Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Síða 5

Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Síða 5
ELÍN SLGURÐÁRDÓTTIR fyrrum húsfrú í Syðri-Tungu í Staðarsveit Hinn 23. júlí s.l. var gerð frá Neskirkju í Reykjavik útför frú Elínar Sigurðardóttur Hagamel 28, fyrrum húsfreyju í Syðri-Tungu í Staðarsveit, en hún lézt 15. s.m. eftir stranga legu. Með henni var til moldar borin myndar- og merk- iskona, sem mér er bæði ljúft og skylt að minnast með nokkrum orðum. Elín fæddist í Syðri-Tungu 10. september 1901 og var því tæplega sjötug er hún lézt. Foreldrar voru þau Ingibjörg Jónsdóttir og Sigurð ur Þorleifsson búandi hjón þar, en þar bjuggu þau allan sion búskap. Systkini Elínar voru þrjú sem upp liði. Og nú, undanfarna áratugi hefir verið þar tvíbýli, Jónas og Björgvin búið þar og komið upp stórum hópi mannvænlegra barna. Vissulega er sorg aldraðra for- eldra, um efnilegan son, þung og sár, en vér megum einnig finna til með jörðinni, sem enn geymir flest sporin hans, en veit ekki enn að þau verða ekki fleiri. Þessi dagur, 17. apríl, særði oss öll djúpu sári. Þá voru ekki liðin tíu ár síðan hér varð sjóslys, er kostaði 7 mannslíf. Þetta slys ýfir þannig upp harma auk þess, sem það vekur nýja. En sá, er harm- ana skóp gefur einnig huggun. í öruggu trausti á hann, er öllu stjórnar, erum vér hér og förum héðan, vitandi það, að voldug hönd almáttugs Guðs, mun um ókomna tíma vernda oss og styðja, og gefa oss þrek að standast þrautir. Þess vegna eigum vér ekki að sakast um, þótt oss séu gefnar þrautir, svo að vér getum sýnt þrekið. Um það biðjum vér Guð nú á þessari stundu, sem og allar stundir lífs vors. í Jesú nafni. Skarpliéðinn Pétursson. komust: Elínborg, Jón og Guðrun, sem öll giftust og áttu börn. Eru systurnar báðar á lífi, háaldraðar, en Jón látinn fyrir nokkrum árum. Elín var yngst af systkinum sínum, sem öll voru mesta myndar- og dugnaðarfólk og vel látin af öll- um. Fóstursystir Elínar var systur dóttir hennar Rannveig Vormsdótt ir, ættuð í föðurætt úr Austur- Húnavatnssýslu og er hún enn á lífi, búsett í Hafnarfirði. Foreldrar Elínar voru alltaf fremur fátæk, en þó vel bjargálna og í Syðri-Tungu átti hún heima meiri hluta ævi sinnar. Sá staður var henni því jafnan kær. Sigurð- ur, faðir Elínar, var mesti dugnað ar- og sómamaður og því vel lát- inn af nágrönnum sínum og sveit- ungum. Hann vann' oft utan heim- ilis síns og var sérstaklega góður heimilisfaðir. Er mér það í minni, hvað hann var víða fenginn til að rista heytorf, sem er vont verk og erfitt. Af honum lærði ég það verk, svo ég varð sæmilega góður torfristumaður. Nú er sem betur fer hætt að rista heytorf, en hey- in geymd í hlöðum að mestu. Einn ig reri hann á yngri árum sínum nokkrar vetrarvertíðir „undir jökli“ og þótti þar sem annars staðar góður liðsmaður. Frá Fúlu- vík reri hann einnig meðan róðrar voru þaðan stundaðir. Ræðari var hann ágætur og fiskinn vel. Þóttu þeir sjómenn góðum kostum bún- ir, sem það höfðu til að bera. Minnist ég hans ætíð með hlýhug og þakklæti, því af honum lærði ég ýmislegt, sem ég vissi ekki áð- ur. Ingibjörg, lcona hans, var líka dugnaðarkona og vann hún oft á vorin við dúnhreinsun, en við það starf var hún bæði rösk og vel- virk. Eins og fyrr segir ólst Elín heit- in upp í Syðri-Tungu og var þar að mestu þar til hún giftist eftir- lifandi manni sínum árið 1928, Skarphéðni Þórarinssyni frá Laxa hóli í Breiðuvíkurhreppi, góðum dreng og snyrtimenni. Búskap byrjuðu þau á Búðum og voru þar í eitt ár. Þá fluttust þau að Arnar- tungu, sem nú er fyrir löngu kom- in í eyði, og bjuggu þar í tvö eða þrjú ár. Eftir lát Sigurðar, föður Elínar fluttist þau að Svðri- Tungu og bjuggu þar eftir það til 1957 að þau hættu búskap og flutt ust til Reykjavíkur. í Syðri-Tungu búnaðist þeim vel og voru jafnan samhent við búskapinn, enda hjónaband þeirra hið farsælasta. Börn þeirra eru fjögur: Birkir, Jenný, B.iörg og Rakel, sem öll eru gift og eiga börn og hin gjörvuleg- ustu. Skarphéðinn, maður Elínar, hafði um alllangt skeið á hendi ýms opinber störf fyrir sveit sína. Var t. d. hreppsnefndaroddvti i 12 ár, formaður sóknarnefndar o. fl. Leysti hann þau af hendi með ágætum, sem önnur störf sín og var því vinsæll. Eigi skorti Elínu heldur vinsældir og var jafnan gott að koma að Syðri-Tungu, Mátti segja með sanni, að þau voru samvalin heiðurshjón. Elín gekk á unglingsárum sín- um í U.M.F. Staðarsveitar og starí ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.