Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Qupperneq 18

Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Qupperneq 18
MINNING Sesselja Stefánsdóttir FRÁ KAMBI Fædd 22. júní 1881. Dáin 12. júlí 1971. Meðal hinna þýðingarmestu at- riða í lífsferð okkar allra er sú samfylgd, sem við óhjákvæmilega höfum, um lengri eða skemmri tíma. Þessi samfylgd er, að sjálf- sögðu, margháttuð og mismunandi að gildi, eftir manngerðum, og einnig er undir ýmsu lcomið, hvern ig við kunnum að meta hana. Skiln- ingurinn á gildi samfylgdarinnar, er oft svo takmarkaður, kannske einkum framan af ævi. En ef til vill er margt ljósara þegar leiðir skilja, við vegamót. — Nú eru ein vegamótin að baki, háöldruð, merk kona hefur kvatt samferðafólkið og gengið inn á hærri lífsbraut. — Þar sem ég naut samfylgdar henn ar um alllangt skeið, einkum á bernsku- og æskuárum, er mér ljúft og jafnframt skylt, að minn- ast hennar með nokkrum orðum. Sesselja fæddist að Berufirði í Reykhólasveit. Foreldrar hennar voru hjónin Stefán Jónsson og Guðrún Andrésdóttir, bæði vel metin í sínu héraði. — Um það kvæntur Snjólaugu Benediktsdótt- ui frá Hjarðarbóli. Hálfdán, kvæntur Bergljótu Benediktsdóttur, búa á Hjarðar- bóli. Árdís, gift Gunnari Kristjáns- syni. Þau eru búsett í Hafnarfirði. Þorgrímur iðnaðarmaður í Húsa vík, kvæntur færeyzkri konu, Em- hildi Ólsen. Svanlaug, gift Hermanni Ragn- nrssyni í Húsavík. Eins og sagt var áður, var Hraun kotsheimilið jafnan mannmargt og ríóð föstum fótum. Slík sveita- heimili hafa um aldir verið örugg undirstaða í samfélagi okkar ís- lendinga. Bjartmar Guðmundsson. bil er Sesselja fór að stíga fyrstu sporin var hún tekin í fóstur að Bæ í Króksfirði. Þar ólst hún svo upp hjá Iæknishjónunum Ólafi Sig valdasyni og Elísabetu Jónsdóttur, en heimili þeirra var, að sögn kunnugra, sannkallað fyrirmyndar heimili. Þar var jafnan mannmargt 'og mikil umsvif, en allur heimilis- bragur mótaðist af virðuleika og mannkostum húsbændanna. Og þarna var líka heimkynni glað- værðar og hóflegs gleðskapar, þeg ar henta þótti, en ljótt orðbragð og illt umtal leiðst ekki. StÖrfin á þessu heimili voru fjölbreyttári en almennt gerðist og í tómstund- um var mikið lesið, því að læknis- hjónin áttu allmikið og gott bóka- safn. Tvítug að aldri giftist Sesselja Jóni Hjaltalín Brandssyni og hófu þau fyrst búskap að Berufirði, en fáum árum síðar fluttu þau að Kambi, í sömu sveit, og þar bjuggu þau síðan um fjörtíu ára skeið. Á þeirri jörð unnu þau mikið og gott ævistarf, lengst af við þröngan efnahag og ærna lífsbaráttu. En Jón var afburða dugnaðarmaður, hann stóð jafnan í meiri og minni framkvæmdum, ýmist jarðabótum eða húsabyggingum, sem báru því vitni að maðurinn var þjóðhagur, hvar sem hann lagði huga og hönd að verki. Til að standa undir fram kvæmdunum var oftast talsverður bústofn, enda fóðuröflun oft all- mikil utan ábýlisjarðarinnar. Sam- fara þessum umsvifum og oftast mannmörgu heimili, þurfti að sjálf sögðu að mörgu að hyggja, utan bæjar seni innan. En hjónin voru stjórnsöm og samhent og höfðu jafnan góða reglu á öllum hlutum, þannig að snyrtimennskan vakti at hygli jafnt inni sem úti. Og heim- ilishald var með svo miklum mynd arbrag, sem efni framast leyfðu, og gestrisni mikil. Mátti þar eins og í svo mörgu öðru, finna þess merki, að húsmóðirin hafði alizt upp með sönnum höfðingjum. Þau Jón og Sesselja eignuðust tíu börn, af þeim dó einn dreng- ur, Guðmundur, á bemskuskeiði, hin komust öll til góðs þroska og tókst með dugnaði að afla sér tals verðrar menntunar og verða nýtir borgarar. Nöfn þeirra eru: Elín Gróa, Stefán, Guðbjörg Sig þrúður, Ólafur, Sigmundur, Kristj án Hans, Magnús, Bjarni og Guð- mundur. Einnig ólu þau upp Lilju Guðrúnu Hánnesdóttur. í upphafi þéssara minningar- orða minntist ég á samfylgd og vík nú að henni aftur, því að í viss- um skilningi átti ég samleið með Sesselju á Kambi um allmörg ár, er ég var að alast upp í Hólum, sem er næsti bær við Kamb. Þar sem systkini mín voru öll mun eldri en ég, leitaði ég mjög eftir leifefélöigum meðal nágranna og þá oftast að Kambi. Frá þeim dögum á ég, að sjálfsögðu, margar góðar endurminningar, ekki sízt frá leikj um og berjaferðum okkar Sig- mundar jafnaldra míns og yngri bræðra hans. En yfir svífur minn- ingin um móður þeirra, sem jafn- an kom fram við mig eins og hún væri líkf Jáóðir mín. Á heimili hennar var jafnan got| að koma, þar voru Igóðar veitingár, þar var líf og fjör, söngur og hljómlist, gleði og gaman. Samanborðið við mitt hlutskipti heima fyrir, fannst mér glæsibragur á öllu á Kambi, og var því stundum þaulssetnari þar en hóflegt var. En þegár börn in frá Kambi komu í heimsókn að Hólum höfðu þau aldrei lengri við dvöl en leyit hafði verið. Ber það vott um þá festu, sem ríkjandi var í uppeldi þeirra, fyrir samverk- andi áhrif foreldranna. En í því sambandi hvarflar þó hugurinn, öðru fremur, til þeirra uppeldis- áhrifa, er í æsku mótuðu lífsvið- horf Sesselju. Hún minntist fóstur 18 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.