftir sveinspróf í húsasmíði fór hann utan til náms í
arkitektúr í Danmörku árið 1934. Hann gerði hlé á
námi árið 1940, fluttist til Reykjavíkur og hóf rekstur teiknistofu með
Gísla Halldórssyni arkitekt. Að stríði loknu lauk hann námi sínu ytra, var
eftir það forstöðumaður teiknistofu SÍS 1948-51 og rak loks eigin teikni-
stofu allt til æviloka.
Fyrirlesturinn er í boði byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur og
Arkitektafélags Íslands. Aðgangur er ókeypis.
Ævi og störf Sigvalda Thordarsonar
Sigvaldi Thordarson.
BARNADAGAR verða í aðalsafni
Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15,
í vetur, en mikið er um að börn
heimsæki safnið með foreldrum
eða öðrum fullorðnum. Ýmislegt
verður um að vera fyrir börnnin í
vetur, m.a. sögustundir, lista-
smiðja, tónsmiðja, sýnd verða
myndbönd og brúðuleikhús kemur
í heimsókn.
Á morgun kl. 15 kemur Hallveig
Thorlacius með Sögusvuntuna og
sýnir leikritið um Loðinbarða. Að-
gangur ókeypis.
Barnadagur
í Borgar-
bókasafni
Úr sýningu Sögusvuntunnar á brúðuleiknum
Loðinbarða.
EINAR Garibaldi Eiríksson og Bruno Muzzolini opna einkasýn-
ingar í Listasafni ASÍ í dag, laugardag kl.15. Einar Garibaldi
sýnir málverk og kallast sýning hans Ísland í níu hlutum.
Bruno sýnir ljósmyndir og myndbandsverk og kallast sýning
hans Augnagildrur.
Einar Garibaldi hélt málverkasýningu sem nefnist Blað 18-
Reykjanes í Listasafni Reykjaness 7. september í fyrra. „Það
má segja að sýningin nú sé framhald þeirrar sýningar. Þar
fjallaði ég um landslagið eins og það birtist í túlkun kortagerðarmanna og vísaði titillinn í kort frá landmælingum
Íslands sem gefið er út í Atlaskortaröðinni. Blað 18 í þeirri röð er af Reykjanesi. Nú tek ég fyrir allt landið. Um er
að ræða óhefðbundin málverk sem mynda heildarlandslagsmynd,“ segir Einar Garibaldi.
Bruno Muzzolini er frá Ítalíu og sýnir nú verk sín í annað sinn hér á landi. Hann tók þátt í samsýningunni Færur
árið 1997 í Nýlistasafninu. Bruno er nú gestakennari við Listaháskóla Íslands. Opið alla daga, nema mánudaga,
kl. 13 –17. Sýningarnar standa til 12. október.
Málverk af Íslandskorti
og ljósmyndir í ASÍ
Bruno Muzzolini og Einar Garibaldi Eiríksson.