Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Qupperneq 14

Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Qupperneq 14
MINNING Sigríður Jóhannsdóttir frá Flatey á Breiðafirði Fædd 12. júní 1900. Dáin 11. ágúst 1971. Hinzta kveðja. Sú stund skal hljóð, þá ævi manns er öll, en ylfrjó minning gista næma sál. •— Ég mann þitt bros og grómlaust gamanmál, góðleik þíns hjarta; ey og sæ og fjöll. væru lesnar upp í skólanum, enda hlaut hann sérstaka viðurkenningu fyriir. Það var því að vonum, að nem- endur litu upp til Þórólfs vegna ! hinna margvíslegu hæfileika hans. Og með þeim mátti vænta þess, að Þórólfur stæði á margan hátt vel að vígi að þreyta lífsins tafl, þó að hæfileikarnir einir séu aldrei trygging fyrir slíku. Því að það er með lífstaflið svipað og tóm- stundataflið, að það býður upp á marga leiki, suma óvænta, sem við sjáum ekki alltaf fyrir en breyta taflstöðunni í einni andrá svo að leikslok verða stundum vonum fyrr. Við trúum því samt, að aftur verði raðað upp, að nýtt tafl hefj- ist þar sem áfram verði haldið og allt hið góða svo og hæfileikar ýmsir sem vonir voru við tengd- ar, njóti sín á nýjum starfsvett- vangi. Kennarar kveðja minnisstæðan nemanda, bekkjarsystkin vinsæl- an bekkjarbróður, með söknuði. En sárastur harmur er kveðinn að foreldru'm, systkinum, afa og ömmu svo og öðrum skyldmenn- um. Öllum þeim sendum við af al- hug okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Sigurjón Jóhannesson. Og enn ég man þitt heima, hlýtt ogbjart. Hreinleik þíns sefa. Orð þitt mjúkt sem hart. Látlausa einurð. Aldrei myrkt þitt mál. — Þér mundi ég glaður bergja djúpa skál. Skál þess sem var — Þú skilur hljóð og glögg: Skál þína fyllta himinvígðri dögg. Hlæi þér morgunn hreinn í blæ ogyi, hugrakka sál — ef annað líf er til. Jón Jóhannesson. t „Mínir vinir fara fjöld“, sagði skáldið. Þau orð get ég tekið mér í munn, þegar mínir gömlu og kæru vinir frá Flatey á Breiða- firði eru að kveðja hver af öðrum á stuttum tíma. Alltaf fækkar þeim, er muna Flatey á blóma- skeiði, þegar fólk bjó í hverju húsi og allt iðaði af lífi, bátarnir komu og fóru, og alls staðar var eitthvað að gerast. Og fegurð eyjanna gæddi lífið unaði og tign. í dag fer fram útför frú Sigríð- ar Jóhannsdóttur, Barmahlíð 55, konu, er tengd var eyjunum traust um böndum og bar svipmót þeirra í sál og sinni. Hún fæddist í Flatey á Breiða- firði 12. júní 1900. Foreldrar henn ar voru Jóhann Arason, skipstjóri í Flatey og kona hans Valborg Jónsdóttir. Sigríður ólst upp í Flatey ásamt tveim bræðrum sínum, Jóni Jó- hannssyni, síðast verzlunarmanni á Stokkseyri, dáinn 1932, og Sigur- jóni Jóhannssyni, vélstjóra í Reykjavík. Sigríður stundaði nám í Kvennaskólanum í Reykjavík. Hún giftist 8. desember 1923 Guð- mundi Jóhannessyni, loftskeyta- stöðvarstjóra og oddvita í Flatey og síðar yfirgjaldkera innheimtu- deildar Landssímans og fluttust þau til Reykjavíkur 1931. Börn þeirra eru 3, Jóhann, sem tók við starfi föður síns við Lands- símann, kvæntur Rebekku Kristj- ánsdóttur, Kristín, gift Rafni Júlí- ussyni, póstmálafulltrúa í Reykja- vík og María Valborg, gift Viðari Guðjónssyni, verzlunarmanni í Reykjavík. Sigríður andaðist 11. ágúst s.l. eftir langa sjúkdómslegu. Sigríður Jóhannsdóttir var ein af þeim konum, er vissulega settu svip sinn á lífið í Flatey, meðan Flatey var og hét. Hún var minnis stæð kona, sem eftir var tekið. Það var reisn og þokki yfir henni og hún átti það látleysi og alúð, sem prýðir hvern mann og stækk- ar hann. Hún var skapföst og trygg. Bjó yfir staðfestu og öryggi, sem óg veit að byggðist á einlægri guðstrú hennar, þó að hún bæri hana ekki alltaf á vör. Það var ekki hennar eðli að sýnast, heldur vera. Þetta var kjölfesta í lífi henn ar, gæddi hana hlýju og samúð. Sigríður var hressandi glöð jafn an blessunarlega laus við yfirdreps skap, hógvær í háttum, skilnings- rík og mild gagnvart þeim, er bágt áttu. Mér fannst hún vera alltaj minnug þess, að „aðgát skal höfð í nærveru sálar“. Því var gott að koma til hennar og vera með henni, enda átti hún létt með að 14 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.